Ekkert minnst á stóriðju í óútfærðri sóknaráætlun Íslands í loftlagsmálum

„Við erum ekki full­sköpuð þó við séum búin að setja fram sókn­ar­á­ætl­un­ina. Ég vil meina að þetta sé svona svipað eins og flug­tak og vonum að við lendum á mjög góðum stað en að flug­ferðin verði líka ánægju­leg. Það verða mót­aðar til­lögur og fluttar á vor­þingi.“ Þetta sagði Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra þegar hún kynnti sókn­ar­á­ætlun rík­is­stjórnar Íslands í loft­lags­málum til næstu þriggja ára í dag. Þar greindi Sigrún einnig frá því að hún væri í 20 ára gömlum fötum. Það væri mik­il­vægt að end­ur­nýja.

Sókn­ar­á­ætl­unin er ekki útfærð heldur byggir að mestu á mark­miðum, veg­vísum og ómót­uðum hug­myndum. Ekki er til­greint hversu mikið áætl­unin á að kosta og ekki er minnst einu orði á stór­iðju í sókn­ar­á­ætl­un­inni, en stærstur hluti end­ur­nýj­an­legrar orku Íslands fer til slíkrar auk þess sem fjöl­mörg orku­frek stór­iðju­verk­efni eru í píp­unum eða fram­kvæmdir við upp­bygg­ingu þeirra þegar hafnar.

Þá er ekk­ert talað um sér­tækar aðgerðir um losun gróð­ur­hús­loft­teg­unda í þétt­býli, til dæmis með auknum rík­is­styrkjum til upp­bygg­ingar almenn­ings­sam­gangna og þétt­ingu byggðar, sem er til þess fallin að draga úr losun vegna sam­gangna.

Lögð fram í tengslum við Parísarfundinn

Sókn­ar­á­ætl­unin byggir á 16 verk­efnum, þar af átta sem er ætlað að draga úr nettólosun á Íslandi í sam­göngum, sjáv­ar­út­vegi, land­bún­aði og land­notkun. Fjögur verk­efn­anna miða að því að efla sam­starf Íslands við önnur ríki við að draga úr losun og takast á við afleið­ingar loft­lags­breyt­inga.

Ekki er gert ráð fyrir að sókn­ar­á­ætl­unin sé mið­stýrð eða að hún komi í stað­inn fyrir núver­andi aðgerða­á­ætlun til að draga úr nettólosun, sem er ætlað að tryggja að Ísland standi við skuld­bind­ingar sínar sam­kvæmt Kýótó-bók­un­inni til 2020. Settir verða ábyrgð­ar­menn fyrir verk­efnin og óskað verður eftir fram­vindu­skýrslu um hvert verk­efni á næsta ári.

Sókn­ar­á­ætlun er sett fram í tengslum við 21. aðild­ar­ríkja­fund Lofts­lags­samn­ings­ins í París (COP21), þar sem reynt verður að ná hnatt­rænu sam­komu­lagi um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eftir 2030.

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra var einnig á kynn­ing­ar­fund­inum í dag. Hann sagði í sam­tali við Kjarnann að honum loknum að það væri mjög mik­il­vægt að Ísland taki á sig skuld­bind­ingar á fund­inum í París. „Við verðum að sýna fram á þá þróun sem við höfum séð á Íslandi, bæði í haf­inu og í jöklunum okkar. Við verðum að benda þeim á mögu­leik­ana, til dæmis jarð­hita. Og tengja þetta svo að sjálf­sögðu við jafn­rétt­is­mál og þessi þver­lægu mál. [...] En það skiptir mestu máli að stóru ríkin, Banda­ríkin, Brasilía, Indland, Kína og fleiri, axli þá ábyrgð sem þeim ber. Þau eru mestu áhrifa­valdar í heim­inum í dag á lofts­lags­mál.“

Kostnaðaráætlun liggur ekki fyrir

Sigrún stað­festi í sam­tali við Kjarnann að ekki liggi fyrir kostn­að­ar­á­ætlun fyrir sókn­ar­á­ætl­un­ina. „Það á eftir að nákvæm­lega að setja krónur og aura á hverju verk­efni fyrir sig.“ Aðspurð hvort hún telji að það sé til nægt fjár­magn til að fjár­magna öll þessi verk­efni sagði Sigrún að hún hafi aldrei vitað til þess að ein­hverjum hafi fund­ist hann hafa fengið nóg af pen­ingum. „Ég er nú samt þeirrar gerðar, og hef í gegnum allt mitt líf, ekki haft af mikið af pen­ingum að segja. En verk­efnin geta náð árangri með sam­hjálp margra. Þannig vil ég líta á það. Ég vil líta á þetta þannig að við erum að breyta um hugsun. Við stöndum á þrös­k­uldi nýrra tíma. Í þessu sam­vinnu­ferli er ég sann­færð um að við náum árangri. Ef maður vill ná því mark­miði þá nær maður því mark­miði.“

Gildandi markmið sett aftur fram

Viðauki sem birtur hefur verið með sókn­ar­á­ætl­un­inni er fjórar blað­síður. Í honum er fjallað stutt­lega um þau 16 verk­efni sem rík­is­stjórnin ætlar að beita sér fyrir.

Athygli vekur að ekk­ert þeirra átta verk­efna sem ráð­ast á í til að draga úr nettólosun gróð­ur­hús­loft­teg­unda á Íslandi eru útfærð nema að mjög litlu leyti. Í við­auk­anum segir að aðgerð­ar­á­ætlun um orku­skipti verði lögð fram á vor­þingi 2016 og að Ísland hafi þegar sett sér það mark­mið að árið 2020 verði hlut­fall end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa í sam­göngum orðið tíu pró­sent og „mun starf á grunni vænt­an­legrar þings­á­lykt­unar miða að því að ná því marki.“

Það mark­mið er reyndar ekki nýtt af nál­inni. Íslend­ingar hafa haft það sem mark­mið að ná tíu pró­sent hlut­deild end­ur­nýj­an­legrar orku í sam­göngum árið 2020 um nokk­urt skeið.

Engin kúvending í rafbílavæðingu framundan

Annað verk­efni sem hefur mikið verið rætt um á Íslandi er raf­bíla­væð­ing. Halldór Þor­geirs­son, yfir­maður stefnu­mörk­unar hjá skrif­stofu Loft­lags­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna, sagði til að mynda á fundi sem Lands­virkjun stóð fyrir um loft­lags­breyt­ingar í maí 2015 að Íslend­ingar væru ekki að hugsa nógu stórt í þessum málum. „Ég held það komi til með að hafa mjög mikil áhrif á hag­sæld á þess­ari eyju til fram­tíðar að gera þetta. Auðvitað er svo­lítið dýr­ara að vera á undan öðrum, ég geri mér grein fyrir því en ég held það sé heldur ekki ábyrgt að bíða bara eftir því að allir verði komnir á raf­bíla og svo förum við á raf­bíla,“ sagði Halldór.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur líka talað um raf­bíla­væð­ingu. Í ræðu sem hann hélt á ráð­stefnu um raf­bíla­væð­ingu á Íslandi 13. nóv­em­ber í fyrra, sagði hann það vera ánægju­legt að Ísland væri í lyk­il­stöðu sem land sem geti fram­leitt nægt grænt elds­neyti fyrir bíla­flota fram­tíð­ar­innar. „Núver­andi rík­is­stjórn hefur frá upp­hafi lýst áhuga á að efla vist­vænar sam­göngur, eins og birt­ist í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar, þar sem áréttuð er sú sér­staða Íslend­inga að hafa aðgengi að end­ur­nýj­an­legum auð­lindum sem gerir okkur um leið fært að vera í far­ar­broddi í umhverf­is­málum. Stað­reyndin er sú að raf­bílar eru að verða raun­hæfur kostur og verða það enn frekar í fram­tíð­inni. Það sama má segja um leiðir til að knýja skip og önnur tæki sem hafa til þessa not­ast við jarð­efna­elds­neyti. Allt þetta gefur Íslandi mjög mikla mögu­leika á að verða fyrsta land í heimi sem ein­göngu nýtir end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa. Stjórn­völd á Íslandi stefna að orku­skiptum í sam­göngum og stefna meðal ann­ars að því, til lengri tíma litið, að skipta alfarið út hefð­bundnu jarð­efna­elds­neyti (bensín/dísel) yfir í aðra orku­gjafa fyrir bíla og önnur öku­tæki – orku­gjafa sem eru end­ur­nýj­an­legir og upp­runnir á Íslandi.“

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar segir einnig: „Mik­il­vægt er að beita hvetj­andi aðgerðum í efna­hags­líf­inu til að ýta undir græna starf­semi. Nýta ber vist­væna orku­gjafa enn frekar við sam­göngur. Hvatt verði til þess að dregið verði úr notkun jarð­efna­elds­neytis. Brýnt er að dregið verði úr nettólosun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda“.

Ekki er minnst á það í sókn­ar­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar að stefnt sé á að skipta alfarið út jarð­efna­elds­neyti í aðra orku­gjafa fyrir bíla og önnur öku­tæki.

Þess í stað á að efla inn­viði á lands­vísu fyrir raf­bíla. Í því felst að ríkið mun tíma­bundið styrkja átak til að byggja upp inn­viði fyrir raf­bíla þannig að hægt sé að að tryggja aðgengi að loft­lagsvænni sam­göngu­máta. Í við­auk­anum segir: „Vanda þarf til verka hvað þetta varðar og taka til­lit m.a. til sam­keppn­is­sjón­ar­miða og reynslu Norð­manna og fleiri ríkja af verk­efnum af þessu tagi. Grænu orkunni – sam­starfs­vett­vangi um orku­skipti í sam­göngum – verður falið að útfæra slíkt átak, sem verði fellt inn í fram­an­greinda aðgerða­á­ætlun um orku­skipti sem lögð verður fram á Alþingi á vor­þingi 2016. Sett verður til hliðar fjár­magn til að tryggja að hægt verði að vinna að þessu verk­efni strax á næsta ári.“ Það liggur því ekki fyrir nein útfærsla enn sem komið er á hvernig íslenska ríkið ætlar að beita sér fyrir raf­bíla­væð­ingu á Íslandi.

Markmið og vegvísar

Varðandi sam­drátt í losun sjáv­ar­út­vegs, eins stærsta not­anda jarð­efna­elds­neytis á Íslandi, hefur Hafinu-Önd­veg­is­setri, verið falið að gera veg­vísi um sjálf­bæra nýt­ingu og verndun hafs­ins. Veg­vísir­inn verður kost­aður af stjórn­völdum og sam­tökum í atvinnu­lífi og mark­mið hans verður að draga úr losun koldí­oxíðs um 40 pró­sent til árs­ins 2030, miðað við árið 1990. Engin útfærsla liggur því enn fyrir um það hvernig Ísland ætlar að ná þessu mark­miði.

Rík­is­stjórnin ætlar til við­bótar að stuðla að loft­lagsvænni land­bún­aði (með gerð veg­vísis), með efl­ingu skóg­ræktar og land­græðslu end­ur­heimt vot­lendis (sett verður á fót verk­efni sum­arið 2016), styrkjum til verk­efna sem miða að kolefn­is­jöfnun í rík­is­rekstri og með þvi að leggj­ast í átak gegn mat­ar­sóun. Engin þess­arra verk­efna eru útfærð sér­stak­lega.

Sam­an­tekið er rík­is­stjórn ekki með útfærða áætlun um það hvernig hún ætlar að leggja sitt að mörkum til að draga hratt úr losun gróð­ur­hús­loft­teg­unda hér­lendis á næstu árum, heldur mark­mið og hug­myndir um veg­vísa að þeim.

Þátttaka í alþjóðlegum verkefnum

Í sókn­ar­á­ætl­un­inni er einnig fjallað um fjögur verk­efni sem Ísland tekur þátt í til að draga úr losun á heims­vísu. Þar er sagt að Ísland muni ásamt Irena, alþjóða­stofnun um end­ur­nýj­an­lega orku, eiga frum­kvæði að því að stofna Global Geothermal Alliance á ráð­stefn­unni í París. Sú stofnun á að tala fyrir nýt­ingu jarð­hita á heims­vísu í stað jarð­efna­elds­neytis.

Auk þess verður stefnt að því að „efla þátt­töku Íslands í starfi Norð­ur­skauts­ráðs­ins þar sem unnið er að verk­efnum tengdum lofts­lags- og umhverf­is­breyt­ingum á norð­ur­slóðum. Meðal ann­ars er áætlun um minnkun los­unar á sóti og met­ani, rann­sóknir á áhrifum hlýn­unar af völdum lofts­lags­breyt­inga á vist­kerfi hafs­ins og efl­ing vökt­unar og rann­sókna á áhrifum lofts­lags­breyt­inga á norð­ur­slóðum. Ísland tekur við for­mennsku í ráð­inu árið 2019.“

Þá ætlar Ísland að greiða eina milljón dala, um 130 millj­ónir króna, í Græna loft­lags­sjóð­inn á árunum 2016 til 2020. Í við­auk­anum segir að umræddur sjóður verði: „helsti sjóður í heim­inum til fram­tíðar til lofts­lagstengdra verk­efna.“

Einnig mun Ísland halda áfram stuðn­ingi við loft­lagstengd verk­efni og sjóði sem varða þró­un­ar­ríkin.

Vísindaskýrsla og bætt bókhald

Afgangur sókn­ar­á­ætl­un­ar­innar, snýst um styrk­ingu inn­viða til að halda utan um mála­flokk­inn. Það á að nást með því að gera vís­inda­skýrslu um afleið­ingar loft­lags­breyt­inga á nátt­úru, efna­hag og sam­fé­lag á Íslandi. Hún á að koma út haustið 2016. Þá verður sett á fót verk­efni, stýrt af Veð­ur­stofu Íslands, um hvernig íslenskt sam­fé­lag geti brugð­ist við áhrifum loft­lags­breyt­inga hér­lendis. Fagráð verður skipað til að tryggja sam­hæf­ing­ar­hlut­verk verk­efn­is­ins.

Rík­is­stjórnin ætlar einnig að bæta bók­hald um spár um losun og kolefn­is­bind­ingu og bæta vöktun á breyt­ingu jökla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár