McConell og Trump í háværu rifrildi

Leiðtogi Repúblik­ana er sagður efasta um að Trump geti haldið mikið lengur áfram sem for­seti Banda­ríkj­anna.

Mitch McConnell, leiðtoga repúblikana í bandaríska þinginu.
Mitch McConnell, leið­toga repúblik­ana í banda­ríska þing­inu. Mynd: EPA

Mitch McConell, leið­togi repúblik­ana í öld­unga­deild Banda­ríkja­þings og lengi vel einn helsti stuðn­ings­maður Donalds Trumps for­seta Banda­ríkj­anna, er sagður hafa snú­ist alveg gegn for­set­anum og hefur efa­semdir um að hann geti haldið mikið lengur áfram sem for­seti.

Frá þessu greindi New York Times í nótt. Í umfjöllun blaðs­ins segir að McConell og Trump hafi ekki rætt saman síðan 9. ágúst en þá sauð upp úr í sam­skiptum þeirra á milli, í sím­tali, og lýsa vitni því sem löngu sam­tali þar sem fúk­yrði flugu frá upp­hafi til enda.

Er Trump sagður afar óánægður með að McConell hafi ekki stutt hann, meðal ann­ars þegar kemur að ásök­unum um að Trump og nán­asta bak­land hans hafi verið í sam­bandi við Rússa í aðdrag­anda kosn­ing­anna í fyrra. Rannsókn stendur nú yfir á ásök­unum um að Rússar hafi beitt sér bak við tjöldin, og haft áhrif á gang kosn­ing­anna, en Robert Mueller, fyrr­ver­andi for­stjóri FBI, stýrir rann­sókn­inni.

Eig­in­kona McConell, Elaine L. Chao, á sæti í rík­is­stjórn Trumps, og gerir sú staða málin enn flókn­ari, að því er segir í umfjöllun New York Times.

McConell er sagður afar óánægður með við­brögð Trumps í kjöl­far ofbeld­is­ins í Charlottesville, þar sem með­limir nýnas­ista­hreyf­inga víðs vegar úr Banda­ríkj­unum, ásamt mörgum öfgasinn­uðum KKK-liðum, stóðu fyrir ofbeld­is­fullum aðgerðum við rík­is­há­skól­ann í Virginíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár