Lögreglufulltrúinn átti nær enga aðkomu að tálbeituaðgerðinni – svona misheppnaðist hún

Vakta­skipti og sam­skipta­örð­ug­leikar við Hótel Frón: Orðið „go“ mis­skild­ist og höf­uð­paur­inn slapp.

Fyrr­ver­andi lög­reglu­full­trúi úr fíkni­efna­deild, sem hreins­aður hefur verið af ásök­unum um óeðli­leg sam­skipti við aðila úr fíkni­efna­heim­inum, átti nær enga aðkomu að stjórnun og fram­kvæmd tál­beitu­að­gerð­ar­innar við Hótel Frón sem fór út um þúfur í apríl árið 2014. Því hefur þó verið haldið fram í fjöl­miðlum að hann hafi stýrt aðgerð­inni. Maðurinn var á nám­skeiði hjá Lög­reglu­skól­anum dag­inn sem aðgerðin fór fram og kom ekki til vinnu fyrr en um það leyti sem henni var að ljúka. 

Mirjam van Twuyver
Mirjam van Twuyver

Þann 8. jan­úar síð­ast­lið­inn birt­ist frétt á Vísi.is um að umræddur lög­reglu­full­trúi hefði stýrt tál­beitu­að­gerð­inni. Sem kunn­ugt er hlaut Mirjam van Twuyver, hol­lensk móðir og „burð­ar­dýrið“ í mál­inu, átta ára fang­els­is­dóm og íslenskur sendi­sveinn fjög­urra ára dóm en höf­uð­paur­inn á bak við inn­flutn­ing fíkni­efn­anna slapp í ljósi þess að lög­regla hand­tók sendi­svein­inn fyrr en til stóð.

Í skýrslu­tökum hjá hér­aðs­sak­sókn­ara gáfu sex lög­reglu­menn sömu eða svip­aðar skýr­ingar á því hvers vegna þeir töldu aðgerð­ina hafa mis­tek­ist og töldu lög­reglu­full­trú­ann ekki hafa haft nein áhrif á gang mála. 

Maðurinn var ekki lát­inn bera vitni fyrir dómi, enda var aðkoma hans að aðgerð­inni nær engin. Þá hefur Vísir greint frá því að nafn hans komi ekki fyrir í rann­sókn­ar­gögnum máls­ins.

Orðið „go“ misskildist

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Stundin hefur aflað leiddu óskýr fyr­ir­mæli og sam­skipta­leysi, meðal ann­ars vegna vakta­skipta hjá sér­sveita­mönnum, til þess að sendi­sveinn­inn var hand­tek­inn of snemma, áður en hann gat leitt lög­regl­una að höf­uð­paurnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár