Sögulegar ræður - Punktar úr ræðum Obama og Pútín

Spennan var næstum áþreif­an­leg þegar Vladímir Pútín, for­seti Rúss­lands, tók sér stöðu í ræðupúlt­inu á sjö­tug­asta alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í gær. Hann tók til máls skömmu eftir að Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, flutti rúm­lega 42 mín­útna langa ræðu sína þar sem hann lagði mat á stöðu mála í heim­inum.

https://www.youtube.com/watch?v=AaJkTsy2SsQ

Pútín eyddi færri orðum í stöðu­matið og flutti ræðu sem var rúm­lega 23 mín­útur að lengd.

https://www.youtube.com/watch?v=q13yzl6k6w0

Ég fylgd­ist með ræð­unum í gær, og punktaði hjá mér það sem helst stóð upp úr, að mínu mati, og sýndi glögg­lega mein­ing­ar­mun­inn í mál­flutn­ingi, mik­inn per­sónu­legan mun á þessum risa­vöxnu táknum aust­urs og vest­urs, og spenn­una sem nú ríkir milli ríkj­anna tveggja.

Fyrir þingið var staða mála í Sýrlandi, Írak og Afganistan, og vandi flótta­manna frá þessum svæðum, helsta umræðu­efnið, enda hefur ekki tek­ist að ná samtöðu um hvernig skuli taka á vand­anum, bæði hvað varðar mót­töku flótta­manna og hern­að­að­gerðir. Sér­stak­lega er staðan alvar­leg í Sýrlandi, þar sem tæp­lega tíu millj­ónir íbúa, af um 22 millj­óna heildar­í­búa­fjölda, eru á flótta, bæði utan og innan landamæra.

Obama.


- Obama lagði áherslu á að Sam­ein­uðu þjóð­irnar hefðu ekki aðeins reynst gríð­ar­lega mik­il­vægur vett­vangur til þess að vernda heims­frið, heldur væru þær hluti af „lausn­inni“ á flóknum vanda sem nú væri verið að glíma við.

- Orðið Sýrland (Syria) koma níu sinnum fyrir í ræðu Obama. Fyrst um mið­bik ræð­unnar.

  • Assad (Bashar al-Assad, for­seti Sýrlands) kom fjórum sinnum fyrir. Hann sagði ekki hægt að vinna með manni sem varp­aði „sprengjum“ á sak­laus börn, af því hann teldi það rétt. Obama sagði Assad ekki geta verið hluta af „lausn­inni“. Hann þyrfti að víkja.

  • Orðið Rússland (Russia) kom 22 sinnum fyrir en Putin aldrei. Fá ein­stök mál­efni voru meira á vörum Obama en Rússland og sam­band Banda­ríkj­anna við Rússland. Obama tal­aði sér­tækt um sam­bandið við Rússland, út frá stöðu mála í Sýrlandi, og þeirri stað­reynd að Rússar væru að vinna með Assad og stjórn­ar­her Sýrlands. Hann sagð­ist ekki úti­loka sam­starf við Rússa um að stuðla að friði í Sýrlandi, en það sam­band þyrfti að byggj­ast á trausti. Þessi skila­boð voru aug­ljós­lega hápunkt­ur­inn í áhrifa­mætti ræð­unnar. Þrátt fyrir allt, þar á meðal við­skipta­þving­anir og mik­inn póli­tískan ágrein­ing um stöðu Rúss­lands í Úkraínu og Austur-Evrópu, þá væru Banda­ríkja­menn til í að vinna með Rússum í bar­átt­unni gegn Íslamska rík­inu. En á for­sendum Banda­ríkj­anna.

    Pútín.

  • Stöðumat Pútíns fólst öðru fremur í því, að leggja fram lausnir á stöðu mála í Sýrlandi. Hann sagði mik­il­vægt að horfa til vanda flótta­manna út frá rót vand­ans, sem væri að finna á stríðs­hrjáðum svæðum þar sem Íslamska ríkið og „fleiri hryðju­verka­hópar“ hefðu beitt mis­kunn­ar­lausu ofbeldi gegn óbreyttum borg­urum. Þeim hefði vaxið ásmegin, vegna þess að þjóðir heims­ins hefðu ekki viljað vinna með „lög­bundnum vörnum“ á þessum stríðs­hrjáðu svæðum, einkum Sýrlandi.

  • Orðið Sýrland (Syria) kom sjö sinnum fyrir í ræðu Pútíns. Hann tal­aði um að það væru gríð­ar­leg mis­tök hjá þjóðum heims­ins, sem gætu lagt til hern­að­ar­gögn og hern­að­ar­að­stoð, að vinna ekki með stórn­völdum í Sýrlandi að því að berj­ast við Íslamska ríkið. „Við ættum að við­ur­kenna það, og horfast í augu við það, að eng­inn annar en Assad og stórn­ar­her­inn í Sýrlandi, er að berj­ast við upp­gang Íslamska rík­is­ins í land­inu.“ Nauð­syn­legt væri að vinna með Assad í þess­ari bar­áttu, voru meg­in­skila­boð Pútíns í ræð­unni.

  • Banda­ríkin (United states) kom einu sinni fyrir í ræð­unni og Obama aldrei.

  • Pútín lagði áherslu á að lausnin á stöðu mála í Sýrlandi væri sú, að við­ur­kenna rétt stórn­ar­hers Sýrlands til þess að berj­ast við Íslamska ríkið og hefja sam­starf með honum. Það væru Rússar að gera, og það skipti miklu máli að aðrar þjóðir gerðu það líka.


Und­ir­ligg­andi í þessum sögu­legu ræðum Obama og Pútíns er staða sem þeir, sem hluti af áhrifa­miklaum þjóð­ar­leið­togum, geta ekki verið stoltir af. Alþjóða­sam­fé­lagið, ekki síst Evr­ópu­sam­bandið og Sam­ein­uðu þjóð­irnar, hafa gjör­sam­lega brugð­ist óbreyttum borg­urum í Sýrlandi, Írak og Afganistan, með því að bregð­ast ekki fyrr við vanda­máli sem upp­lýs­ingar voru komnar fram um. Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur mán­uðum, og raunar árum saman, bent á hratt vax­andi neyð flótta­manna frá þessum ríkjum. Samt hefur póli­tískur vett­vangur Sam­ein­uðu þjóð­anna ekki sýnt nægi­lega mikil við­brögð. Evr­ópu­sam­bandið vakn­aði ekki fyrr en mörg hund­ruð þús­und flótta­menn birt­ust við landa­mærin, eftir langa örvænt­inga­fulla flótta­ferð. Þrýst­ingur frá fjöl­miðlum og fólki hefur vafa­lítið haft mikið að segja, enda ömur­legra en orð fá lýst að sjá myndir af dánum börnum. Þúsundir hafa dáið á leið­inni til betra lífs í Evrópu, og því miður er staðan ekki góð fyrir vet­ur­inn, þar sem kuld­inn er versti óvin­ur­inn á stórum svæðum.

Því miður eru þessi við­brögð of svifa­sein, og ekki hefur gengið vel að stilla saman strengi og opna löndin til að bjarga sem flestum. Hugs­an­lega munu þessi ónægu og hægu við­brögð fara á spjöld sög­unnar sem mikil mis­tök, líkt og þegar alþjóða­sam­fé­lagið brást í Rúanda 1994 og einnig í stríð­inu á Balkanskaga, svo dæmi séu nefnd.

Það sama má segja um sér­tækar hern­að­ar­að­gerðir Banda­ríkja­manna, Breta og Frakka. Þær hafa öðru fremur verið gegn völdum skot­mörkum, og hafa margir sagt að vega­meira inn­grip, ekki síst á jörðu niðri, sé nauð­syn­legt til að stilla til friðar. En þetta er ekki ein­föld staða. Stundum er segt að hern­að­ar­póli­tíkin sé mest krefj­andi starf sem hægt er að sinna. Þá stendur valið um hversu mörgum manns­lífum þarf að fórna, til að vernda önnur, og ná loka­mark­miði um frið. Engin leið er ein­föld og stjórn­mála­mönnum er vandi á höndum.

Þrátt fyrir áhrifa­miklar ræður Obama og Pútíns, þar sem áherslu­punkt­arnir voru fyr­ir­sjá­an­legir, þá er lík­lega meiri von um að tal þeirra á milli - og trún­að­ar­manna þeirra - muni stuðla að lausn á þessu yfir­þyrm­andi vanda­máli sem þeir eyddu mestu púðri í. Eftir ræð­urnar áttu þeir 90 mín­útna langt spjall á fundi, sem Pútín óskaði eftir áður en hann kom til borg­ar­innar. Kannski færði það spjall alþjóða­sam­fé­lagið nær lausn, kannski ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár