Össur segir Illuga ekki sætt áfram í ríkisstjórn vegna RÚV

„Þegar ráð­herra nær ekki fram stefnu varð­andi lyk­il­stofnun þá er honum tæp­ast sætt lengur í rík­is­stjórn. Þá er hann orð­inn það sem stundum heitir á ensku máli, með leyfi for­seta, lame duck.“

Þetta segir Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, um Illuga Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Ólína Þor­varð­ar­dóttir, sam­flokks­kona Össurar, spurði Össur um mat hans á stöðu Illuga í ljósi þess að frum­varp hans um RÚV muni lík­lega ekki nást út úr rík­is­stjórn.

Illug sagði sjálfur í fréttum RÚV í gær­kvöldi að odd­vitar rík­is­stjórn­ar­innar meti það sem svo að ekki sé nægur stuðn­ingur í þing­flokkum Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks við frum­varp hans um óbreytt útvarps­gjald. Hann er samt von­góður um að frum­varpið verði afgreitt fyrir jól.

„Stjórn­skipu­lega hefur þetta leitt til stöðu sem er óvið­un­andi fyrir hæst­virtan mennta­mála­ráð­herra. Hann hefur upp­lýst það að hann hafi mótað stefnu í mál­efnum einnar helstu stofn­unar síns ráðu­neytis. Hann hefur lagt þá stefnu fyrir rík­is­stjórn­ina og það kemur í ljós að innan rík­is­stjórn­ar­innar þá nýtur hann ekki stuðn­ings fyrir stefn­unni. Í máli sem þessu þá á hann í raun­inni engan móralskan kost annan heldur en þann að segja af sér. Þannig lít ég á málið,“ sagði Össur og Ólína tók undir með honum. 

Össur rifj­aði upp dæmi af sjálfum sér sem utan­rík­is­ráð­herra. Á tíma hafi virst sem svo að honum tæk­ist ekki að koma fram stefnu sinni um fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu. „Þá gekk ég á fund Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og sagði henni að ég mundi þá ekki sitja lengur í hennar ráðu­neyti. Menn verða að taka afleið­ingum sinnar stefnu og sinna gerða.“

Hins vegar væru ekki öll kurl til grafar komin í mál­inu og Össur telur að mál­inu sé ekki lokið. „Það er mögu­legt að hæst­virtur ráð­herra verði dreg­inn að landi áður en þriðju umræðu lýkur.“ Það að skilja hann eftir með málið jafn­gildi því að ýta honum út úr rík­is­stjórn, og hann trúi því ekki að það ger­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár