Guðlaugur Þór tekur forystu á ný

Tveir sitj­andi þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins gætu verið á leið út af þingi. Brynjar Níelsson og Sigríður Andersen eru langt frá þeim árangri sem þau ætl­uðu sér í próf­kjöri flokks­ins.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra er efstur eftir í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík í þriðju tölum úr próf­kjör­inu. Búið er að telja 5.973 atkvæði af um 7.500. Næstu tölur verða loka­tölur. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra er í öðru sæti. Alls munar 168 atkvæðum á ráð­herr­unum tveimur sem sækj­ast eftir efsta sæt­inu á lista flokks­ins.

Í þriðja sæti er Diljá Mist Ein­ars­dóttir, aðstoð­ar­maður Guðlaugs Þórs, og sú vend­ing hefur orðið að Hildur Sverr­is­dóttir, sem er aðstoð­ar­maður Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur og vara­þing­maður, er nú í fjórða sæti. Í fimmta sæti er Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

[adspot]Tveir sitj­andi þing­menn flokks­ins eru langt frá því að ná þeim árangri sem þeir stefndu að í próf­kjör­inu. Brynjar Níelsson er sem stendur í sjötta sæti og Sigríður Andersen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, stefnir í afhroð og er í níunda sæti. Á milli þeirra eru Kjartan Magn­ús­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi, og Friðjón Frið­jóns­son almanna­teng­ill.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sem stendur með fimm þing­menn sam­an­lagt í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum. Samkvæmt nýj­ustu könn­unum getur flokk­ur­inn vænst þess að ná fjórum til fimm þing­mönnum inn í kjör­dæmum höf­uð­borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár