„Aldrei hugsunin að neitunarvaldinu yrði beitt með þessum hætti“

Fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Íslands segir beit­ingu Rússa á neit­un­ar­valdi eftir að stríðið í Úkraínu hófst skóla­bók­ar­dæmi um mik­il­vægi þess að breyta örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna. Breyt­ingin sem sam­þykkt var nýverið muni þó duga skammt.

Frá einum af fjölmörgum neyðarfundum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem haldnir hafa verið eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar. Allsherjarþingið samþykkti nýverið breytingartillögu á beitingu neitunarvalds fastaríkjanna fimm í öryggisráðinu.
Frá einum af fjöl­mörgum neyð­ar­fundum örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna sem haldnir hafa verið eftir að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst í febr­úar. Alls­herj­ar­þingið sam­þykkti nýverið breyt­ing­ar­til­lögu á beit­ingu neit­un­ar­valds fasta­ríkj­anna fimm í örygg­is­ráð­inu. Mynd: EPA

Tveimur dögum eftir að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst krafð­ist meiri­hluti fimmtán aðild­ar­ríkja örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna að Rússar drægju her­afla sinn til baka. Eitt stóð í vegi fyrir því: Neit­un­ar­vald Rússa.

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og stjórn­andi hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum og Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu, segir beit­ingu Rússa á neit­un­ar­valdi eftir að inn­rásin í Úkraínu hófst vera skóla­bók­ar­dæmi um mik­il­vægi þess að breyta örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna og fyr­ir­komu­lagi beit­ingar neit­un­ar­valds­ins. „Það var auð­vitað aldrei hugs­unin að neit­un­ar­vald­inu yrði beitt með þessum hætti, að ríki sem sjálf eru bein­línis hluti af átökum gætu beitt því til að koma í veg fyrir að örygg­is­ráðið tæki á þeirra málum,“ segir Ingi­björg Sólrún í sam­tali við Kjarnann.

Í lok apríl sam­þykkti alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna breyt­ing­ar­til­lögu um beit­ingu neit­un­ar­valds­ins sem er ætlað að beita fasta­ríkin fimm póli­tískum þrýs­ingi, ekki síst Rúss­landi eins og staðan í alþjóða­málum er vegna stríðs­ins í Úkraínu. 80 aðild­ar­ríki voru með­flutn­ings­að­ilar með til­lög­unni, þar á meðal Banda­ríkin og Bretland.

Breyt­ingin felst í því að ætli eitt ríkj­anna að beita neit­un­ar­valdi sínu þarf það að rétt­læta beit­ingu þess fyrir alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna sem kemur saman tíu dögum eftir beit­ingu neit­un­ar­valds og fjallar um ákvörð­un­ina. Vonir standa til að með þess­ari breyt­ingu beiti fasta­ríkin neit­un­ar­vald­inu í minna mæli, eða taki að minnsta kosti ígrund­aðri ákvarð­anir um beit­ingu þess. Breyt­ingin er ekki ýkja stór en breyt­ingar á neit­un­ar­vald­inu eru á sama tíma ekki algengar og því telst það til tíð­inda þegar slík er sam­þykkt.

Pólitískur þrýstingur, kostnaður og óþægindi

Ingi­björg Sólrún segir að þetta aukna sviðs­ljós sem fasta­ríkin eru sett í með breyt­ing­ar­til­lög­unni muni hins vegar ekki breyta miklu en sé fyrst og fremst til­raun til að beita póli­tískum þrýst­ingi. „Það er einnig verið að skapa póli­tískan kostnað við að beita neit­un­ar­vald­inu og að það hafi í för með sér póli­tísk óþæg­indi,“ segir hún.

Samkvæmt breyt­ing­ar­til­lög­unnar þurfa ríki sem beita neit­un­ar­valdi að skila ályktun til alls­herj­ar­þings­ins þar sem beit­ing valds­ins er rök­stutt. „En vand­inn er sá að það er ekki hægt að skikka ríki til að skila ályktun, þetta eru til­mæli. Ég er ekki að trúa því að Rússar muni skila skýrslu til alls­herj­ar­þings­ins. Ég er ekk­ert voða­lega bjart­sýn á að þetta breyti neinu,“ segir Ingi­björg Sólrún.

Breyt­ingin hefur þó haft örlítil áhrif. Á föstu­dag gaf örygg­is­ráðið út yfir­lýs­ingu um inn­rás Rússa í Úkraínu og er þetta í fyrsta sinn sem Rússar beita ekki neit­un­ar­valdi gegn yfir­lýs­ingum sem snúa að stríð­inu. Yfir­lýs­ingin þykir þó heldur veik þar sem ekki er talað beint um stríð, inn­rás eða átök, heldur aðeins milli­ríkja­deilu. Stuðn­ingur við Antonio Guterres, aðal­fram­kvæmda­stjóra Sam­ein­uðu þjóð­anna, er ítrek­aður í yfir­lýs­ing­unni en hann hefur talað fyrir frið­sam­legri úrlausn á stríð­inu í Úkraínu. Í færslu á Twitter segir Guterres að þetta sé í fyrsta sinn sem örygg­is­ráðið sé ein­róma þegar kemur að stríð­inu í Úkraínu og að það sé mik­il­vægt.

Neitunarvaldinu beitt yfir 200 sinnum frá stofnun öryggisráðsins

Meg­in­hlut­verk örygg­is­ráðs­ins er að við­halda friði og öryggi í heim­inum. Fimmtán ríki eiga full­trúa í ráð­inu hverju sinni en fimm ríki eiga fast sæti í örygg­is­ráð­inu: Banda­ríkin, Rússland, Kína, Frakk­land og Bretland, ríki sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa staðið uppi sem sig­ur­veg­ara í lok seinni heim­styrj­ar­ald­ar­innar.

Á þeim tæp­lega 80 árum sem örygg­is­ráðið hefur verið starf­andi hefur neit­un­ar­vald­inu verið beitt yfir 200 sinnum og oftar í seinni tíð. Kóreu­stríðið, lofts­lags­mál og mál­efni Ísraels og Palest­ínu eru dæmi um heims­mál þar sem neit­un­ar­vald­inu hefur verið beitt og nú síð­ast, stríðið í Úkraínu.

Fasta­ríkin fimm hafa verið með neit­un­ar­vald í ráð­inu frá upp­hafi og hefur það reglu­lega verið gagn­rýnt. Þrátt fyrir gagn­rýn­ina hafa fáar breyt­ingar verið gerðar á fyr­ir­komu­lagi þess. Reglu­lega kemur upp sú umræða hvort fjölga eigi fasta­ríkjum, án þess þó að fjölga ríkjum með neit­un­ar­vald. Ríki eins og Japan Þýska­land og Brasilía hafa verið nefnd í þessu sam­hengi. Þá hefur það komið til tals að fjölga heild­ar­fjölda ríkja í ráð­inu, sér­stak­lega Afr­íku­ríkjum. Engar af þessum breyt­ingum hafa þó verið teknar til umfjöll­unar af alvöru og segir Ingi­björg Sólrún að það sem þvælist fyrir í allri þess­ari umræðu sé einmitt neit­un­ar­valdið.

„Þetta setur Sam­ein­uðu þjóð­ina í mjög erf­iða stöðu og minnkar til­trú fólks á Sam­ein­uðu þjóð­unum og því póli­tíska afli sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar ættu að hafa,“ segir hún.

Öryggisráðið hafi brugðist

Svo virð­ist sem Guterres hafi einnig misst til­rúna á eigin stofnun þegar hann sagði örygg­is­ráð­inu hafa mis­tek­ist að koma í veg fyrir eða enda stríðið í Úkraínu. „Þetta veldur von­brigðum, von­leysi og reiði. En menn og konur innan Sam­ein­uðu þjóð­anna vinna á hverjum degi fyrir fólkið í Úkraínu með aðstoð frá mörgum úkra­ínskum sam­tökum sem sýna mikið hug­rekki,“ sagði Guterres á blaða­manna­fundi í Kænu­garði eftir heim­sókn sína til borg­ar­innar í lok apríl þar sem hann kynnti sér aðstæður og fund­aði með Volodomír Zelenskí, for­seta Úkraínu.

Ingi­björg Sólrún segir að taka þurfi orðum Guterres alvar­lega en á sama tíma vonar hún að hann muni beita sér meira á næstu árum.

„Það sem er kost­ur­inn núna er að Guterres er kom­inn á sitt seinna kjör­tíma­bil og það er alltaf auð­veld­ara fyrir aðal­rit­ar­ann að beita sér á seinna kjör­tíma­bili, það getur vel verið að hann geti beitt sér af miklum þunga. Partur af vand­anum er að emb­ætti aðal­rit­ar­ans er of veikt, og það hefur ekk­ert með ein­stak­ling­ana að gera, það er ekki nógu mikið vald sem honum er fengið af aðild­ar­ríkj­unum.“

Ingi­björg Sólrún vonar að Guterres verði skýr í sinni afstöðu og beiti sér í auknum mæli. „En hann þarf líka að halda tal­sam­bandi, það er mik­il­vægt. Á end­anum þarftu að semja við óvini þína í svona átökum.“

Óttast að stríðið í Úkraínu dragist á langinn

Rúmir tveir mán­uðir eru síðan inn­rás Rússa í Úkraínu hófst og segir Ingi­björg Sólrún ótt­ast að stríðið drag­ist á lang­inn, flest bendi til þess. „Fyrst að það var ekki samið fljót­lega og eftir að heim­ur­inn er búinn að horfa upp á þessa hrylli­legu stríðs­glæpi Rússa, þá er Zelenskí ekki í stöðu til að geta samið og Rúss­arnir virð­ast alls ekki vera til­búnir til þess heldur.“

„Ég held að alþjóða­sam­fé­lagið verði að beita Rússa auknum þving­unum, það verður að þvinga þá til að láta af þessum árásum og stríðs­glæpum í Úkraínu, og þær munu koma við almenn­ing í Evrópu, þar á meðal okkur,“ segir Ingi­björg Sólrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár