Kosningaloforðið kostar milljarða en enginn veit ávinninginn

Lars Løkke Rasmussen.
Lars Løkke Rasmus­sen. Mynd: NILS MEILVANG / EPA

Eitt af lof­orðum danska Venstre flokks­ins fyrir þing­kosn­ing­arnar sl. sumar var að opin­ber störf (iðu­lega talað um nokkur þús­und) yrðu flutt frá Kaup­manna­höfn til staða í dreif­býl­inu. Í Danmörku hefur íbúum í dreif­býli fækkað mjög á und­an­förnum árum en að sama skapi fjölgað í þétt­býli, einkum í Kaup­manna­höfn. Þangað flytj­ast um eitt þús­und manns í hverjum mán­uði, stærstur hluti þess hóps frá fámenn­ari svæðum í land­inu. Þótt stjórn­mála­menn hafi árum saman lýst áhyggjum vegna þessa og ýmis­legt verið gert til að stemma stigu við straumnum í þétt­býlið hefur það litlu breytt.

Baráttumál Danska þjóðarflokksins

For­ystu­menn Danska Þjóð­ar­flokks­ins hafa lengi talað fyrir því að flytja opin­berar stofn­anir frá Kaup­manna­höfn. Fyrir þing­kosn­ing­arnar í júní sl. var þetta eitt helsta bar­áttu­mál flokks­ins án þess að til­teknar stofn­anir væru nefndar né tölur um fjölda starfa sem æski­legt væri að flytja frá höf­uð­borg­inni. Nokkrir af for­ystu­mönnum flokks­ins nefndu þá að rétt­ast væri að stofna nefnd til að koma með til­lögur, um fjölda stofn­ana og starfs­manna sem æski­legt væri að flytja og líka hvert þær stofn­anir færu.

Í ágúst hafði Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn hins­vegar skipt um skoðun, sagði með því að setja „flutn­inga­málið“ í ein­hverja nefnd myndi allt drag­ast og jafn­vel koðna niður. Flokk­ur­inn kynnti jafn­framt til­lögur um 12 stofn­anir sem hægt væri að flytja, talan 4000 starfs­menn var nefnd í þessum til­lögum. Einn af þing­mönnum Danska Þjóð­ar­flokks­ins sagði að til­lög­urnar væru settar fram til að ýta á rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen.

Stjórnin vill flytja 20 stofnanir og 3900 störf

Í byrjun októ­ber til­kynnti rík­is­stjórnin að 20 rík­is­stofn­anir, allar eða að hluta, yrðu fluttar frá Kaup­manna­höfn og um það bil 3900 störf. Störfin og stofn­an­irnar sem flutt verða dreifast á 38 staði, af ein­stökum stöðum flytj­ast flest störf til Næstved (395) en fæst (5) til Borg­und­ar­hólms. Meðal þeirra stofn­ana sem flytj­ast að hluta eða öllu leyti eru Danska skatt­stofan, Rekstr­ar­stofnun járn­braut­anna, Vinnu­eft­ir­litið, Umhverf­is­stofnun, Útlend­inga­stofnun og Sigl­inga­mála­stofnun svo fátt eitt sé nefnt.

Enginn veit kostnaðinn

Þegar ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um flutn­ing stofn­an­anna var kynnt var jafn­framt greint frá því að áætl­aður kostn­aður vegna flutn­ing­anna myndi nema 400 millj­ónum króna (u.þ.b. 7,6 millj­arðar íslenskir). Flestum er ljóst að sú upp­hæð er fjarri lagi. Útreikn­ingar og upp­lýs­ingar um kostnað vegna flutn­inga stofn­ana á síð­ustu árum sýna að 3 millj­arðar (57 millj­arðar íslenskir) gætu verið nær lagi og hugs­an­lega mun hærri. Mörgum þeirra stofn­ana sem ákveðið hefur verið að flytja fylgir mik­ill og flók­inn bún­aður, sem taka þarf niður og flytja á nýja stað­inn og koma þar fyrir. Víða þarf að breyta hús­næði, ef það er á annað borð fyrir hendi, áður en flutn­ing­arnir fara fram. Samkvæmt áætlun stjórn­ar­innar á flutn­ingum stofn­an­anna að ljúka fyrir árs­lok 2017.

Starfsfólkið vill ekki flytja

Lang­flestir starfs­menn þeirra stofn­ana sem fluttar verða ætla sér ekki að fylgja með á nýja stað­inn. Óform­legar kann­anir tveggja danskra dag­blaða sýna að 5 til 15 pró­sent starfs­manna við­kom­andi stofn­ana ætla að halda áfram á nýja staðnum, nokkur hópur er óákveð­inn. Verði raunin sú að svo fáir velji að flytja má reikna með að langur tími líði þangað til starf­semin verður komin í samt lag. Að þjálfa nýtt starfs­fólk tekur, í sumum til­vikum, langan tíma og kostar sitt. Vegna atvinnu­á­stands­ins má búast við að margir sæki um störf sem aug­lýst verða, fram­boð á vinnu­afli er mikið.

Til hvers og hvað vinnst

Ráð­herrar í rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen hafa, þegar spurt hefur verið um til­gang­inn, svarað því til að flutn­ingur stofn­ana sé póli­tísk ákvörðun sem stjórnin hafi fullt leyfi til að taka. Og til­gang­ur­inn sé að styrkja atvinnu­lífið á lands­byggð­inni. Kaup­manna­höfn hafi á und­an­förnum árum sogað að sér óeðli­lega stóran hlut opin­berrar starf­semi og þar séu mörg rík­is­fyr­ir­tæki og stofn­anir sem geti sem best verið ann­ars staðar í land­inu. Þessu er út af fyrir sig erfitt að mót­mæla segja efa­semd­ar­menn en spyrja hvort stað­setn­ing rík­is­stofn­ana víðs­vegar um land kalli ekki á mikil og kostn­að­ar­söm ferða­lög milli lands­hluta. Miðstöð stjórn­sýsl­unnar sé í Kaup­manna­höfn og til­fær­ingar eins og þær sem nú hafi verið ákveðnar breyti þar engu um.

Eins og að reka mörg heimili

Ein þeirra stofn­ana sem að hluta til verða fluttar frá Kaup­manna­höfn er Matvæla-og land­bún­að­ar­stofn­unin. Af rúm­lega 1200 störfum verða 392 flutt til tveggja staða á Suður-Jótlandi, Tönder og Augusten­borg. Stofn­unin er sú fyrsta sem lagt hefur mikla vinnu í að meta kostn­að­inn við flutn­ing­inn og þeir útreikn­ingar sýna að kostn­að­ur­inn muni nema 184 millj­ónum króna. Það er tæp­lega helm­ingur þeirrar upp­hæðar sem rík­is­stjórnin hefur áætlað að flutn­ingur 3900 starfa frá höf­uð­borg­inni muni kosta. Stærstur hluti kostn­að­ar­ins við flutn­ing Matvæla-og land­bún­að­ar­stofn­un­ar­innar er vegna við­gerða og end­ur­bóta á gömlu geð­sjúkra­húsi, Augusten­borg.

For­stjóri stofn­un­ar­innar sagði í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske aug­ljóst að rekstr­ar­kostn­að­ur­inn myndi aukast. „Það þekkja margir hvað það kostar að reka tvö heim­ili, ég tala nú ekki um þrjú eins og okkur er ætlað“. Samkvæmt inn­an­hússkönnun ætla 15 pró­sent starfs­fólks­ins að flytja með stofn­un­inni til Suður-Jótlands.

Menningarmálaráðherrann tvístígandi

Ein þeirra stofn­ana sem ákveðið hefur verið að flytja er Lista­manna­vinnu­stofur rík­is­ins. Hún er í gömlu pakk­húsi við Strand­göt­una á Krist­jáns­höfn, starfs­menn eru átta tals­ins. Þessi stofnun á að flytj­ast til Hels­ingja­eyrar, nánar til­tekið í Krón­borg­ar­kast­al­ann og gömlu skipa­smíða­stöð­ina þar skammt frá. Lista­manna­vinnu­stofur rík­is­ins hafa nokkra sér­stöðu í hópi þeirra stofn­ana sem ætl­unin er að flytja: fátt starfs­fólk en mjög pláss­frek og sér­hæfð vinnu­að­staða. Vinnu­stof­urnar eru tíu tals­ins, mis­stórar. Þeim er úthlutað til ákveð­ins tíma, iðu­lega tveggja til þriggja mán­aða í senn. Þar geta lista­menn und­ir­búið sýn­ingar, unnið pláss­frek verk og haft aðgang að full­komnum tækjum. Stofn­unin ræður einnig yfir nokkrum íbúðum sem lista­menn, danskir og erlendir, geta búið í sam­tímis því sem þeir vinna á verk­stæð­unum. Lista­menn hafa bent á að þetta geri lista­mönnum, t.d af lands­byggð­inni, kleift að kynn­ast stefnum og straumum í höf­uð­borg­inni sam­tímis sem þeir vinni að list sinni.

Að flytja verk­stæðin er talið kosta um 125 millj­ónir króna. Bertel Haarder menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur sagt að í ljósi þess hve fá störf sé um að ræða, en jafn­framt mik­inn kostnað vilji hann skoða sér­stak­lega hvort rétt sé að hætta við flutn­ing­inn. „Skyn­semin verður að ráða“ sagði ráð­herr­ann. Hann ætlar, fljót­lega eftir ára­mót, að hitta for­svars­menn vinnu­stof­unnar og fara með þeim yfir málið. „Við bruðlum ekki með fjár­muni til menn­ing­ar­innar“ sagði Bertel Haarder.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár