Hvar stendur Ísland í loftslagsmálum?

Rík­is­stjórn Íslands kynnti sókn­ar­á­ætlun sína í lofts­lags­málum á mið­viku­dag. Höfum við for­skot á aðra með hreinu ork­una okkar?

Rík­is­stjórn Íslands kynnti stefnu­mót­un­ar­á­ætl­anir sínar í lofts­lags­málum á blaða­manna­fundi í húsa­kynnum Veð­ur­stof­unnar á mið­viku­dag. Eru það fyrstu áherslu­at­riði rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar í lofts­lags­málum til þess að mæta lands­mark­miði Íslands um 40 pró­sent minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda árið 2020 miðað við losun árs­ins 1990.

Áætlun rík­is­stjórn­ar­innar verður ekki útfærð frekar fyrr en að þings­á­lyktun verður lögð fyrir Alþingi í vor. Áætl­un­inni er skipt upp þrjá meg­in­þætti: verk­efni til að draga úr nettólosun á Íslandi, alþjóð­legar áherslur og verk­efni til að draga úr losun á heims­vísu og styrk­ingu inn­viða. Hvergi er minnst á stærsta meng­un­ar­vald­inn; iðnað- og efna­notkun. Þar telur álf­ram­leiðsla nærri helm­ing en sam­tals nýtir stór­iðja 79 pró­sent allrar þeirra raf­orku sem fram­leidd er hér á landi.

Ísland er síð­ast Norð­ur­land­anna til þess að leggja fram áætlun á borð við þessa þar sem áherslu­at­riði stjórn­valda í lofts­lags­málum eru listuð. Sum­staðar hefur áætl­unin legið fyrir í nokkur ár og jafn­vel verið fest í lög eins og í Finn­landi. Löggjöf og stefnu­mótun í nágranna­ríkjum okkar er því víð­ast komin vel á veg. Hér á landi hafa þó verið sett lög um lofts­lags­mál en engin síðan mark­mið Íslands um 40 pró­sent minni losun árið 2030 var til­kynnt.

Eftir von­brigðin sem fylgdu lofts­lags­ráð­stefn­unni í Kaup­manna­höfn árið 2009 er erfitt að vera meira en hóf­lega bjart­sýnn um hvort hægt verði að kom­ast að góðu sam­komu­lagi í París á næstu vikum. Vænt­ing­arnar eru miklar en fund­ur­inn flók­inn og sam­komu­lagið tor­sótt, ef eitt­hvað er að marka reynsl­una frá Kaup­manna­höfn. Þar runnu við­ræður út í sand­inn og fór svo að sam­komu­lagið sem und­ir­ritað var skuld­batt ekk­ert ríki til að draga úr losun. Samn­ing­ur­inn var ekk­ert annað en yfir­lýs­ing um að þjóðir heims við­ur­kenndu vand­ann. En það var þó eitt­hvað og hefur verið byggt á því sam­komu­lagi í aðdrag­anda ráð­stefn­unnar í París.

Valdinu snúið á hvolf

Í aðdrag­anda lofts­lags­ráð­stefn­unnar núna hefur mark­miða­setn­ing­unni verið snúið við. Í stað þess að ráð­stefnan ákveði hversu mikið hvert ríki má losa út í and­rúms­loftið þá hafa öll ríkin lagt fyrir fund­inn eigin stefnu­mót­un­ar­mark­mið í lofts­lags­málum til árs­ins 2030. Með því er ætl­ast til að öll ríki heims gangi sátt­ari að borð­inu þannig að hægt sé að loka kafl­anum um los­un­ar­heim­ildir hratt og örugg­lega. Fleiri umfjöll­un­ar­efni eru á dag­skrá fund­ar­ins sem gæti orðið erf­ið­ara að ná utan um.

Nú hafa nær öll ríkin sem koma til með að senda full­trúa á ráð­stefn­una í París skilað mark­miðum sínum í stefnu­mótun vegna lofts­lags­mála. Á vefnum Climate Action Tracker eru mark­miðin birt og þeim gefin vegin ein­kunn svo hægt sé að meta hvaða áhrif þau muni hafa. Eins og Kjarninn hefur þegar fjallað um þá lítur út fyrir að mark­miðin eigi eftir að skila tak­mark­inu um að hita­stig á jörð­inni hækki ekki umfram 2°C árið 2100. Sé eitt­hvað að marka mark­miðin er útlit fyrir að hita­stigið verði búið að hækka um 2,7°C í lok ald­ar­innar miðað við með­al­hita­stig á jörð­inni fyrir iðn­bylt­ingu.

Ástæða þess að mark­miðin eiga ekki eftir að skila tak­mark­inu er í raun kerf­is­leg. Um er að ræða stefnu­mót­un­ar­mark­mið til fram­tíðar; for­virkar reglur og áherslur sem á eftir að setja um eitt­hvað sem talið er að eigi ann­ars eftir að ger­ast eftir ára­tugi. Úr verður að mark­miða­setn­ingin verður mála­miðlun milli við­skipta­legra hags­muna ríkis og fram­tíðar­ör­yggis, hvort sem það er fæðu­ör­yggi eða orku­ör­yggi.

Stærstu meng­un­ar­ríki heims­ins fá ein­kun­ina „hóf­legt“ um fram­lag sitt til fund­ar­ins. Markmið Evr­ópu­sam­bands­ins er þar á meðal, og þá um leið mark­mið Íslands. Fáein ríki fá ein­kun­ina „nægj­an­legt“ fyrir sín mark­mið. Þá er fjöldi stórra ríkja sem fá ein­kun­ina „ófull­nægj­andi“ fyrir mark­mið sín. Til þess að fá verstu ein­kunn þykir ljóst að núver­andi stefnu­mörkun þurfi nær ekk­ert að breyta til að ná lands­mark­mið­unum. Meðal þeirra landa sem fá „ófull­nægj­andi“ eru til dæmis Rússland, Japan, Kanada, Sádí-Arabía og Indónesía.

Hvar stendur Ísland miðað við Evrópu?

Áætlun rík­is­stjórn­ar­innar sem kynnt var á mið­viku­dag er fyrsta skrefið í þeirri vinnu sem á eftir að vinna svo mark­mið­inu um 40 pró­sent minni losun verði mætt. Það gæti hins vegar farið svo að Ísland þurfi ekki að draga svo mikið úr losun því með sam­starfi við Evr­ópu­sam­bandið öðl­umst við rétt til að taka þátt í kaupum og sölu á útblást­urskvóta Evr­ópu­ríkja. Þannig getur Ísland, sem mengar tilltölu­lega lítið miðað við önnur ríki, selt rétt­indi sín annað svo kvót­inn verði nýttur. Hvernig samið verður við Evr­ópu­sam­bandið hefur ekki verið ákveðið. Það verður gert eftir ráð­stefn­una í París í sam­starfi við aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins og Noreg.

Í þætt­inum Þukli í Hlað­varpi Kjarnans sagði Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, Ísland hafa góða for­gjöf þegar kemur að lofts­lags­breyt­ingum. Sú orka sem hér er fram­leidd er nær öll sjálf­bær svo Íslend­ingar þurfi ekki að hafa áhyggjur af breyttri fram­leiðslu á orku. Samkvæmt upp­lýs­ingum Orku­stofn­unar var vatns­orka upp­runi 71 pró­sent alls raf­magns sem fram­leitt var á Íslandi 2014. Jarð­varma­virkj­anir fram­leiddu tæp­lega 29 pró­sent. Raf­orku­fram­leiðsla með jarð­efna­elds­neyti var nán­ast engin, eða 0,01 pró­sent í fyrra.

Ísland ætti því að geta gert tals­vert betur en ríki Evr­ópu­sam­bands­ins sem reiða sig fyrst og fremst á jarð­efna­elds­neyti til að fram­leiða raf­magn. Árið 2013 fram­leiddu aðild­ar­ríkin 28 helm­ing allrar raf­orku með jarð­efna­elds­neyti (gas, kol og olía). Nærri 27 pró­sent orkunnar er fram­leidd með kjarn­orku.

End­ur­nýj­an­legir orku­gjafar voru upp­runi þess sem eftir stóð árið 2013 og hafði þá auk­ist úr 12,6 pró­sent hlut­deild árið 2003 í 23,2 pró­sent tíu árum seinna. Mest var aukn­ingin með virkjun vind­orku og sól­ar­orku. Raf­orku­fram­leiðsla með jarð­efna­elds­neyti dróst aðeins lítið eitt saman á þessum tíu árum, fór úr 56,4 pró­sentum í 49,8 pró­sent.

Stefna Íslands

Stefna Íslands í lofts­lags­málum hefur ætíð verið hóf­leg með áherslu á græna orku­fram­leiðslu. Stóriðja hefur verið stærsti meng­un­ar­vald­ur­inn hér á landi á síð­ustu ára­tugum og með til­komu Kyoto-bók­un­ar­innar og alþjóð­legs mark­aðs um los­un­ar­kvóta hefur öll losun frá stór­iðj­unni fallið undir við­skipta­kerfi ESB. Lög um lofts­lags­mál fjöll­uðu um losun þess­arar fram­leiðslu þar til þau féllu úr gildi í lok árs 2012 en þá höfðu ný lög verið sam­þykkt til að inn­leiða EES-gerðir og tengj­ast mark­aði Evr­ópu­ríkja um los­un­ar­heim­ildir.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur talað skýrt um loft­lags­mál á alþjóða­vett­vangi. Á leið­toga­fundi Sameinðu þjóð­anna í New York í sept­em­ber 2014 sagði hann að Ísland stefni að því að verða laust við jarð­efna­elds­neyti. „[…] nær öll okkar raf­orka er fram­leidd með end­ur­nýj­an­legum orku­kostum. Við höfum þegar hafið vinnu við að ná þessu tak­marki,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra. „Við erum til­búin að vinna með ykkur að þessu mik­il­væga máli og við stöndum trygg við yfir­lýs­ing­una —Setjum verð á gróð­ur­húsa­loft­teg­undir.“

Í sam­an­tekt Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands síðan á mánu­dag, sem Kjarninn hefur undir höndum, er bent á að yfir­lýs­ing Sig­mundar Davíðs um að Ísland ætli að hætta notkun jarð­efna­elds­neytis hafi enn ekki birst í lofts­lags­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar. Í sókn­ar­á­ætl­un­inni er það hvergi gert að mark­miði, heldur aðeins talað um að „auka hlut vist­hæfra inn­lendra orku­gjafa á kostnað inn­flutts kolefna­elds­neytis“.

For­sæt­is­ráð­herra und­ir­rit­aði yfir­lýs­ingu Alþjóða­bank­ans um nauð­syn þess að verð­leggja losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda (e. Putting Price on Carbon, sjá mynd­band hér að ofan). Það er hins vegar ekki hluti af sókn­ar­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, var spurð að því í hlað­varps­þætt­inum Þukli á mið­viku­dag hvort það hafi komið til greina að hanna skatta­lega hvata til að draga úr losun gróð­ur­húsa­á­hrifa. „Við höfum ekki alveg farið nákvæm­lega út í þannig skatta­kerfi en maður er að treysta líka á að það verði ákveðin hug­ar­fars­breyt­ing hjá ein­stak­lingum,“ segir hún. 

Í ræðu fyrir Sam­ein­uðu þjóð­unum í sept­em­ber síð­ast­liðnum sagði for­sæt­is­ráð­herra svo Ísland ætla að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 40 pró­sent árið 2030. Þetta sagði hann „afdrátt­ar­laust og án fyr­ir­vara,“ svo notuð séu orð sam­an­tektar Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs, dró hins vegar í land og sagði ráð­herran hafa átt við þátt­töku Íslands í mark­miðum ESB.

„Mál­flutn­ing­ur­inn þeirra er ýmist í ökkla eða eyra, annað hvort erum við örsmá með aug­ljósa sér­stöðu sem rétt­lætir sér­með­ferð fyrir Ísland eða þá Ísland er í for­ustu ríkja um nýt­ingu hreinnar orku,“ segir í sam­an­tekt Nátt­úru­vernd­ar­sam­tak­anna.

Liðir sókn­ar­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­innar sem fjalla um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda snú­ast að mestu um að ríkið úthýsi verk­efn­unum til sam­taka á borð við Grænu ork­una og Hafsins til að vinna áætl­anir um aðgerðir með ráðu­neytum og hinum ýmsu aðilum. Þegar kemur að efl­ingu inn­viða svo hægt sé að raf­bíla­væða landið á að setja fjár­magn til hliðar svo hægt verði að útfæra átak um hleðslu­stöðvar fyrir raf­bíla um allt land.

Vegvísir verður unn­inn þar sem farið verður yfir tæki­færi og hindr­anir fyrir sjáv­ar­út­veg í lofts­lags­málum. Stjórn­völd munu kosta gerð þess veg­vísis ásamt sam­tökum í atvinnu­líf­inu. Einnig verður unn­inn veg­vísir um lofts­lagsvænni land­búnað. Umhverf­is­ráð­herra segir Bænda­sam­tökin hafa sjálft átt frum­kvæði að því, en vinna ekki hafin vegna ann­arra verk­efna.

Land­græðsla og end­ur­heimt vot­lendis hefur verið eitt af lyk­il­at­riðum Íslands í þátt­töku í alþjóð­legu sam­starfi um lofts­lags­mál. Fyrir fáeinum árum fengu íslensk stjórn­völd það við­ur­kennt að að end­ur­heimt vot­lendis væri mót­væg­is­að­gerð sem hægt væri að reikna með í LULUCF (Land­notkun og breyt­ingar á land­notkun). Um þetta verður sett á fót verk­efni um end­ur­heimt vot­lendis strax næsta sumar og aukið fjár­magn sett til skóg­ræktar og land­græðslu.

Norska módelið

Til að bera Ísland saman við önnur lönd er nær­tæk­ast að líta til Noregs. Noregur hefur svip­aða hnatt­ræna stöðu og Ísland og sam­bæri­legar auð­lindir sem hægt er að nýta til raf­orku­fram­leiðslu. Noregur borar þó eftir miklu jarð­efna­elds­neyti (átt­undi stærsti útflytj­andi hrá­olíu árið 2011 og þriðji stærsti útflytj­andi gass) en lang­mestur hluti þess er fluttur úr landi til brennslu ann­ar­staðar.

Það fríar Noreg hins vegar ekki ábyrgð­inni fyrir losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og því sat landið í 30. sæti á lista yfir helstu meng­un­ar­valda í heimi. Raf­orku­fram­leiðsla lands­ins er hins vegar mest í formi vatns­afls­virkj­ana og Noregur flytur hluta þess­arar raf­orku út til nágranna­ríkja sinna.

Jens Stol­ten­berg, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, kynnti árið 2007 áætl­anir Noregs um að verða kolefn­is­hlut­laust land árið 2050. Það skyldi gert með svo­kall­aðri yfir­bót, en það er nokkuð umdeild aðferð til að vega upp á móti útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Það má gera eftir mörgum leiðum sem eru þó ekki allar við­ur­kenndar af tækni­nefndum Ramma­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál. Sem dæmi um slíkar yfir­bætur er hægt að rækta skóg ein­hver­staðar út í heimi eða fjár­festa í orku­sparn­aði eða sjálf­bærri orku­fram­leiðslu í löndum sem eiga ann­ars ekki fyrir slíkri tækni. Kolefn­is­hlut­leysið hefur síðan fengið byr undir báða vængi því breið póli­tísk sátt virð­ist vera um það mark­mið í Noregi.

Noregur dælir mikið af olíu af hafsbotni til dæmis í Barentshafi.
Noregur dælir mikið af olíu af hafs­botni til dæmis í Barents­hafi.

Þegar Noregur kynnti mark­mið sín sem yrðu lögð fyrir lofts­lags­ráð­stefn­una í febr­úar lagði Erna Solberg, for­sæt­is­ráð­herra, fram hvít­bók í lofts­lags­málum. Þar eru áætl­anir og helstu verk­efni listuð. Sam­bæri­lega áætlun kynnti umhverf­is­ráð­herra á mið­viku­dag.

Einna skýrastur er mun­ur­inn á milli Íslands og Noregs þegar kemur að fram­lögðum mark­miðum ríkj­anna til lofts­lags­ráð­stefn­unnar í París. Markmið Íslands er „leika sann­gjarnt hlut­verk“ (e. fair share) til þess að sam­eig­in­legt mark­mið ESB um 40 pró­sent minni losun náist. Í mark­mið­inu sem sent var Sam­ein­uðu þjóð­unum er einnig að finna fyr­ir­vara um að nán­ari útlist­ingu á mark­mið­unum eigi eftir að útfæra. Þessa fyr­ir­vara er ekki að finna í mark­miði Noregs sem ætlar að minnka losun um „að minnsta kosti“ um 40 pró­sent árið 2030 miðað við árið 1990. 

Auk þessa er vísað í mark­mið lands­ins um að verða kolefn­is­hlut­laust árið 2050 og að árið 2030 verði Noregur búinn að kaupa nægi­lega mikla yfir­bót til þess að vega upp á móti upp­reikn­aðri losun lands­ins. Það þýðir ekki að Noregur muni ekki losa neitt út í and­rúms­loftið árið 2050, heldur losa lítið (e. low emission society) og bæta það upp með við­ur­kenndum mót­væg­is­að­gerðum eins og land­græðslu.

Atriðin sem Noregur kynnti í febr­úar sem vett­vang stefnu­mót­un­ar­innar í loft­lags­málum eru: minni losun af völdum sam­gangna, vist­væn tækni í iðn­aði, bind­ing gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og geymsla, end­ur­nýj­an­leg orka og vist­vænir vöru­flutn­ingar.

Loftlagsmál á sveitarstjórnarstiginu

Svíþjóð sem er aðild­ar­ríki að Evópu­sam­band­inu, hefur farið aðra leið en Ísland og Noregur. Í Svíþjóð eru það sveita­stjórnir sem fara með fram­kvæmda­á­ætlun í lofts­lags­málum. Það hefur orðið til þess að borgir og bæir vítt og breytt um Svíþjóð hafa sett sér mark­mið um að verða kolefna­hlut­laus byggða­lög. Sem dæmi má nefna Vaxjö, sem vill verða „græn­asta borg í Evrópu“. Lofts­lags­mark­miðum lands­ins verður því náð á lægra stjórn­sýslu­stigi nær íbúum lands­ins. Auk þess að leggja áherslu á þátt­töku sveit­ar­fé­laga hafa stjórn­völd þar tekið höndum saman við iðn­að­inn til að ná kolefn­is­hlut­leysi sem byggir á end­ur­nýj­an­legri orku.

Hér­lendis hefur ríkið markað eigin stefnu í lofts­lags­málum og sveit­ar­fé­lög sína eigin. Stefnu­mótun rík­is­ins hefur þó skar­ast við stefnu­mótun sveit­ar­stjórna. Nýjasta dæmið er áform Reykja­vík­ur­borgar um upp­bygg­ingu og þétt­ingu byggðar í Vatns­mýr­inni. Það verður ekki gert nema Reykja­vík­ur­flug­völlur fari, að hluta eða í heild.

Rík­is­stjórnin hefur hins vegar ekki staðið við gerða samn­inga um að leggja af flug­brautir svo Reykja­vík­ur­borg hefur höfðað mál fyrir dóm­stólum. Þétting byggðar er eitt af helstu stefnu­mót­un­ar­tækjum borga og bæja þegar kemur að minnkun los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Sýnt hefur verið fram á að það geri sam­fé­lög minna háð einka­bílum, auð­veldi upp­bygg­ingu almenn­ings­sam­gangna og stytti þær vega­lengdir sem íbúar þurfa að ferð­ast á hverjum degi.

Reykjavíkurflugvöllur stendur á landi þar sem aðalskipulag Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir íbúðabyggð.
Reykja­vík­ur­flug­völlur stendur á landi þar sem aðal­skipu­lag Reykja­vík­ur­borgar gerir ráð fyrir íbúða­byggð.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár