Samfylking sé tilbúin með frumvarp sem skyldar komufarþega til að dvelja í sóttvarnahúsi

Formaður Sam­fylk­ingar spurði for­sæt­is­ráð­herra hvort til stæði að breyta sótt­varna­lögum í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Ekki við núver­andi fyr­ir­komu­lag að sakast að mati for­sæt­is­ráð­herra, heldur við þá sem fylgja ekki reglum.

„Það er búið að reka rík­is­stjórn­ina til baka með þær aðgerðir sem hún taldi áður nauð­syn­legar, landa­mærin eru götótt og eft­ir­lit með sótt­kví er í skötu­líki. Á sama tíma boðar rík­is­stjórnin frek­ari opnun fyrsta maí,“ sagði Logi Ein­ars­son í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag er hann beindi fyr­ir­spurn til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

Logi sagði að áhrifa­rík­asta leiðin í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn væri sú að skylda fólk til að dvelja í sótt­varna­húsi við kom­una til lands­ins, leið sem hefði verið reynd en dæmd ólög­mæt. „Í kjöl­far dóms­ins féll rík­is­stjórnin frá þessum áformum á landa­mærum og virð­ist gæta mik­illar sundr­ungar innan stjórn­ar­innar um aðgerðir þrátt fyrir yfir­lýs­ingar hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra um annað,“ bætti hann svo við.

„Fyrst reglu­gerð­ina skorti laga­stoð er nauð­syn­legt að styrkja lögin og spurn­ingin er því sára­ein­föld, hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra, hyggst rík­is­stjórnin gera það eða til hvaða aðgerða ætlar rík­is­stjórnin að grípa svo komið sé hægt að koma í veg fyrir að við fáum far­ald­ur­inn í fullan vöxt aftur og aftur?“ spurði Logi.

Núverandi kerfi „skilvirkt og gott“

Katrín árétt­aði það að smitið sem rekja má nýj­ustu hóp­sýk­ing­arnar til kom inn til lands­ins áður en reglu­gerð um sótt­kví­ar­hótel tók gildi. „Mér finnst mik­il­vægt að halda því til haga að þau smit sem við erum að sjá núna og má rekja til smits sem kom yfir landa­mærin, til aðila sem hélt ekki sótt­kví, kom hingað til lands fyrir fyrsta apríl, bæði fyrir gild­is­töku reglu­gerðar um sótt­kví­ar­hótel sem og fyrir þess reglu­verks sem tók við af þeirri reglu­gerð þegar hún var dæmd ólög­mæt. Þannig að við verðum að hafa það í huga að það er kannski erfitt að draga of miklar álykt­anir um núver­andi ráð­staf­anir út frá þessu til­tekna smiti.“

Hún sagði núver­andi fyr­ir­komu­lag vera skil­virkt og gott en að fólk hefði ekki fylgt því, það væri miður, og að hún skildi gremju þeirra sem hefðu fylgt reglum. Eftir að skyldu­dvöl á sótt­kví­ar­hót­eli var dæmd ólög­mæt hefði verið leitað leiða til að grípa til ráð­staf­anna innan núver­andi lag­ara­mma.

Katrín sagði að ef það kæmi á dag­inn að núgild­andi reglur væru ekki full­nægj­andi þá væri rík­is­stjórnin reiðu­búin til að skoða breyt­ingar á lögum til að hægt verði að tryggja það að svona atvik end­ur­taki sig ekki. „Það er auð­vitað mik­ill skaði sem verður af einu svona broti og algjör­lega óásætt­an­legt hversu miklum skaða slík brot geta valdið,“ sagði hún í lok svars síns.

Tilbúinn með frumvarp

Logi spurði í kjöl­farið hversu langan tíma rík­is­stjórnin hygð­ist taka sér til að meta hvort ráð­ast þyrfti í breyt­ingar á lögum. Hann spurði einnig hvort hún hefði tryggt stuðn­ing við slíka laga­setn­ingu innan rík­is­stjórn­ar­innar, „vegna þess að þó að hún segir sjálf í fjöl­miðlum að það sé mikið sam­lyndi á því heim­ili þá veit ég ekki hvort maður á þá að sleppa því að taka mark á fjöl­mörgu stjórn­ar­liðum sem segj­ast ekki munu styðja þetta.“

Hann sagði Sam­fylk­ing­una vera til­búið með frum­varp sem skyldar fólk til að dvelja í sótt­varna­húsi. „En Sam­fylk­ingin er til­búin til að taka ómakið af rík­is­stjórn­inni og við erum til­búin með frum­varp á sótt­varna­lögum sem heim­ilar ráð­herra að skylda fólki sem hingað kemur í dvöl í sótt­varn­ar­hús. Það byggir á til­lögum Þórólfs og ég spyr því: Er hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra til­bú­inn til að styðja slíkt frum­varp ef það kemur fram strax og er hún til­búin til að hlusta á áfram á sér­fræð­inga okkar?“

Lagabreytingar til skoðunar síðan dómur féll

Katrín sagði sótt­varna­hús hafa verið notað tölu­vert af ferða­mönnum sem hingað koma. Þó hefðu mögu­legar laga­breyt­ingar verið til skoð­unar allt síðan dómur féll í mál­inu sem sneri að lög­mæti sótt­varna­húss.

„En eðli máls­ins sam­kvæmt vildu leita leiða innan gild­andi lag­ara­mma fyrst. Þessar ákvarð­anir, eins og allar aðrar í þessum far­aldri, eru til stöðugrar end­ur­skoð­unar þannig að ætla ekki að segja til um það nákvæm­lega hver hverjar lyktir máls­ins verða. En ég get full­vissað hátt­virtan þing­mann um það mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar að gera eins vel og við getum í því að kæfa niður þennan far­aldur,“ sagði Katrín að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár