Sigríður: Bjarni Ben sendir „stórt fokkmerki“

Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er stór­orð í garð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á Facebook-síðu sinni í dag. Hún segir Bjarna senda þeim sem detta út úr námi en vilji svo ljúka því síðar „stórt fokk­merki“ með mál­flutn­ingi sínum.

Bjarni átti orða­stað við Oddnýju Harð­ar­dóttur, sam­flokks­konu Sigríðar Ingi­bjargar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á þingi í morgun. Þar var til umfjöll­unar fram­halds­skóla­nám, og fjölda­tak­mark­anir sem settar hafa verið á fólk yfir 25 ára aldri. Sigríður Ingi­björg seg­ist hafa „skömm á þess­ari mann­fjand­sam­legu stefnu,“ sem stjórn­völd stundi.

Bjarni sagði á þingi í morgun að grunn­hugs­unin á bak við breytta stefnu stjórn­valda sé sú að það hafi skort fjár­magn á bak við hvern nem­anda í fram­halds­skóla­kerf­inu. Auk þess hafi náms­fram­vinda verið ófull­nægj­andi þegar Ísland sé borið saman við önnur ríki. Það hafi tekið lengri tíma að koma nem­endum til háskóla­náms og með því að for­gangs­raða fólki yfir 25 ára aldri síð­ast sé verið að bregð­ast við þessu. Fólk yfir 25 ára aldri hefði önnur úrræði, eins og frum­greina­deildir, til þess að ljúka stúd­ents­prófi.

Oddný sagði það arfa­vit­laust bæði fag­lega og fjár­hags­lega að meina nem­endum aðgang að opin­berum fram­halds­skólum. Það leiði til þess að færri fari í frekara nám, og að einkum bitni þessar breyt­ingar á fólki á lands­byggð­inni. Komið hefur fram að nem­endum í fram­halds­skóla­námi hafi fækkað um 700 milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár