Ósigur Renzi og næstu skref á Ítalíu

Paolo Gentiloni var á sunnu­dag­inn síð­ast­lið­inn útnefndur nýr for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu og hefur staðið í ströngu þessa viku við að skipa nýja rík­is­stjórn. Hún er sú 64. í röð­inni eftir seinni heims­styrj­öld.

Paolo Gentilon tók nýverið við af Matteo Renzi sem forsætisráðherra Ítalíu. Þeir sjást hér saman í liðinni viku.
Paolo Gentilon tók nýverið við af Matteo Renzi sem for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu. Þeir sjást hér saman í lið­inni viku. Mynd: EPA

Formlega séð sner­ist þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan á Ítalíu, sem nýverið fór fram, um fimm stjórn­ar­skrár­breyt­ingar sem kosið var um í einum „pakka“. Meg­in­við­fangs­efni til­lag­anna var að fækka öld­unga­deild­ar­þing­mönnum úr 320 í 100 og skerða völd deild­ar­innar í þeim til­gangi að gera hana að eins konar ráð­gef­andi stofnun fyrir und­ir­deild þings­ins sem yrði þá valda­meiri. Þessar breyt­ingar ásamt umbótum á kosn­inga­kerf­inu á þann hátt að flokk­ur­inn með mesta fylgið hefði fengið óhlut­falls­lega háan hluta þing­sæta myndu gera það auð­veld­ara að koma málum í gegn.

Ástæð­urnar fyrir þessum til­lögum voru margar en Ítalía hefur haft 63 rík­is­stjórnir eftir seinni heims­styrj­öld og er stofn­ana­kerfi lands­ins sér­stak­lega hannað til að tor­velda laga­setn­ingu enda er það hannað í kjöl­far valda­tíð fas­ista­stjórnar Benito Mus­sol­ini. Samkvæmt Renzi myndu breyt­ing­arnar veita land­inu skil­virkara og stöðugra stjórn­ar­far og væru lyk­il­at­riði í því að geta komið í gegn lög­gjöf sem myndi hraða land­inu úr þeirri lang­vinnu og erf­iðu efna­hags­legu lægð sem landið hefur verið í á 21. öld­inni. Lífskjör á Ítalíu hafa ekki hækkað síðan um þús­ald­ar­mótin og er atvinnu­leysi, og þá sér­stak­lega atvinnu­leysi ung­menna, und­ir­liggj­andi vanda­mál sem hafa versnað í kjöl­far heimskrepp­unnar og evru­krís­unnar.

Nei við hverju?

Renzi áleit kosn­ing­arnar vera “núna eða aldrei“-augna­blik fyrir Ítalíu; annað hvort myndi þjóðin veita honum stuðn­ing til að koma á nauð­syn­legum breyt­ingm til að gera Ítalíu kleift að nútíma­væð­ast í stað þess að þró­ast lengra í átt­ina að því að verða hálf­gert „safn“ sem ætti ekki erindi í að taka for­ystu­hlut­verk á alþjóða­vett­vangi. Ef þjóðin ákvæði að veita honum ekki stuðn­ing var­aði Renzi við að ekki ein­ungis myndi hún kjósa gegn umbótum heldur einnig greiða leið­ina fyrir popúlist­ann Giuseppe „Beppe“ Grillo og flokk hans Fimm­stjörnu­hreyf­ing­una (Movimi­ento 5 Stelle), og öfga­hægri­flokk­inn Norð­ur­deild­ina (Lega Nord).

Þó eru skiptar skoð­anir um það hvort skil­grein­ing Renzi hafi verið sann­gjörn lýs­ing á þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni og koma þær úr öllum áttum; The Economist tjáði í leið­ara sínum um kosn­ing­arnar að þótt að það leiki eng­inn vafi á því að sár þörf sé fyrir umfangs­miklar umbætur á hinu staðn­aða hag­kerfi Ítalíu þá væru til­lögur Renzi ekki rétta með­alið, á meðan Jacobin Magazine hafði áhyggjur af því að til­lög­urnar myndu færa landið enn lengra á braut nýfrjáls­hyggj­unnar og skerða enn frekar rétt­indi laun­þega sem nú þegar hefðu átt undir högg að sækja í valda­tíð Renzi. Það þarf því að forð­ast að útskýra atkvæða­greiðsl­una ein­fald­lega sem bar­áttu á milli evr­ópu­sinn­aðra umbóta­afla gegn öfga­hægri popúl­isma og ber að skil­greina vel hvernig staðan á Ítalíu á sam­leið með stjórn­mála­þró­unum á þessu ári í löndum á borð við Banda­ríkin, Bretland, Austr­ríki, Frakk­land, Þýska­land.

Quitaly?

Ítalska þjóðin kaus gegn til­lög­unum með afger­andi hætti, 59% gegn 41%, og Renzi sagði af sér í kjöl­farið eins og hann hafði lofað. Í stað þess að boða strax til nýrra þing­kosn­inga ákvað for­seti lands­ins, Sergio Mattarella, að útnefna nýjan for­sæt­is­ráð­herra frá Demókra­ta­flokknum til að taka við af Renzi. Gentiloni, utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Renzi, varð fyrir val­inu og hefur í vik­unni skipað nýja rík­is­stjórn sem sam­anstendur að mestu leyti af fyrr­ver­andi ráð­herrum frá rík­is­stjórn Renzi.

Núver­andi kjör­tíma­bili lýkur í byrjun árs 2018 og lítur því út fyrir að rík­is­stjórn Gentiloni verði skamm­líf. Fimm­stjörnu­hreyf­ingin sem mælst hefur með stærsta fylgið að und­an­förnu, kall­aði eftir eftir nýjum þing­kosn­ingum í kjöl­far ósig­urs Renzi enda gæfi afsögn hans í skyn að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan sner­ist einnig um van­traust almenn­ings á sitj­andi rík­is­stjórn. Þó að hægt sé að skil­greina Fimm­stjörnu­hreyf­ing­una sem popúlista­flokk er hún ekki sam­bæri­leg öfga­hægriöflum eins og popúlista­flokkar víðs vegar um Evrópu. Flokk­ur­inn, sem á rætur sínar að rekja til bloggskrifa Beppo Grilli sner­ist upp­haf­lega um fimm atriði, eða „stjörnur“; opin­berar vatns­veitur, sjálf­bærar sam­göngur, sjálf­bæra þróun, rétt­inn að inter­net­að­gengi, og umhverf­is­vernd, en and­staða hans við þá spill­ingu sem hann telur ein­kenna hefð­bundnar stofn­anir í ítölsku sam­fé­lagi hefur gert hann skept­ískan gagn­vart evr­unni þó flokk­ur­inn sé hlynntur áfram­hald­andi ESB-aðild.

Ákvörðun Mattarella hefur gefið demókra­ta­flokknum tæki­færi á að klára kjör­tíma­bilið sitt en ljóst er að næstu þing­kosn­ingar á Ítalíu gætu aukið vægi popúlista veru­lega. Þó er lítil ástæða til að halda að 65. rík­is­stjórn lands­ins verði lang­líf­ari eða skil­virk­ari en þær sem á undan hafa gengið. Þá hlýtur spurn­ingin um hvaða stjórn­mála­menn og flokkar sem stjórna land­inu að vera síður áhuga­verð en sú hvernig og hvort Ítalíu tekst að glíma við þá efna­hags­legu og félags­legu patt­stöðu eða jafn­vel hnignun sem landið hefur staðið yfir síð­ustu ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár