Trump trónir á toppnum hjá repúblikönum en óvissan eykst hjá demókrötum

Kosið er í tveimur ríkjum í for­vali stóru flokk­anna í Banda­ríkj­unum fyrir for­seta­kosn­ingar þar í haust. Demókratar kjósa í Nevada og repúblikanar í Suður-Karólínu. Bryndís Ísfold metur stöð­una fyrir næstu umferð for­vals­ins.

Íbúar Suður-Karólínu eru flestir stuðningsmenn Donald Trump í forvali repúblikana.
Íbúar Suður-Karólínu eru flestir stuðn­ings­menn Donald Trump í for­vali repúblik­ana.

Í dag heldur for­seta­for­vals-mara­þonið áfram í Banda­ríkj­unum og verður þá kosið í tveimur ríkjum. Í Nevada kjósa demókratar en repúblikanar kjósa í Suður-Karólínu. Á þriðju­dag­inn í næstu viku snýst svo dæmið við. Clinton og Sanders mæl­ast nú með hnífjafnt fylgi og ljóst að bæði fram­boðin eru hætt að fara mjúkum höndum um hvort annað. Á sama tíma virð­ist fátt geta hreyft við fylgi Trumps í Suður-Karólínu, en í þess­ari viku kall­aði hann páfann í Róm smán­ar­legan og sak­aði George W. Bush um að hafa logið þjóð­ina í stríð. Spennustigið hefur því að minnsta kosti hækkað frá því var kosið í New Hamps­hire fyrr í mán­uð­unum.

Það var ekki til að létta spenn­una í stjórn­mál­unum þegar til­kynnt var að hæsta­rétt­ar­dóm­ar­inn íhaldsami Antonin Scalia hefði lát­ist í síð­ustu viku. Stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna gerir ráð fyrir að sitj­andi for­seti skipi fljótt annan í stað þess sem hættir eða hrein­lega deyr í emb­ætti, eins og er algeng­ara, því skipað er til lífs­tíðar. Því hefur fátt annað kom­ist að hjá fjöl­miðlum en hvern Obama muni skipa í stað hans. For­ystu­menn í öld­unga­deild­inni, þar sem repúblikanar eru í meiri­hluta, voru fljótir að lýsa því yfir að þeir myndu ekki sam­þykkja neinn sem Obama myndi til­nefna, en sam­þykki öld­unga­deild­ar­innar þarf til að skipa nýjan dóm­ara. Þetta verður í þriðja sinn sem Obama til­nefnir nýjan dóm­ara og mun nýr dóm­ari hafa mikil áhrif á nið­ur­stöður dóms­ins, ef við hann bæt­ist annar frjáls­lyndur vinstri sinn­aður dóm­ari. Ef öld­unga­deildin neitar að sam­þykkja þann sem Obama til­nefnir, sem engin for­dæmi eru fyrir, verður hæsti­réttur klof­inn í fjölda mála en þar sitja að jafn­aði níu dóm­arar, en eftir frá­fall Scalia eru þeir átta. Þegar það ger­ist gildir nið­ur­staða neðri dóm­stigs­ins og hæsta­réttur er þannig lamaður í fjölda ágrein­ings­mála. For­seta­fram­bjóð­end­urnir hafa nú þegar blandað sér af fullum krafti í þessa umræðu.

Í fljótu bragði virð­ist staðan hjá demókrötum vera að breyt­ast á þann veg að Bernie Sanders sé að ná að byggja upp mikla stemm­ingu í kringum fram­boð sitt, sem hann lýsir sem póli­tískri bylt­ingu, og virð­ist fylgi hans rjúka upp með hverri könn­un­inni. Nið­ur­stöð­urnar úr fyrstu tveim ríkj­unum, þar sem Sanders jafn­aði fyrra og sigr­aði hið síð­ara með miklum yfir­burðum, hafa sett nýjan tón í kosn­inga­bar­átt­una. Fyrir örfáum mán­uðum hafði Hillary Clinton um 30 pró­sentu­stiga for­skot en það er komið niður í 5-15 pró­sentu­stig. Hjá repúblikönum er styrkur Trump í könn­unum mjög afger­andi í flestum ríkjum, sem og á lands­vísu, en þar mælist hann með 10-30 pró­sentu­stiga mun, mis­mun­andi eftir könn­unum. Það sem hins vegar eykur á óviss­una er að kann­anir hafa ekki verið mjög góðar í að spá fyrir um nið­ur­stöður kosn­ing­anna. Sér­stak­lega átti það við í Iowa for­val­inu. Ástæðan er sú að þar er kosn­inga­fyr­ir­komu­lagið svo­kall­aðir kjör­fundir (e. Caucus) þar sem fólk kemur saman í stórum sölum víðs­vegar um ríkið og raðar sér saman í hópa eftir því hvern þau ætla að kjósa, auk þess sem óskráðir kjós­endur geta skráð sig til að kjósa á kjör­dag. Erfitt hefur reynst að spá fyrir um slíkar nið­ur­stöður og nú á laug­ar­dag munu demókratar einmitt velja á milli Clinton og Sanders með þess­ari aðferð.

Nevada er næst

Í Nevada búa tæpar þrjár millj­ónir manna og ólíkt Iowa og New Hamps­hire er sam­setn­ing íbúa fjöl­breytt­ari, en kjós­endur af öðrum kyn­þætti en hvítum eru 39,4% af kjós­endum í rík­inu. Þar af eru þeir sem eru af asískum upp­runa 11% og þeir sem ætt­aðir eru frá Rómönsku-Ameríku um 21% kjós­enda. Demókratar hafa notið stuðn­ings fólks af öðrum kyn­þætti en hvítum í miklum meiri­hluta, sér­stak­lega í for­seta­kosn­ingum síð­ustu ára­tugi.

Inn­flytj­enda­mál skipta marga kjós­endur miklu máli. Bæði Clinton og Sanders vilja setja lög sem tryggja ólög­legum inn­flytj­endum, sem eru rúm­lega 11 millj­ónir í Banda­ríkj­unum, leið til að sækja um rík­is­borg­ara­rétt á lög­legan hátt án þess að þurfa að fara úr landi. Á repúblikana­hlið­inni er tölu­vert annað upp á ten­ingnum, en dig­ur­barka­leg­ast talar Trump sem vill hrein­lega láta henda öllum ólög­legum inn­flytj­endum út úr land­inu og vill láta reisa múr á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó til að halda inn­flytj­endum frá. Til við­bótar vill hann banna múslimum að koma til lands­ins.

Kjós­endur í Nevada hafa gegnum tíð­ina kosið bæði demókrata og repúblik­ana sem for­seta, þó sögu­lega hafi þeir verið hlið­holl­ari repúblikönum. Nevada hefur kosið þann sig­ur­vegar­ann í for­seta­kosn­ingum nær óslitið síðan 1972, aðeins með einni und­an­tekn­ingu. Kjós­endur í Nevada eru um 1,2 milljón, þar af eru 471 þús­und skráðir demókratar og um 423 þús­und skráðir repúblikanar, restin er svo óháð. Árið 2012 sigr­aði Obama með 531 þús­und atkvæðum á móti 463 þús­und sem Mitt Romney hlaut. Af þeim 17 sýslum (counties) sem eru í Nevada eru vann þó Obama aðeins í tveim, en þær eru lang­fjöl­mennastar: Clark þar sem borgin Las Vegas er og í Washoe, sem borgin Reno til­heyrir og dugar sigur í þessum tveim sýslum til að sigra ríkið í heild.

Fáar góðar kann­anir hafa verið gerðar þar sem lík­legir þátt­tak­endur í kjör­fundi demókrata hafa verið spurðir um afstöðu sína um Sanders og Clinton. Ein könnun var tekin í lok des­em­ber og sýndi hún Hillary með 23 pró­sentu­stiga for­skot. Ný könnun sem tekin var fyrstu vik­una í febr­úar sýnir hins vegar algjört jafn­tefli milli þeirra, með 45% hvort um sig.

Hjá repúblikönum í Nevada trónir Trump á toppnum með tæp 40% og tutt­ugu pró­sentu­stigum neðar er Cruz með 20,6%. Cruz er enn að glíma við efa­semda­fræ sem Trump hefur verið að dreifa um að vegna þess að hann sé fæddur í Kanada sé hann ekki gjald­gengur fram­bjóð­andi. Báðir for­eldrar Cruz voru banda­rískir rík­is­borg­arar á þessum tíma en nú hefur dóm­stóll í Chicago tekið málið upp og ætlar sér að dæma um hvort fram­boðið sé lög­mætt. Stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna talar um að fram­bjóð­endur þurfi að vera „natural born citizen“, sem lög­skýrendur deila um hvað þýði í raun og veru.

Rubio fylgir fast á hæla Cruz í könn­unum með 19%, Kasich, Carson og Bush eru svo með eins stafs tölu hver. Kosið verður næsta þriðju­dag.

Bill Clinton, eiginmaður Hillary og fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, flytur erindi í Las Vegas.
Bill Clinton, eig­in­maður Hillary og fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, flytur erindi í Las Vegas.

Súperkjörmenn?

Margir klór­uðu sér í koll­inum þegar í ljós kom að þrátt fyrir stór­sigur Sanders á Clinton í New Hamps­hire var lít­ill munur á svoköll­uðum „kjör­mönnum“ sem þau fengu. Þetta skýrist af því að kerfið í for­vali flokk­anna bygg­ist á afar sér­kenni­legum reglum. Hvert ríki hefur fjölda kjör­manna í hlut­falli við fjölda íbúa (í raun í hlut­falli við fjölda þing­manna í full­trúa­deild­inni, en sú tala helst í hendur við fjölda íbúa auk tveggja öld­unga­deilda­full­trúa). Hjá demókrötum fá fram­bjóð­endur svo kjör­menn í hlut­falli við atkvæða­fjölda í hverju ríki. Kjör­menn­irnir eru svo taldir á lands­fundi flokks­ins sem hald­inn verður í sumar. Við þetta bæt­ist svo hið sér­kenni­lega kerfi súperkjör­manna (e. Super­del­egates) en það eru kjör­menn sem eru fyrr­ver­andi eða núver­andi kjörnir full­trúar fyrir flokk­inn í hverju ríki, sem ákveða hvern þau ætla að styðja og ákvarða þau um einn sjötta af heild­ar­at­kvæða­magn­inu. Þessir aðilar eru því sjálf­kjörnir full­trúar á lands­fund flokks­ins og skila atkvæði sínu þar. Eins og staðan er núna hefur Hillary tryggt sér yfir­lýstan stuðn­ing 424 af 712 atkvæðum súperkjör­mann­ana en Sanders aðeins 14. Það er óal­gengt að súperkjör­menn skipti um skoðun en þeir hafa fullan rétt á því.

Þetta gerir það að verkum að ef Sanders ætlar að sigra Hillary verður hann að vinna upp þetta for­skot Hillary til að fá útnefn­ingu demókrata.

Svikabrögð í Suður Karólínu

Á hinum end­anum á land­inu verður kosið í for­vali repúblik­ana í Suður-Karólínu. Þar er spennan öllu minni, en töl­fræði­spek­úlant­inn Nate Silver spáir því með 70% vissu að Trump sigri. Kannanir hafa sýnt sterkan stuðn­ing við fram­boð Trumps í rík­inu síðan í byrjun síð­asta sum­ars og mælist hann nú með 36% fylgi, Cruz mælist með næst­mesta stuðn­ing­inn eða 17% og fast á hæla hans er svo Rubio með 14%. Hann nýtur stuðn­ings rík­is­stjóra Suður-Karólínu. Svo eru þeir Bush og Kasich með sitt hvor 10 pró­sentin, Carson rekur svo lest­ina með 5%.

Kjós­endur repúblik­ana í Suður-Karólínu eru að miklum meiri­hluta trú­aðir evang­elistar og eru í takt við það mjög íhalds­samir í skoð­unum sínum. Þeir eru á móti rétti kvenna til fóst­ur­eyð­inga, gegn hjóna­bandi sam­kyn­hneigðra, vilja lítil afskipti rík­is­ins af sam­fé­lag­inu og svo fram­vegis. Árið 2012 kusu þeir Newt Gringrich í próf­kjöri repúblik­ana og John McCain árið 2008. Í þrí­gang hefur ríkið kosið Bush feðga. Í gegnum tíð­ina hefur ríkið þótt mik­il­vægt í for­vali repúblik­ana, sem eitt af fyrstu ríkj­unum þar sem kosið er, og hafa skít­a­trixin sem stunduð eru þótt ein­kenna þá miklu spennu sem þar ríkir.

Árið 2000 fengu kjós­endur sem dæmi upp­hring­ingar þar sem sagt var frá því að John McCain hefði átt barn utan hjóna­bands með þeldökkri konu. Það reynd­ist ósatt. Árið 2007 fengu kjós­endur svo jóla­kort þar sem sagt var frá því að Mitt Romney, sem er morm­óni, væri hlynntur fjöl­kvæni. Það reynd­ist ósatt líka. Nú segir Trump að Cruz hafi látið hringja í þús­undir kjós­enda til að segja þeim að Trump sé ekki í fram­boði í Suður Karólínu, sem er líka hin arg­asta della. Vegna þess hversu algeng svona svika­brögð eru hafa kjós­endur brugðið á það ráð að búa til app þar sem hægt er að til­kynna um vafa­samar aðferðir fram­bjóð­enda og fá það stað­fest hvað er í raun rétt og hvað ekki. Í app­inu má líka finna yfir­lit yfir það sem kjós­endur til­kynna inn og er það væg­ast satt áhuga­verð lesn­ing. Fyrir áhug­u­sama er hægt að sækja appið hér.

Trump hélt þess­ari hefð að beita bola­brögðum þegar hann nýtti sér mis­tök fram­boðs Jeb Bush, sem gleymdi að end­ur­nýja lén fram­boðs­ins. Trump keypti lénið og ef maður fer á www.jebbush.com flyst maður beint á heima­síðu Trump fram­boðs­ins. Næstum því öll Bush fjöl­skyldan hefur fengið það óþvegið frá Trump þessa vik­una en í byrjun vik­unnar sagði hann George W. Bush hefði logið að þjóð­inni til að geta farið í stríð. Þrátt fyrir að Bush yngri hafi orðið mjög óvin­sæll við lok for­seta­tíð sinnar þykir það nokkuð áhættu­samt fyrir fram­bjóð­anda repúblik­ana að hjóla í Bush í því ríki sem hann og hans fjöl­skylda hafa notið einna mests stuðn­ings frá, en fjöl­skylda Jebs er einmitt farin að mæta honum til stuðn­ings dag eftir dag á bar­áttufundi.

En allt kemur fyrir ekki og virð­ist þetta hafa haft lítil áhrif á vin­sældir hans ef marka má kann­anir. Til að bæta gráu ofan á svart greip Trump á fimmtu­dag orð páfans í Róm um að þeir stjórn­mála­menn sem ein­blíndu á að byggja múra en ekki brýr væru ekki kristi­legir, á lofti og sagði páfann smán­ar­legan. Menn velta fyrir sér hvort þetta sé lík­legt til að hreyfa við hinu mjög svo íhaldsama kristi­lega fylgi í Suður Karólínu. Það kemur vænt­an­lega í ljós á kjör­dag, í dag.

Enn er öll athygli demókrata í Nevada enda sögu­lega hafa kjós­endur í Suður-Karólínu verið hlið­holl­ari repúblikönum en demókrötum. En sam­kvæmt nýj­ustu könn­unum virð­ist Clinton hafa öruggt for­skot á Sanders en með­al­tal síð­ustu kann­ana sýna að Hillary hafi 57,2% stuðn­ing lík­legra kjós­enda í for­vali demókrata, en Sanders 32,4%. Kosið verður hjá demókrötum í Suður-Karólínu laug­ar­dag­inn 27 febr­úar nk.

Miðað við allt og allt, hver er líklegastur til að vinna?

Eins og sagan hefur sýnt er erfitt að treysta því að sá sem virð­ist vera lík­leg­astur til að vinna útnefn­ing­arnar svona snemma í for­kosn­ing­unum vinni á end­anum. Fólk skiptir um skoðun, leynd­ar­mál dúkka upp í fjöl­miðlum, gamlar greinar og ummæli valda titr­ingi. Mikil eða lítil kjör­sókn getur einnig haft afger­andi áhrif á nið­ur­stöður kosn­inga. Það er því jafn áreið­an­legt að reikna sig niður á lík­leg­asta sig­ur­vegar­ann miðað við for­send­urnar sem nú liggja fyrir og að fá konu með slæðu á höfð­inu og spá­kúlu til að segja okkur hver vinni á end­anum. En til gam­ans verður hér gerð til­raun til að spá í þau spil sem liggja á borð­inu:

Þegar staðan er skoðuð núna út frá for­seta­kosn­ing­unum sjálfum, sem haldnar verða í byrjun nóv­em­ber á þessu ári, þegar flokk­arnir hafa valið sinn full­trúa, geta margir þættir haft áhrif á nið­ur­stöð­una. Miðað við síð­ustu tvennar for­seta­kosn­ingar eru níu ríki sem hægt er að flokka sem sveiflu­ríki (e. swing state), sem þýðir að þessi ríki geta fallið í hendur hvors flokks­ins og ekk­ert öruggt í þeim málum. Kosn­inga­kerfið í Banda­ríkj­unum bygg­ist sem fyrr segir á svoköll­uðu kjör­manna­kerfi. Það þýðir að hvert ríki fær úthlut­uðum ákveðnum fjölda kjör­manna í takt við íbúa­fjölda í rík­inu. Kjör­menn­irnir virka svo í raun eins og atkvæði, nema að sá fram­bjóð­andi sem vinnur meiri­hluta atkvæða, fær alla kjör­menn rík­is­ins. Sá sem nær svo fleiri en 270 kjör­mönnum á lands­vísu hefur sigrað kosn­ing­arnar.

Miðað við hvernig staðan er í dag er talið lík­legt, út frá því hvaða ríki eru örugg að kjósa annan flokk­inn, að demókratar hafi örugga 217 kjör­menn en repúblikanar 191. Það þýðir að 130 kjör­menn eru í pott­inum. Sé þetta rétt þyrftu demókratar að bæta við sig 53 kjör­mönnum en repúblikanar 79. Eins og áður sagði fer það eftir stærð ríkj­anna hvert magn kjör­manna er. Þannig eru stór ríki eins og Flórída með 29 kjör­menn en New Hamps­hire aðeins með 6. Þessi ríki virð­ast eins og kann­anir líta út núna ætla að kjósa Hillary Clinton sem full­trúa demókrata, eða í 7 af 9 til­fellum, og Donald Trump sem full­trúa repúblik­ana, eða í 8 af 9 til­fellum. Verði þetta nið­ur­staðan er áhuga­vert að skoða hvað kann­anir segja um hvorn kandídat­inn þau myndu velja ef þau tvö væru í fram­boði.

Hér er mjög mik­il­vægt að allir geri sér grein fyrir því að þær kann­anir eru gerðar á lands­vísu og mjög margir óvissu­þættir ekki mældir, en til gam­ans þá er áhuga­vert að skoða þetta. Nýjustu kann­anir sýna að sé fólk spurt hvort það myndi kjósa Clinton eða Trump kemur í ljós að 47% segj­ast myndu kjósa Hillary en 42% myndu kjósa Trump. Ef demókratar myndu hins vegar velja Sanders sem sinn full­trúa virð­ast lands­menn enn lík­legri til að kjósa demókrata umfram repúblik­ana með Trump sem þeirra full­trúa, þá skilja tæp tíu pró­sentu­stig fram­bjóð­endur að sam­kvæmt nýj­ustu könnun.

Kosið verður í for­völum flokk­anna næstu mán­uð­ina. Flest þess­ara mik­il­vægu ríkja sem geta sveifl­ast í báðar áttir kjósa í mars en það síð­asta í lok apríl. Eftir að þau hafa kosið verður myndin orðin skýr­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár