Aldrei fleiri konur nefnt ofbeldi gegn börnum sem ástæðu komu í Kvennaathvarfið

Samtals komu 438 konur í Kvenna­at­hvarfið í við­töl eða dvöl á síð­asta ári. Til við­bótar hittu ráð­gjafar athvarfs­ins 214 ein­stak­linga í við­tölum í Bjark­ar­hlíð, mið­stöð fyrir þolendur ofbeldis.

Árið 2019 dvöldu 144 konur og 100 börn í Kvenna­at­hvarf­inu. Konur dvöldu í athvarf­inu frá einum degi upp í 236 daga, að með­al­tali í 30 daga. Börn dvöldu í athvarf­inu í frá einum degi upp í 155 daga, að með­al­tali í 39 daga. Að með­al­tali dvöldu 23 íbúar í athvarf­inu á dag, 12 konur og 11 börn.

Þetta kemur fram í tölum frá Kvenna­at­hvarf­inu fyrir árið 2019.

Að auki komu 294 konur í sam­tals 545 við­töl án þess að til dvalar kæmi. Samtals komu því 438 konur í athvarfið í við­töl eða dvöl á árinu. Til við­bótar hittu ráð­gjafar athvarfs­ins 214 ein­stak­linga í við­tölum í Bjark­ar­hlíð, mið­stöð fyrir þolendur ofbeldis.

27 prósent barnanna höfðu fengið aðstoð

Í til­kynn­ingu frá Kvenna­at­hvarf­inu kemur fram að aldrei hafi fleiri konur nefnt ofbeldi gegn börnum sem ástæðu komu í athvarfið. Þá hafi komið fram í svörum kvenn­anna að alls búi 349 börn undir 18 ára að aldri á ofbeld­is­heim­il­unum sem þær koma af.

Einungis 27 pró­sent barn­anna höfðu fengið ein­hverja aðstoð vegna þess ofbeldis sem barnið bjó við á heim­ili sínu en 44 pró­sent kvenn­anna sögðu að barna­vernd hefði verið til­kynnt um ofbeldið. Alls voru 12 pró­sent kvenn­anna með lík­am­lega áverka við fyrstu komu í athvarfið, eða 23 pró­sent dval­arkvenna og 6 pró­sent kvenna í við­tölum, en rúm­lega helm­ingur sögðu frá því að hafa ein­hvern tíma hlotið lík­am­lega áverka í sam­band­inu.

Yfir helmingur óttaðist um líf sitt

Þá sögð­ust 54 pró­sent hafa ótt­ast um líf sitt í sam­band­inu, 42 pró­sent sögðu lög­reglu hafa komið á vett­vang ofbeld­is­ins í eitt eða fleiri skipti og 15 pró­sent kært ofbeldið til lög­reglu.

Meiri­hluti, eða 60 pró­sent, þeirra mála var enn í vinnslu en dómur hafði fallið í 5 pró­sent mál­anna, 16 pró­sent kærðra mála hafði verið verið felld niður, 5 pró­sent höfðu fengið nálg­un­ar­bann og 5 pró­sent neyð­ar­hnapp.

Í heild­ina voru 67 pró­sent kvenna sem komu í Kvenna­at­hvarfið á árinu íslenskar, eða 74 pró­sent þeirra sem komu í við­töl og 51 pró­sent dval­arkvenna, og voru 74 pró­sent kvenn­anna af höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Konurnar voru á aldr­inum 18 til 81 árs en börnin frá nokk­urra daga gömlum upp í 16 ára.

Fram kemur hjá Kvenna­at­hvarf­inu að í 95 pró­sent til­vika hafi sá sem beitti ofbeldi verið karl­maður, 72 pró­sent af íslenskum upp­runa og á aldr­inum 18 til 83 ára.

Hér að neðan má sjá mynd­band sem Kvenna­at­hvarfið lét gera árið 2016 en því er ætlað að vera fræðslu­mynd­band fyrir börn um heim­il­is­of­beldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár