Frakkar vilja ekki Julian Assange

Francois Hollande, for­seti Frakk­lands, hefur hafnað beiðni Julian Assange, stofn­anda Wikileaks, um hæli í Frakk­landi. Assange skrif­aði opið bréf á vef dag­blaðs­ins Le Monde í dag og beindi orðum sínum beint til for­set­ans. Reuters greinir frá.

Wikileaks birti á dög­unum skjöl sem sýna fram á að Banda­ríkin hafi njósnað um síð­ustu for­seta Frakk­lands, þar á meðal Hollande. Það varð til þess að dóms­mála­ráð­herra Frakk­lands, Christane Taubira, kall­aði eftir því að Assange yrði veitt hæli.

„Líf mitt er í hættu. Frakk­land er eina landið sem getur veitt mér það skjól sem ég þarf gegn póli­tískum ákærum á hendur mér,“ skrif­aði Assange.

Assange hefur dvalið í þrjú ár í sendi­ráði Ekvador í London því hann er eft­ir­lýstur af sænskum yfir­völdum fyrir kyn­ferð­is­brot. Assange er hræddur um að ef hann kemst í hendur Svía muni þeir fram­selja hann til Banda­ríkj­anna þar sem yfir honum yrði að öllum lík­indum réttað vegna birt­ingar leyniskjala Banda­ríkja­stjórnar.

Skrif­stofa Hollande svarði beiðni Assange innan við klukku­tíma eftir að bréfið birt­ist á vefnum. „Ítarleg skoðun hefur leitt það í ljós að vegna laga­legrar stöðu Assange getur Frakk­land ekki orðið við beiðn­inni,“ segir í yfir­lýs­ingu frá for­seta­skrif­stof­unni.

Assange á barn með franskri konu sem hann seg­ist ekki hafa getað séð í fimm ár eða síðan hann var fyrst ákærður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár