Ekkert samkomulag við Miðflokkinn né aðra stjórnarandstöðuflokka

For­sæt­is­ráð­herra segir ekk­ert sam­komu­lag um það hvernig þing­lokum verði háttað vera til staðar né sé slíkt í aug­sýn. Síðasta til­boði hennar, um að fresta ákveðnum málum fram í ágúst, var hafnað.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að ekk­ert sam­komu­lag sé til staðar um þing­lok, hvorki við Mið­flokk­inn né aðra flokka stjórn­ar­and­stöð­unnar. Í sam­tali við Kjarnann seg­ist hún ekki geta sagt til um hvenær þing­lok verði eins og stendur, en sam­kvæmt upp­haf­legri starfs­á­ætlun átti þingi að ljúka í dag, 6. júní.

[links]Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum var boðin sá val­kostur að fresta umræðum um tvö mál, þriðja orku­pakk­ann og sam­ein­ingu Seðla­banka Íslands við Fjár­mála­eft­ir­litið, fram í ágúst fyrr í þess­ari viku en því til­boði var hafnað.

Því blasti við í gær að áfram­hald­andi þrátafl yrði til staðar og að umræður um þriðja orku­pakk­ann, sem Mið­flokk­ur­inn hefur sett Íslands­met í mál­þófi í umræðum um, myndu halda áfram í dag.

Dagskrá breytt skyndilega

Þing­fundi var hins vegar skyndi­lega slitið rétt fyrir klukkan átta í gær­kvöldi í stað þess að hann myndi standa langt inn í nótt­ina og fram á morgun, líkt og verið hefur lengst af á meðan að á mál­þófi Mið­flokks­ins hefur staðið.

[adspot]Í kjöl­farið var dag­skrá þings­ins breytt og alls 41 mál sem stendur til að afgreiða sett á dag­skrá áður en að umræður um þriðja orku­pakk­ann halda áfram. Þessi breyt­ing Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis, fór mjög illa í þorra stjórn­ar­and­stöð­unnar sem telur að hún sé þvert á það sem rætt var um á þing­flokks­for­manna­fundi í gær.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði í umræðum um fund­ar­stjórn í morgun að Stein­grímur væri „krana­blaða­maður rík­is­stjórn­ar­innar“ og að hann færi fram með „offorsi og öllum sínum krafti.“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, sagði við sama til­efni að „þar til að nálg­ast hálft tólf í gærnótt lá fyrir að þessi fundur hér ætti að hefj­ast á óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum og svo ætti þriðji orku­pakk­inn að halda áfram út í hið óend­an­lega. En án fyr­ir­vara breytir for­seti dag­skránni, án sam­ráðs og þvert á fyrri orð, þvert á það sem for­seti hafði áður sagt þing­flokks­for­mönnum. Um það snýst gagn­rýni stjórn­ar­and­stöð­unnar.“

Vilja ekki gera samkomulag saman

Mikil patt­staða er því uppi á Alþingi. Hún er meðal ann­ars vegna þess að stjórn­ar­and­staðan er ekki sam­stíga og skipt­ist í tvær fylk­ingar. Í annarri eru fjórir flokkar: Sam­fylk­ing, Viðreisn, Píratar og Flokkur fólks­ins og í hinni er Mið­flokk­ur­inn.

[adspot]Tilboðið sem gert var fyrr í vik­unni, um að fresta umræðu um tvö mál þangað til í ágúst, átti að friða báðar þessar fylk­ingar. Sú fyrri hefur lagst hart gegn því að frum­varp um sam­ein­ingu Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits verði sam­þykkt í óbreyttri mynd og Mið­flokk­ur­inn hefur einn flokka haldið uppi áður óþekktu mál­þófi gegn þriðja orku­pakk­anum, sem alls fimm flokkar á þingi með 51 þing­mann af 63 innan sinna raða, styðja.

Hluti vanda­máls­ins snýst um að meiri­hluti stjórn­ar­and­stöð­unnar vill ekki bera ábyrgð á Mið­flokknum heldur vill semja sér­stak­lega um þing­lok við stjórn­ina og láta Mið­flokk­inn gera sitt eigið sam­komu­lag. Rík­is­stjórnin vill á móti semja við alla stjórn­ar­and­stöð­una í einu.

Aðspurð segir for­sæt­is­ráð­herra að ekk­ert sam­komu­lag sé til staðar né að slíkt sé í píp­unum. „Hvorki við Mið­flokk­inn né hina stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

þriðjiorkupakkinn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár