Nýting á séreignarsparnaðarleið langt frá markmiði Leiðréttingarinnar

Leið­rétt­ingin átti að lækka hús­næð­is­lánum 150 millj­arða. Þar af áttu 70 millj­arðar að koma til vegna nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar. Þegar 2/3 hluti tímara­mma Leið­rétt­ing­ar­innar er lið­inn hafa verið nýttir 24 millj­arðar af sér­eign í lækkun höf­uð­stóls.

Afar litlar líkur eru á því að heildaráhrif Leiðréttingarinnar verði þeir 150 milljarðar sem lagt var upp með.
Afar litlar líkur eru á því að heild­ar­á­hrif Leið­rétt­ing­ar­innar verði þeir 150 millj­arðar sem lagt var upp með. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þegar útfærsla Leið­rétt­ing­ar­innar var kynnt í Hörpu í mars 2014 var sagt að aðgerðin myndi leiða til þess að hús­næð­is­lán Íslend­inga myndu lækka um 150 millj­arða króna. Þar af áttu 80 millj­arðar króna að koma í beinar nið­ur­greiðslu úr rík­is­sjóði á höf­uð­stól hús­næð­is­lána þeirra sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009 og höfðu ekki full­nýtt önnur skulda­úr­ræði. 70 millj­arðar króna áttu hins vegar að koma í formi þess að Íslend­ingar myndu nota sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­lán.

Þetta átti að ger­ast á þremur árum, frá miðju ári 2014 og fram á mitt næsta ár. Nú þegar ⅔ hluti þess tíma­bils er liðin hafa leið­rétt­inga­pen­ing­arnir úr rík­is­sjóði sann­ar­lega verið greiddir út. En nýt­ing á sér­eign­ar­sparn­aði til að greiða niður hús­næð­is­lán er langt frá því sem hún átti að vera.

Íslendingar hafa notað 24 milljarða

Íslend­ingar hafa sam­tals greitt sér­eign­ar­sparnað upp á 23,3 millj­arða króna inn á hús­næð­is­lán sín frá miðju ári 2014 og fram til júlí­mán­aðar 2016. Til við­bótar hafa 520 millj­ónir króna af sér­eign­ar­sparn­aði verið not­aðar sem útborgun vegna hús­næð­is­kaupa. Þeir sem not­færa sér þá leið hafa reyndar til 30. júní 2019 til að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn í fyrsta fast­eign en miðað við þátt­töku í leið­inni hingað til er ljóst að ekki er um mjög stóran hóp að ræða.

Ríkið og sveit­ar­fé­lög hafa veitt þeim hópi sem þetta hefur gert sam­tals 9,2 millj­arða króna í skatta­af­slátt. Samkvæmt grófu mati hefur sér­eign­ar­sparn­aði verið ráð­stafað inn á um 37 þús­und lán. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Því er veru­lega ólík­legt er að áætlun stjórn­valda, um að 70 millj­arðar króna af sér­eign­ar­sparn­aði fari til nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána fyrir mitt næsta ár, gangi eftir. Sú tala stendur nú, þegar ⅔ hluti tíma­bils­ins er lið­inn, í 23,8 millj­örðum króna. Til að áætlun rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um að heild­ar­á­hrif Leið­rétt­ing­ar­innar verði 150 millj­arðar króna um mitt næsta ár gangi eftir þurfa Íslend­ingar að ráð­stafa 46,2 millj­örðum króna inn á hús­næð­is­lán sín næsta árið.

Miðað við vilja Íslend­inga til að nýta sér úrræðið er mun lík­legra að heild­ar­um­fang þeirrar upp­hæðar sér­eigna­sparn­aðar sem ráð­stafað verður inn á hús­næð­is­lán fram á mitt ár 2017 verði um 35 millj­arðar króna, eða helm­ingur þeirrar upp­hæðar sem rík­is­stjórnin bjóst við að myndi verða greidd þangað.

Skattaafsláttur verið 9,2 milljarðar

Kostn­aður íslenska rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga vegna sér­eign­ar­sparn­að­ar­leið­ar­inn­ar átti að vera um 20 millj­arða króna. Þ.e. hið opin­bera ætl­aði að gefa eftir skatt sem ann­ars hefði verið lagður á útgreiðslu sér­eigna­sparn­aðar upp á þá upp­hæð gegn því að sér­eignin yrði notuð í að borga niður hús­næð­is­lán. Þannig átti hið opin­bera óbeint að greiða 20 millj­arða króna inn á hús­næð­is­lánin með því að gefa eftir fram­tíð­ar­skatt­tekjur af sér­eign­ar­sparn­aði.

Á fyrstu tveimur árunum sem heim­ildin var í gildi hefur sú upp­hæð sem ríkið og sveita­fé­lög hafa gefið eftir hins vegar verið mun lægri. Samtals er reikn­aður tekju­skattur af þeim sér­eign­ar­sparn­aði sem greiddur hefur verið inn á hús­næð­is­lán um 5,6 millj­arðar króna og reiknað útsvar 3,4 millj­arðar króna. Við það bæt­ist að ríkið hefur gefið eftir skatt­tekjur upp á 124,7 millj­ónir króna vegna sér­eign­ar­sparn­aðar sem not­aður hefur verið sem útborgun á íbúð og sveit­ar­fé­lög hafa gefið eftir sam­tals 75,4 millj­ónir króna af útsvars­tekjum sínum. Því hefur hið opin­bera sam­tals veitt um 9,2 millj­arða króna í skatta­fríð­indi vegna nýt­ingar á sér­eign­ar­sparn­að­ar­leið Leið­rétt­ing­ar­innar þegar ⅔ hluti af gild­is­tíma hennar er lið­inn. Því blasir við að öll lík­indi standa til þess að hið opin­bera muni ekki greiða jafn mikið og það sagð­ist ætla að gera vegna þess­arar leiðar í formi skatta­af­sláttar.

Fyrstu fasteignakaupendur fá að nota séreign líka

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra kynntu áætlun rík­is­stjórnar sinnar fyrir fyrstu fast­eigna­kaup­endur í Hörpu í gær. Hún snýst í grófum dráttum um að leyfa þeim sem eru að kaupa fyrstu fast­eign að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn til að greiða niður lán, nota sem útborgun eða lækka afborg­anir í tíu ár. Ríkið ætlar á móti að sleppa því að skatt­leggja sér­eign fólks­ins sem nýtir sér leið­ina. Í kynn­ing­unni var sagt að heild­ar­á­hrif hennar yrðu 50 millj­arðar króna. Þar af áttu 15 millj­arðar króna að vera vegna skatta­af­slátts hins opin­bera, en þær tölur miða við að 14 þús­und manns nýti sér úrræðið strax á næsta ári og svo bæt­ist við tvö þús­und manns á hverju ári næstu tíu árin.

Miðað við reynsl­una sem er af nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar til nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána gætu þær tölur verið heldur ofá­ætl­aðar.

Samhliða áætlun fyrir fyrstu kaup­endur fast­eignar var til­kynnt að þeir þegar eiga­hús­næði og eru að nota sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn í þessum til­gangi, geti gert það tveimur árum lengur en upp­haf­lega var lagt upp með, eða fram á mitt ár 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiðrétting

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár