Fjöldi Íslendinga á SU-styrk í Danmörku hefur tvöfaldast á áratug

Fjöldi Íslend­inga sem þiggja SU-styrk frá danska rík­inu hefur tvö­fald­ast á innan við tíu árum. Árið 2006 fengu 588 Íslend­ingar SU-styrk (Statens Udd­ann­el­sesstøtte) í einn til tólf mán­uði. Á árinu 2014 fengu 1.084 Íslend­ingar slíkan styrk í einn til tólf mán­uði og það sem af er árinu 2015 hafa 1.114 Íslend­ingar fengið styrkin í einn til níu mán­uði. Þetta kemur fram í svari Lána­sjóðs íslenskra náms­manna (LÍN) við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Ef allir íslensku náms­menn­irnir sem þiggja SU-styrk fá fullan slíkan styrk þá er danska ríkið að greiða um 1,5 millj­arð króna í styrki til íslenskra náms­manna á ári.

109 þúsund krónur á mánuði

Morg­un­blaðið greindi frá því fyrir tveimur vikum síðan að LÍN hefði borist tölu­vert færri umsóknir um náms­lán fyrir skóla­árið 2015-2016 en skóla­árið á undan. Þar var haft eftir Hrafn­hildi Ástu Þor­valds­dóttur, fram­kvæmda­stjóra LÍN, að engin ein­hlít skýr­ing væri á þess­ari fækkun. Ein væri sú að áhrif efna­hags­hruns­ins væru að minnka, en í kjöl­far þess voru atvinnu­lausir á Íslandi hvattir af stjórn­völdum til að fara frekar í nán en að vera á atvinnu­leys­is­bótum. Auk þess væri íslenskum SU-styrk­þegum í Danmörku að fjölga stöðugt, en þeir sem þiggja slíkan styrk geta ekki fengið náms­lán frá LÍN ofan á styrkin.

SU-styrk­ur­inn er sem stendur allt að 5.753 danskar krónur á mán­uði, eða um 109 þús­und íslenskar krónur á mán­uði. Hann þarf ekki að end­ur­greiða.

Uppfylla þarf ákveðin skilyrði

SU er fjár­hags­að­stoð frá danska rík­inu. Uppfylla þarf ákveðin skil­yrði til að eiga rétt á SU-styrk. Náms­maður sem þiggur slíkan þarf til að mynda að vera á ákveðnum aldri, námið sem hann stundar þarf að vera við­ur­kennt sem styrk­hæft, við­kom­andi þarf að vera danskur rík­is­borg­ari og virkur í námi.

Und­an­tekn­ingar eru frá þessum skil­yrðum, og þær hafa fjöl­margir Íslend­ingar nýtt sér í gegnum tíð­ina. Erlendir rík­is­borg­arar geta nefni­lega átt rétt á SU-styrknum að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum. Hægt er að lesa um þau hér, en á meðal þeirra eru að við­kom­andi sé rík­is­borg­ari lands sem til­heyrir Evrópska efna­hags­svæð­inu, starfi í Danmörku í 10-12 klukku­stundir á viku, hafi búið þar í fimm ár hið minnsta, sé giftur eða í skráðri sam­búð með dönskum rík­is­borg­ara eða hafi flutt til Dan­merkur með for­eldrum sínum.

Það er hins vegar hægt að sækja um frek­ari fram­færslu frá SU sem er í formi láns sem þarf að end­ur­greiða danska rík­inu.

Fjöldin hefur tvöfaldast

Kjarninn óskaði eftir yfir­liti frá LÍN um þann fjölda íslenskra rík­is­borg­ara sem hefur fengið SU á tíma­bil­inu 2003 til 2015. Árið 2003 fengu 464 Íslend­ingar styrkin í einn til níu mán­uði. Þremur árum síðar, árið 2006, fengu 588 Íslend­ingar hann í einn til tólf mán­uði. Sá fjöldi hélst nokkuð stöðu­fgur fram á árið 2012 þegar styrk­þeg­arnir voru orðnir 909. Árið 2013 fór fjöldi þeirra Íslend­inga sem þáðu SU-styrk í einn til tólf mán­uði í fyrsta sinn yfir eitt þús­und, þegar þeir voru 1.015. Sú þróun hélt síðan áfram árið 2014, þegar þeir voru 1.084, og það sem af er þessu ári þegar 1.114 Íslend­ingar hafa þegið SU-styrk í einn til níu mán­uði.

Ef allir íslensku náms­menn­irnir sem þiggja SU-styrk eru að fá fullan styrk þá er danska ríkið að styrkja þá um 121,3 millj­ónir króna á mán­uði, eða um 1,5 millj­arða króna á ári. Vert er að taka fram að Kjarninn hefur ekki upp­lýs­ingar um hvort að allir íslensku styrk­þeg­arnir fái fullan SU-styrk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár