Fjögur lönd til viðbótar ekki talin áhættusvæði

Alls eru sex lönd sem ekki eru talin áhættu­svæði; Danmörk, Noregur, Finnland, Þýska­land, Grænland og Færeyjar. Fólk sem kemur þaðan og hefur dvalið þar í tvær vikur sam­fleytt þarf ekki að fara í skimun við kom­una til lands­ins frá og með 16. júlí.

Frá fundinum í dag
Frá fund­inum í dag Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur bætt fjórum löndum á lista yfir þau lönd sem ekki eru álitin áhættu­svæði. Löndin eru Noregur, Danmörk, Finnland og Þýska­land. Þeir far­þegar sem þaðan koma og hafa verið þar sam­fleytt í tvær vikur þurfa því ekki að fara í skimun á landa­mær­unum eða í sótt­kví við kom­una til lands­ins. Fyrir voru Færeyjar og Grænland á lista yfir lönd sem ekki eru áhættu­svæði. Þetta kom fram á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna fyrr í dag.

Fram kom í orðum Þórólfs að frá því 15. Júní hafa tæp­lega 49 þús­und far­þegar komið til lands­ins og af þeim hafa rúm­lega 27 þús­und und­ir­geng­ist skimun. Af þeim hafa tólf greinst með virkt smit.

Þórólfur sagði lítið smit vera í íslensku sam­fé­lagi og að smit­hættan helst tengj­ast Íslend­ingum sem koma að utan sem og ferða­mönnum sem hafa mikið tengsla­net hér inn­an­lands. Hann sagði það mik­il­vægt að við værum til­búin til að bregð­ast við ef smit kæmi upp þó svo að þau séu fátíð í dag.

Áherslubreyting réttlætanleg

Hann sagði skimun­ina á landa­mær­unum hafa verið mjög gagn­lega og að æski­legt væri að henni yrði haldið áfram út júlí­mánuð áður en ákvörðun yrði tekin um það hvort hægt sé að breyta um áherslur, til dæmis um að hætta að skima ein­stak­linga frá þeim löndum sem smit­hætta er lítil. Á næstu dögum er lík­legt að fjöldi þeirra far­þega sem þurfa að fara í skimun fari yfir skimun­ar­getu á landa­mær­unum og því telur Þórólfur það rétt­læt­an­legt að breyta áhersl­unum.

„Ég tel að það sé rétt­læt­an­legt að flýta nýrri áherslu í skimunum. Fara í þetta fyrr, flýta því um eina til tvær vikur. Ég tel að við getum núna farið að hætta skimunum á þeim ein­stak­lingum sem koma frá þeim löndum þar sem smit­hætta er lítil,“ sagði Þórólfur og vís­aði þar til ein­stak­linga sem koma frá Noregi, Danmörku, Finn­landi, Þýska­landi, Færeyjum og Græn­landi.

Þeir ein­stak­lingar sem ekki þurfa að fara í skimun eða í sótt­kví eru beðnir um að fara var­lega fyrstu tvær vik­urnar eftir kom­una til lands­ins.

Breytingar á Keflavíkurflugvelli tilbúnar á fimmtudag

Páll Þór­halls­son, verk­efna­stjóri hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu sagði Isavia nú vera að und­ir­búa komu þeirra far­þega sem ekki þurfa að fara í skimun. „Farþegar úr þeim flug­vélum verða teknir inn á öðrum stað heldur en þeir sem fara í gegnum skimun­ar­svæðið. Það er gengið út frá því að flestir far­þegar í flug­vél­unum frá Kaup­manna­höfn eða Ósló eða þýsku borg­unum þurfi ekki að fara í skimun.“

Það sé þó alltaf mögu­leiki á því að far­þegar úr þessum vélum þurfi að fara í skimun, hafi þeir til dæmis ekki dvalið sam­fleytt í fjórtán daga í lönd­unum sem um ræðir. Þeir far­þegar verða þá leiddir inn á skimun­ar­svæðið. Páll sagði að þær breyt­ingar sem þarf að gera á Kefla­vík­ur­flug­velli vegna þessa eiga að vera til­búnar á fimmtu­dags­morgun þegar þetta verk­lag tekur gildi.

Hann fjall­aði einnig um nýja reglu­gerð dóms­mála­ráð­herra um komur frá ríkjum utan EES og EFTA ríkj­anna sem tekur gildi á morgun. Evr­ópu­sam­bands­ríkin komu sér saman um að leyfa komur far­þega frá 14 ríkjum utan Evrópu. Íbúum ríkj­anna á þeim lista verður heim­ilt að koma til Íslands frá og með morg­un­deg­inum en þurfa engu að síður að fara í skimun eða sótt­kví.

Seinni skimanir á höfuðborgarsvæðinu í Orkuhúsinu

Næstur tók til máls Óskar Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hann fjall­aði meðal ann­ars um seinni skimun sem er hluti af heim­komusmit­gát. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu væri starfs­stöð í Orku­hús­inu við Suð­ur­lands­braut sem sæi um skimanir milli klukkan 10 og 15. Fyrir ein­stak­linga sem búa utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er seinni skimun fram­kvæmd á heilsu­gæslu­stöðvum víða um land. Þeir sem þurfa að fara í slíka skimun fá tölvu­póst eða sms með öllum helstu upp­lýs­ingum um stað­setn­ingu og tíma skimun­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár