Sigmar og Jóhannes Kr. ekki brotlegir gegn siðareglum blaðamanna

Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, Sigmar Guð­munds­son og Kastljós gerð­ust ekki sek um brot á siða­reglum Blaða­manna­fé­lags Íslands með umfjöllun sinni um óhefð­bundnar lækn­ingar. Þetta kemur fram í nýjum úrskurði siða­nefndar Blaða­manna­fé­lags­ins.

Ólafur Ein­ars­son og Björg Mart­eins­dóttir kærðu Jóhannes, Sigmar og Kastljós/RÚV til siða­nefnd­ar­innar þann 2. maí síð­ast­lið­inn, en þau og fyr­ir­tæki sem þau reka voru meðal ann­ars umfjöll­un­ar­efnið. Umfjöllun Kast­ljóss­ins um óhefð­bundnar lækn­ingar, sem vakti mikla athygli í mars á þessu ári, var meðal ann­ars byggð á efni úr faldri mynda­vél. Fyrsta kæru­at­riðið laut að því að allt efnið úr mynda­vél­inni væri ekki birt strax á vef RÚV.

Einnig kærðu Ólafur og Björg að í umfjöllun Kastljós „hafi því verið haldið fram að kær­andi Ólafur væri, beint og óbeint, að selja „gagns­lausan tækja­búnað“ og „efni með lof­orði um lækn­ingu.““ Þá kærðu þau að ekki hafi verið til­greint á þessum tækja­bún­aði væri 60 daga skila­réttur, því það hefði gefið raunsann­ari mynd af starf­semi kærend­anna. Ekki hafi verið að þvinga gagns­lausum tækja­bún­aði upp á fólk.

Þau kærðu einnig að þau hafi verið sögð eða vænd um að selja þennan tækja­búnað „undir borðið“. Í fimmta og síð­asta lagi kærðu þau að umfjöllun Kast­ljóss hafi haft í för með sér að sak­lausir aðilar hafi beðið skaða af, vegna þess að gler­augna­verslun þeirra Ólafs og Bjargar, Sjón­ar­hóll, hafi verið tengd starf­semi þeirra í félag­inu sem var til umfjöll­unar, en það félag heitir Allt hitt ehf (Heilsu­hring­ur­inn).

Sigmar og Jóhannes svör­uðu kæru­lið­unum. Þeir sögðu að tækni­legir örð­ug­leikar hafi valdið því að efnið í heild sinni birt­ist ekki strax á vefnum, síðar hafi allt verið birt. Þeir segj­ast ekki hafa talað um gagns­leysi tækis og bentu á að ummæli um gagns­lausan tækja­búnað og lækn­ingu hafi komið fram í lýs­ingu á við­skiptum á heims­vísu, ekki um þau Ólaf og Björgu sér­stak­lega. Þá segja þeir að það að tala um sölu undir borðið hafi verið eðli­leg mál­notkun og kærend­urnir hafi ekki fengið nauð­syn­leg leyfi og CE vott­anir.

Að lokum sögðu þeir að skýr teng­ing við fyr­ir­tækið Sjón­ar­hól megi finna á heima­síðu Heilsu­hrings­ins, auk þess sem Björg og Ólafur hafi sjálf tengt nöfn sín og Sjón­ar­hóls saman í tengslum við málið.

Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags­ins tekur undir öll svör þeirra Sigmars og Jóhann­esar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár