Fillon sekkur, Macron stekkur

François Fillon for­seta­fram­bjóð­andi Repúblik­ana í Frakk­landi er í vondum málum vegna „Penelope Gate“.

François Fillon for­seta­fram­bjóð­andi Repúblik­ana í Frakk­landi er í vondum málum og er boð­aður þann 15. mars til rann­sókn­ar­dóm­ara þar sem opin­ber rann­sókn mun vænt­an­lega hefj­ast. Stuðn­ings­menn Juppé vilja að hann taki við. Á sama tíma nálg­ast fyrrum efna­hags­ráð­herra François Hollande, Emmanuel Macron sem er sjálf­stæður fram­bjóð­andi, Marine Le Pen frá Þjóð­ern­is­fylk­ing­unni í skoð­ana­könn­unum. Hann kynnti stefnu sína í gær. 

Á mið­viku­dags­morgun aflýsti François Fillon heim­sókn sinni á land­bún­að­ar­sýn­ing­una í París sem nú stendur yfir og hver ein­asti fram­bjóð­andi til for­seta í Frakk­landi heim­sækir og boð­aði til blaða­manna­fundar á hádegi sem hófst hálf­tíma á eftir áætlun. Margir voru farnir að búast við stór­tíð­indum og spurn­ingar vökn­uðu um hvort fram­bjóð­and­inn myndi draga sig út úr bar­átt­unni. Þegar Fillon loks­ins birt­ist til­kynnti hann að rann­sókn­ar­dóm­ari hefði boðað hann til yfir­heyrslu og að opin­ber rann­sókn færi vænt­an­lega af stað. Fillon ætlar þó ekki að hætta við fram­boð sitt og sakar dóms­kerfið um að ofsækja sig fyrir hönd vald­hafa. Hann tal­aði um opin­bera póli­tíska aftöku og að for­seta­kosn­ing­arnar væru hnepptar í gísl­ingu. Fillon sagði að hann myndi ekki láta undan og drægi sig ekki í hlé, aðeins dómur kjós­enda væri mark­tækur. Staðan er þó sú að engar sýni­legar sann­anir hafa fund­ist sem sýna að Penelope eig­in­kona hans og tvö af börnum þeirra, Marie og Charles, hafi leysti þá vinnu af hendi sem þeim var greitt fyrir. Þar stendur hníf­ur­inn í kúnni, hér er ekki aðeins rætt um þá stað­reynd að þing­menn ráða fjöl­skyldu­með­limi sem aðstoð­ar­menn heldur einnig greiðslur fyrir óunna vinnu og því fjár­svik.

Við­brögðin voru marg­vís­leg í gær eftir fund­inn og greini­lega komnir brestir í stuðn­ing framá­manna í flokknum. Bruno Le Maire sem var einn af sex mót­fram­bjóð­endum Fillons í for­kosn­ing­unum í nóv­em­ber sagði sig úr kosn­inga­stjórn­inni í gær ásamt nokkrum þing­mönnum úr sínum stuðn­ings­manna­hópi. UDI sem eru sam­tök hægri­m­iðju­manna sem voru um það bil að skrifa undir sam­komu­lag við Repúblik­ana um skipt­ingu kjör­dæma í þing­kosn­ing­unum í júní sem fylgja for­seta­kosn­ing­unum, hafa dregið sig í hlé og koma saman eftir helgi til að taka form­lega ákvörðun hvort þeir hætti stuðn­ingi við Fillon. Fleiri þing­menn Repúblik­ana hafa lýst því yfir að þeir telji ófært að Fillon haldi áfram og hvetja hann til að hætta. Annar skorar á flokk­inn að finna nýjan fram­bjóð­anda. Flóttinn hélt svo áfram í gær þegar talan var komin upp í sex­tíu þing­menn sem neita að halda áfram, tveir aðstoð­ar­kosn­inga­stjórar hættu ásamt einu tutt­ugu starfs­mönnum á aðal­skrif­stofu fram­bjóð­and­ans.

Í öllum fjöl­miðlum er rætt um málið og fáir eru til að verja fram­bjóð­and­ann. Í leið­ara síð­deg­is­blaðs­ins Le Monde segir meðal ann­ars að það séu ekki rann­sókn­ar­dóm­arar sem hneppi kosn­ing­arnar í gísl­ingu heldur François Fillon sjálfur með því að setja sig í stöðu fórn­ar­lambs. Kosn­inga­bar­áttan snýst ekki lengur um að ræða fram­tíð lands­ins sem almenn­ingur bíði eftir heldur hvort hann sé hæfur eða ekki og hvort hann eigi að hætta. Kosn­inga­stjórn Fillons hefur ákveðið að efna til stuðn­ings­göngu á sunnu­dag en þetta fer mjög illa í suma í flokknum sem telja það ófært að stefna almenn­ingi gegn dóm­urum og eru hræddir um að til upp­þota komi. Einnig tala menn um aðförð að lýð­veld­inu, að fram­bjóð­andi neiti að við­ur­kenna dóms­valdið og það sá sem á sam­kvæmt stjórn­ar­skrá fimmta lýð­veld­is­ins á að vera verj­andi þess og trygg­ing sjálf­stæðis þess verði hann kos­inn. Jafnvel hefur verið talað um „Trump-lega“ aðferða­fræði Fillons. Í fréttum í morgun er kemur fram að harð­asti kjarn­inn í kringum Fillon sem ætlar að smala fólki fyrir sunnu­dags­göng­una séu þeir sem börð­ust hvað mest gegn sam­kynja hjú­skap­ar­lögum sem sam­þykkt voru 2013.

Nú er að nýju talað um „plan-B“, að ein­hver annar taki við sem fram­bjóð­andi og stuðn­ings­menn Alain Juppé fyrrum for­sæt­is­ráð­herra eru farnir að safna með­mæl­endum fyrir hann en í Frakk­landi geta aðeins kjörnir full­trúar mælt með for­seta­fram­bjóð­anda og þarf 500 und­ir­skriftir. Meðmælum þarf að skila 17. mars og því er tím­inn knappur. Sömu­leiðis eru tæpir tveir mán­uðir í fyrri umferð kosn­ing­anna og því stuttur tími fyrir nýjan fram­bjóð­anda í kosn­inga­bar­átt­una. Þar er annað vanda­mál því Nicolas Sarkozy fyrrum for­seti er sagður þver­taka fyrir að Juppé verði í fram­boði. Þetta gæti skýrst um helg­ina.

Á sama tími kynnir Emmanuel Macron, fyrr­ver­andi efna­hags­ráð­herra og fram­bjóð­andi hreyf­ing­ar­innar „En marche“ sem útleggst: Á Hreyf­ingu, stefnu sína en hann hafði verið gagn­rýndur fyrir að hafa enga. Hann vill koma land­inu á hreyf­ingu og not­aði aðferðir Barak Obama við und­ir­bún­ing­inn. Mánuðum saman hafa sjálf­boða­liðar gengið í hús og talað við fólk. Hér er á ferð­inni frjáls­lyndur sós­íal-demókrati sem minnir dálítið á Tony Blair í Bret­landi og Gerard Schröder Þýska­lands fyrir tutt­ugu árum. Hann vill bylta atvinnu­leys­is­bóta­kerf­inu og inn­leiða ákveðið „flexi-öryggi“ sem gæti minnt á skand­in­av­íska aðferða­fræði. Einnig á að sam­eina eft­ir­launa­kerfið í eitt sem myndi þýða að opin­berir starfs­menn missa sitt sér­rétt­inda­kerfi. Macron vill sið­væða stjórn­mál og meðal ann­ars banna þing­mönnum að ráða fjöl­skyldu­með­limi sem kemur lík­lega ekki á óvart eins og umræðar er. Emmanuel Macron sem hefur verið að síga fram úr Fillon í skoð­ana­könn­unum síðan Pen­elopegate komst í umræð­una fyrir mán­uði og nálg­ast nú Marine Le Pen sem er með 26-27 pró­sent í könn­unum. Macron er með um 25 pró­sent. Þetta er einnig að þakka sam­komu­lagi sem hann gerði við miðju­mann­inn François Bayrou í síð­ustu viku. Bayrou hefur í þrí­gang verið for­seta­fra­mjóð­andi og náði hæst í 18 pró­sent 2007. Með honum fylgir smá­flokk­ur­inn Modem (Modern Democrate) og um fimm pró­senta fylgi. Eins og staðan er nú lítur sem sagt allt út fyrir að Macron verði í annarri umferð for­seta­kosn­ing­anna 7. maí og mæti Le Pen og þar myndi hann vinna hana með yfir­burðum, um 60 pró­sentum. Þetta er sögu­legt því þá yrðu hvorki fram­bjóð­andi hins klass­íska hægri flokks né vinstri í annarri umferð.

Annað sem er ein­kenni­legt er að þó að skrif­stofu­stjóri Marine Le Pen sem var á launum sem aðstoð­ar­maður á Evr­ópu­þing­inu sæti nú rann­sókn og að Le Pen hafi neitað að mæta til dóm­ara og svara spurn­ingum og notar til þess þing­helgi þá hefur það í augna­blik­inu ekki áhrif í skoð­ana­könn­unum. Nú hefur hins vegar Evr­ópu­þingið svipt hana þing­helgi til að svara fyrir sakir í öðru máli, hið svo­kall­aða „Tweet-mál“. Þar er Le Pen ákærð fyrir að hafa dreift myndum frá Daech sem sýndu aftöku gísls sem hún tengdi við múslima. Þetta breytir þó engu um ásak­anir um fjár­drátt á Evr­ópu­þing­inu en gæti þýtt að þing­helg­inni yrði aflétt að nýju og að Marine Le Pen geti ekki skot­ist undan dóm­urum frekar en aðrir. Hún hefur eins og Fillon talað um póli­tískar ofsóknir vald­hafa þó rann­sóknin renni undan rifjum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Pistill­inn birt­ist einnig á vef­svæði Berg­þórs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár