Fyrstu kaupendur fá 15 milljarða króna frá ríkinu

Rík­is­sjóður færir fyrstu íbúð­ar­kaup­endum 15 millj­arða skatta­af­slátt á tíu ára tíma­bili, 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán verða bönnuð öllum nema flestum og sumir fá að nota sér­eign­ar­sparnað í að lækka mán­að­ar­legar afborg­anir. Þetta er „Fyrsta Fasteign“.

Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson kynntu aðgerðirnar í dag.
Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son kynntu aðgerð­irnar í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslenska ríkið ætlar að gefa fyrstu fast­eign­ar­kaup­endum 15 millj­arða króna skatta­af­slátt á tíu ára tíma­bili, kjósi þeir að nota sér­eign­ar­sparnað sinn til að kaupa hús­næði. Fyrstu fast­eign­ar­kaup­endum verður auk þess gert kleift að nota sér­eign­ar­sparnað til að lækka mán­að­ar­legar afborg­anir lána sinn til við­bótar við að greiða hann beint inn á höf­uð­stól þeirra.

Þeir Íslend­ingar sem eru ekki að kaupa fyrstu fast­eign mega áfram nota sér­eign­ar­sparnað sinn skatt­frjálst til að borga niður höf­uð­stól lána sinna í tvö ár til við­bótar við þann tíma sem áður hafði gilt um slíkt, eða fram á mitt ár 2019.

Þá verður lagt fram frum­varp sem bannar völdum Íslend­ingum að taka 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán, svokölluð Íslands­lán. Stór hluti þjóð­ar­innar verður reyndar und­an­skilin því banni því ungt fólk, tekju­lágir og ein­stak­lingar sem taka lán með lágu veð­setn­ing­ar­hlut­falli munu áfram geta tekið þessi lán. Því er alls ekki verið að afnema verð­trygg­ingu með neinum hætti með stjórn­valds­á­kvörð­unum.

Þetta eru aðal­at­riði þeirrar áætl­unar sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra kynntu í Hörpu í dag og ber nafnið „Fyrsta Fasteign“ (einnig kallað Fyrsta Faste1gn). Kynn­ingin var með svip­uðu sniði og fyrri kynn­ingar rík­is­stjórna Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks á þessu kjör­tíma­bili. Mikið var lagt í umbúð­irnar, Harpa notuð sem vett­vangur, Analytica var fengið til að reikna dæmi og Halldór Benjamín Þor­bergs­son hag­fræð­ingur til að kynna. Inni­haldið var þó rýr­ara en oft áður.

Fyrstu kaupendur fá skattleysi í lengri tíma en öðrum

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu á áætl­unin að gera fast­eigna­kaup auð­veld­ari og afborg­anir létt­ari fyrir nýja kaup­endur á fast­eigna­mark­aði. Sam­an­dregið þá snýst úrræðið um að veita fyrstu fast­eign­ar­kaup­endum 15 millj­arða króna skatta­af­slátt, eða um 1,5 millj­arð króna á ári. Allir Íslend­ingar sem eiga ekki fast­eign geta nýtt sér úrræðið til að eign­ast fyrstu fast­eign. Hámarks­af­láttur á hvern er 500 þús­und krónur á ári og því getur rík­is­styrkur hvers og eins að hámarki numið fimm millj­ónum króna.

Afslátt­ur­inn verður veittur ef hóp­ur­inn ákveður að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn til að safna fyrir útborgun í fast­eign, greiða niður höf­uð­stól fast­eignar eða nið­ur­greiða mán­að­ar­legar afborg­anir af fast­eign sam­hliða nið­ur­greiðslu höf­uð­stóls.

Þegar leið­rétt­ing verð­tryggðra lána, sem færði 80,4 millj­arða króna úr rík­is­sjóði til þess hóps Íslend­inga sem var með verð­tryggð lán á árunum 2008 og 2009, og hafði ekki nýtt sér önnur skulda­úr­ræði, var kynnt þá var sam­hliða greint frá því að Íslend­ingar mættu nota sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn í að greiða niður höf­uð­stól hús­næð­is­lána eða til að safna sér fyrir útborgun á fast­eign. Sú heim­ild átti að gilda fram á mitt næsta ár. Hún verður fram­lengd sam­kvæmt frum­varp­inu og rennur nú út 1. júlí 2019. Þá munu allir Íslend­ingar hafa haft tæki­færi til þess að nota sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn til að borga niður hús­næð­is­skuldir í sam­tals fimm ár.

Hin nýja leið sem býðst fyrstu fast­eign­ar­kaup­endum felur því í sér að þeim býðst skatt­leysi í fimm ár í við­bót við það sem öðrum býðst og þeir mega nýta sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn í að lækka afborg­anir af lánum sínum.

Samkvæmt kynn­ing­unni er gert ráð fyrir að 14 þús­und manns muni nýta sér þetta úrræði og bæt­ast þeir við þau 37 þús­und heim­ili sem eru þegar að nýta sér­eign­ar­sparnað sitt til að greiða niður hús­næð­is­lán. Alls munu því 51 þús­und heim­ili vera að nota sér­eign­ar­sparnað sinn til slíkra verka á næsta ári.

Ungt fólk getur áfram tekið Íslandslán

Í kynn­ing­unni sagði einnig að aðgerðin ætti að auð­velda ungu fólki á taka óverð­tryggð lán. Sú leið sem kynnt var felur í sér að ungt fólk má nota sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn til að nið­ur­greiða mán­að­ar­legar afborg­anir af hús­næð­is­lánum sínum með sér­eign­ar­sparn­aði sínum. Það getur þá greitt af óverð­tryggðu láni líkt og það væri að greiða af svoköll­uðu Íslands­láni, 40 ára verð­tryggðu jafn­greiðslu­láni.

Vert er að vekja athygli á því að það þarf þó ekk­ert að taka óverð­tryggt lán til að mega nota þessa leið. Það er því hægt að not­ast við sér­eign­ar­sparnað sinn til að greiða niður afborg­anir af verð­tryggðu láni líka. Meira að segja Íslands­láni (40 ára jafn­greiðslu­láni), enda mun ungt fólk mega taka þau áfram þótt hluta Íslend­inga verði meinað að gera það.

Búið var að boða að frum­varp yrði lagt fram í þess­ari viku þar sem dregið yrði veru­lega úr vægi verð­trygg­ingar. Í kynn­ing­unni í Hörpu var því haldið fram að um væri að ræða fyrsta alvar­lega skrefið sem stigið væri í þá átt frá því að verð­trygg­ing hafi verið sett á árið 1979.

Í þessu felst að hin svoköll­uðu Íslands­lán, 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán, verða tak­mörkuð. Almenna reglan verður sú að ekki verður heim­ilt að taka slík lán nema til 25 ára. Það verða hins vegar víð­tækar und­an­þágur frá þessu. Ungt fólk, tekju­lágir og ein­stak­lingar sem taka lán með lágu veð­setn­ing­ar­hlut­falli munu áfram mega taka 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán.

Þetta eru ansi stórir hópar og því munu Íslands­lánin áfram vera í boði fyrir tug­þús­undir Íslend­inga, þann hóp sem er lík­leg­astur er til að taka þessi lán. Þessar und­an­þágur er settar inn vegna þess að útreikn­ingar fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið gerðu ráð fyrir að 40 pró­sent þeirra sem taka Íslands­lánin muni ekki stand­ast greiðslu­mat á öðrum lánum.

Eygló ekki viðstödd

Athygl­is­vert var að Bjarni Bene­dikts­son lagði sér­staka áherslu á að úrræðið styrkti sér­eign­ar­stefn­una. Í kynn­ing­unni í dag var t.d. bent á að á árunum 2005 til 2014 hafi hlut­fall ungs fólks á leigu­mark­aði auk­ist veru­lega, úr tólf pró­sent í 31 pró­sent. Jafn­framt er fólk á aldr­inum 25-29 ára mun lík­legra til að búa í for­eldra­húsum nú en fyrir ára­tug. Í lok árs 2014 bjuggu 40 pró­sent Íslend­inga á þrí­tugs­aldri enn heima hjá mömmu og pabba.

Stefna Eyglóar Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur verið sú að hverfa frá sér­eign­ar­stefnu og hafa frum­vörp er varða hús­næð­is­mál, sem hún hefur lagt fram, verið þess eðlis. Athygli vakti að Eygló var ekki við­stödd kynn­ing­una í Hörpu í dag.

Breytt hlutverk séreignarsparnaðar

Síðustu þrjár rík­is­stjórnir hafa farið ansi nýjar leiðir í notkun á sér­eign­ar­sparn­aði. Rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur heim­il­aði útgreiðslu á slíkum sparn­aði svo fólk gæti greitt skuldir eða keypt sér hluti. Þær útgreiðslur voru skatt­lagðar og tryggðu rík­inu umtals­verðar tekjur sem ann­ars hefðu fallið til í fram­tíð­inni. Það má því segja að aðgerðin hafi fært skatt­greiðslur sem næstu kyn­slóðir hefðu með réttu átt til þeirra sem nú njóta þeirra. Í lok árs 2013 höfðu um 100 millj­arðar króna flætt úr sér­eign­ar­kerf­inu vegna þessa.

Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar kynnti þá leið að Íslend­ingar gætu notað sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn til að greiða inn á hús­næð­is­lán í þrjú ár skatt­frjálst. Sú leið hefur nú verið fram­lengd, líkt og kemur fram að ofan.

Rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar kynnti svo í dag við­bót­ar­notk­un­ar­mögu­leika fyrir ungt fólki. Í kynn­ingu á leið­inni var gert ráð fyrir því að fólk nýti úrræðið frá aldr­inum 25-34 ára og þá hafi þetta hverf­andi áhrif á eft­ir­laun þeirra. Það er þó ljóst að margir Íslend­ingar eru mun eldri en 25 ára þegar þeir byrja að greiða sér­eign­ar­sparnað og/eða að safna sér fyrir hús­næði. Óljóst er hvaða áhrif þetta mun hafa á líf­eyr­is­greiðslur þess hóps.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár