Stjórnarflokkarnir hafa allir tapað fylgi síðan í fyrra

Þegar kosn­ingar eru á næsta leyti er gott að taka stöð­una miðað við síð­ustu skoð­ana­kann­anir.

Síðast var kosið til Alþingis fyrir tæpu ári síðan.
Síðast var kosið til Alþingis fyrir tæpu ári síðan. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur ákveðið að boða til kosn­inga eins fljótt og auðið er. Samkvæmt kosn­inga­lögum verða að líða um það bil sex vikur frá því að þing er rofið og kosn­ingar eru haldnar.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, mun taka á moti Bjarna á Bessa­stöðum klukkan 11:00 á morgun, laug­ar­dag. Bjarni mun eflaust ræða um þing­rof við for­set­ann. Guðni mun svo, ef öllum hefðum verður fylgt, óska eftir því við Bjarna að ráðu­neyti hans sitji áfram í starfs­stjórn þar til mynd­aður verður nýr meiri­hluti á Alþingi.

Það er þess vegna tíma­bært að taka punkt­stöðu á fylgi flokka sem sitja á Alþingi.

Síðasti þjóðarpúls 4. september

Þjóð­ar­púls Gallup er alla jafna gerður á mán­að­ar­fresti. Síðasti þjóð­ar­púls var birtur 4. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur allra flokka með 26,3 pró­sent fylgi á lands­vísu.

[links]Rík­is­stjórnin hafði 34 pró­sent fylgi, það lægsta sem rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar hafði mælst með síðan hún tók við 11. jan­úar. Það var í sam­ræmi við sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­ana þriggja, Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar.

Viðreisn mæld­ist með 4,8 pró­sent fylgi í þess­ari nýj­ustu könnun Gallup og Björt fram­tíð með 2,8 pró­sent fylgi. Til sam­an­burðar þá er miðað við að flokkur þurfi að fá fimm pró­sent atkvæða á lands­vísu til þess að ná kjöri á Alþingi.

Vinstri græn eru stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn sem fyrr með 19,5 pró­sent fylgi. Píratar eru næstir með 13,1 pró­sent fylgi, þá Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 10,8 pró­sent.

Flokkur fólks­ins mæld­ist með 10,6 pró­sent fylgi í þess­ari könnun, meira en Sam­fylk­ingin sem mæld­ist með 9,7 pró­sent fylgi.

Könnunin sem bjó að baki nýj­ustu nið­ur­stöðum var gerð dag­ana 10. til 30. ágúst síð­ast­lið­inn.

Myndin svipuð hjá MMR

Nið­ur­stöður nýj­ustu könn­unar MMR var birt 18. ágúst síð­ast­lið­inn. Þar mæld­ist fylgi flokk­ana svipað og hjá Gallup. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var stærstur með 24,5 pró­sent atkvæða, Vinstri græn næst stærst með 20,5 pró­sent, þá Píratar með 13,5 pró­sent, Sam­fylk­ingin með 10,6 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 10,1 pró­sent.

Stjórn­ar­flokk­arnir Viðreisn og Björt fram­tíð mæld­ust með minnst fylgi þeirra flokka sem eiga sæti á Alþingi. Viðreisn mæld­ist með 6,0 pró­sent fylgi, og Björt fram­tíð með 3,6 pró­sent.

Miðað við kosningar fyrir ári

Séu nýj­ustu kann­an­irnar bornar saman við nið­ur­stöðu kosn­ing­anna 2016 má sjá að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur minnkað aðeins, eins og sést á töfl­unni hér að neðan. Það sama má segja um hina flokk­ana sem setið hafa í rík­is­stjórn.

Á sama tíma hafa Vinstri græn og Sam­fylk­ingin bætt við sig fylgi síðan í kosn­ing­unum.

Flokkur Kosn­ingar 2016 MMR Gallup
Sjálf­stæð­is­flokkur 29,0% 24,5% 26,3%
Vinstri græn 15,9% 20,5% 19,5%
Píratar 14,5% 13,5% 13,1%
Fram­sókn­ar­flokkur 11,5% 10,1% 10,8%
Viðreisn 10,5% 6,0% 4,8%
Björt fram­tíð 7,2% 3,6% 2,8%
Sam­fylk­ingin 5,7% 10,6% 9,7%

Niðurstöður kosninga 2016, nýjasta könnun MMR og Gallup

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár