Mynd: Bára Huld Beck

Rannsókn á Skeljungsmálinu og Procar-málinu lokið og þau komin til saksóknara

Umfangs­mikil rann­sókn á meintum stór­felldum efna­hags­brotum sem talið er að hafi verið framin þegar olíu­fé­lagið Skelj­ungur og tengd félög voru keypt og seld á árunum 2008 til 2013, er lokið.

Rannsókn á tveimur efna­hags­brota­málum sem hafa verið í rann­sókn hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara í lengri tíma er lokið, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Annað málið er kennt við Skeljung og hitt við bíla­leig­una Procar.

Öllum rann­sókn­ar­gögnum hefur nú verið skilað inn til sak­sókn­ara sem mun fara yfir þau og taka ákvörðun um hvort gefin verði út ákæra í mál­unum eða þau felld niður. Ekki er búist við að nið­ur­staða liggi fyrir um hvor leiðin verði far­inn fyrr en snemma á næsta ári.

Fimm fengu réttarstöðu sakbornings

Fimmtu­dag­inn 31. maí 2018 réðst emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara í umfangs­miklar aðgerðir vegna máls sem hafði verið til skoð­unar þar frá miðju árið 2016. Málið sner­ist um meint umboðs­svik, meint skila­svik, mögu­leg mútu­brot og mögu­legt brot á lögum um pen­inga­þvætti þegar olíu­fé­lagið Skelj­ungur og tengd félög voru keypt og seld á árunum 2008 til 2013. Við brot­unum getur legið allt að sex ára fang­els­is­vist.

Fimm ein­stak­lingar fengu stöðu sak­born­ings við rann­sókn máls­ins. Tvö þeirra, Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir og Guð­mundur Þórð­ar­son, voru hand­tek­in í kringum aðgerð­irn­ar.

Hin þrjú; Einar Örn Ólafs­son, Halla Sig­rún Hjart­ar­dóttir og Kári Guð­jóns­son, sem unnu saman í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitnis fyrir um ára­tug, voru boðuð til skýrslu­töku á sama tíma. Fólkið er grunað um að hafa mis­notað aðstöðu sína til að koma eignum út úr banka á und­ir­verði, að hafa nýtt sam­eig­in­legar eignir Skelj­ungs og bank­ans til að greiða fyrir kaup í félag­inu, að hafa vilj­andi rýrt eignir Íslands­banka og að hafa gert með sér sam­komu­lag þar sem Svan­hildur Nanna og Guð­mundur afhentu hinum þremur sem seldu þeim Skelj­ung yfir 800 millj­ónir króna hverju fyrir sig fyrir þeirra aðkomu að mál­inu.

Á sama tíma og hand­tök­urnar áttu sér stað fóru fram hús­leitir víða um höf­uð­borg­ar­svæðið í tengslum við rann­sókn máls­ins. Engar eignir voru þó kyrr­settar á því stigi máls­ins, en fólkið hefur allt efn­ast mjög hratt á síð­ustu árum og eru flest afar fyr­ir­ferða­mikil í íslensku við­skipta­lífi í dag. Einar Örn er til að mynda stjórn­ar­for­maður og einn stærsti hlut­hafi flug­fé­lags­ins Play og stór hlut­hafi í fjár­fest­inga­fé­lag­inu Stoðum, sem á meðal ann­ars stóra hluti í Símanum, Play, Arion banka og Kviku banka. Svan­hildur Nanna er meðal ann­ars stór hlut­hafi í Kviku banka og situr í stjórn vel­gjörð­ar­fé­lags­ins 1881, bak­hjarli nýrra við­skipta­verð­launa Innherja á Vísi sem veitt voru í gær. Guð­mundur Örn, sem er fyrr­ver­andi eig­in­maður Svan­hildar Nönnu, situr í stjórn Kviku banka.

Hægt er að lesa allt um Skelj­ungs­málið hér að neðan:

Skrúfuðu til baka kílómetramæla í bílum

Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur opin­ber­aði Procar-málið í febr­úar 2019. Í þætt­inum var sagt frá því að starfs­menn Procar hefðu tekið sig til og skrúfað til baka kíló­metra­mæla í bílum og selt þá svo almenn­ingi á bíla­sölum lands­ins. Þetta hafði átt sér stað um ára­langt skeið og fórn­ar­lömbin voru fjöl­mörg.

Í yfir­lýs­ingu sem send var út fyrir hönd stjórnar Procar eftir þátt­inn kom fram að fyr­ir­tækið hefði á árunum 2013 til 2015 selt um 650 not­aðar bif­reiðar. „Fram hefur komið að átt hafði verið við kíló­metra­mæla í hluta þess­ara bíla, eða í um 100-120 af þeim bílum sem fyr­ir­tækið seldi á tíma­bil­inu, en end­an­legur listi um fjöld­ann liggur ekki enn fyrir. Þetta var gert með því að akst­urs­mælar bíl­anna voru „færðir niður“ og þannig gefið til kynna að þeir væru minna eknir en raun var á. Í flestum til­fellum nam nið­ur­færslan 15-30 þús­und kíló­metrum. Til­gang­ur­inn var að gera bíla fyr­ir­tæk­is­ins auð­selj­an­legri en á þessum árum kom mik­ill fjöldi bíla á mark­að­inn frá bíla­leigum og hörð sam­keppni var um sölu á not­uðum bílum til almenn­ings. Þessum inn­gripum í akst­urs­skrán­ingu bíl­anna var hætt árið 2015. Sá sem bar ábyrgð á þess­ari fram­kvæmd hefur hætt störfum og kemur ekki lengur nálægt rekstri fyr­ir­tæk­is­ins.“

Málið hefur verið í rann­sókn frá þeim tíma og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans er henni nú lokið. Gögn máls­ins eru nú til yfir­ferðar hjá sak­sókn­ara hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara sem tekur ákvörðun um hvort ákæra verður gefin á hendur fyr­ir­svars­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins eða málið fellt niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár