Katrín Jakobsdóttir útilokar ekki samstarf við Sjálfstæðisflokkinn

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, vill ekki úti­loka að flokkur hennar myndi rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum. Hún ræddi við Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær, og segir nokkuð ljóst að ekki sé annar val­kostur í rík­is­stjórn­ar­við­ræðum fyrir flokk sinn. Enn hafi þó ekki hefði verið tekið ákvörðun um hvort að við hann yrði reynt. Ákvörðun um það yrði tekin í þing­flokki Vinstri grænna og í kjöl­farið myndi liggja fyrir hvort Katrín skili stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu sem hún hefur haft í viku. Smári McCarthy, þing­maður Píratar, úti­lokar hins vegar að Píratar myndi rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum. Þetta kemur fram í DV í dag.

Því virð­ist nokkuð ljóst að eina fimm flokka rík­is­stjórn­ar­mynstrið sem enn er inni í mynd­inni er það sem reynt var við fyrr í þess­ari viku án árang­urs. Ekki verður mögu­legt að skipta Viðreisn út fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í þeim við­ræðum. Auk þess herma heim­ildir Kjarnans að ákveðið hafi verið innan Bjartrar fram­tíðar í gær­kvöldi að halda sam­starfi sínu við Viðreisn áfram. Þ.e. að fara ekki í rík­is­stjórn án þess flokks, en mikið hefur verið þrýst á Óttarr Proppé, for­mann flokks­ins, að hætta því til að geta orðið þátt­tak­andi í t.d. þriggja flokka rík­is­stjórn Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks.

Í DV er sagt að þing­flokkur Vinstri grænna legg­ist alfarið gegn því að mynda þriggja flokka rík­is­stjórn með bæði Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki. Ákveði Vinstri græn að fara í stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum, og banda­lag Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar heldur áfram, er ljóst að þá standi ein­ungis eftir rík­is­stjórn sem inni­héldi það banda­lag eða rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar.

Innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins er vilji til að taka aftur upp við­ræður við frjáls­lynda miðju­banda­lag Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, en upp úr við­ræðum flokk­anna slitn­aði fyrr í mán­uð­inum. Þeim vilja fylgir þó að þing­menn­irnir vilja fá Fram­sókn­ar­flokk­inn inn í við­ræð­urnar. Það hefur Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, úti­lokað aftur og aftur. Það komi ekki til greina að mynda rík­is­stjórn með bæði Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár