Faðir drengsins: „Kaj er ekki saklaus“

Sindri Krist­jáns­son segir sárt að sjá mann­inn sem mis­þyrmdi barni hans halda fram sak­leysi sínu í fjöl­miðlum. Kaj Anton Arn­ars­son, sem dæmdur var í 26 mán­aða fang­elsi í Noregi í fyrra, er laus úr fang­elsi og kom­inn til Íslands.

„Ef þessu hefði verið öfugt farið og ég verið rang­lega sak­aður um að hafa beitt barnið hans ofbeldi, þá hefði ég klár­lega haft sam­band við hann og sagt honum að þetta væri ekki svona. Mér hefði liðið það illa gagn­vart vini mínum. En hann hefur aldrei haft sam­band við mig,“ segir Sindri Krist­jáns­son, faðir litla drengs­ins sem Kaj Anton Arn­ars­son var dæmdur fyrir að beita hrotta­legu ofbeldi í októ­ber 2015, en Sindri og Kaj þekkt­ust frá fornu fari. 

Kaj, sem hefur alltaf haldið fram sak­leysi sínu, steig fram í við­tali hjá DV í síð­asta mán­uði þar sem hann sagði meðal ann­ars að engar sann­anir væru fyrir því að hann hafi lamið „eitt­hvert barn“. Hann væri á leið með málið fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, margt væri enn ósagt og að hans hlið hafi aldrei komið fram. 

Sindri segir ekk­ert annað koma til greina en að Kaj hafi valdið áverkum barns­ins, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár