„Yfirsýnin greinilega engin og ráðherrar þekkja illa sín málefnasvið“

Þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði á þingi í dag að hún hefði fullan skiln­ing á því að það tæki ráð­herra tíma að setja sig inn í emb­ætti en það væri óheppi­legt þegar þeir væru bein­línis að leggja fram frum­vörp sem ekki eru á þeirra mál­efna­sviði.

Helga Vala Helgadóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
Helga Vala Helga­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala Helga­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra ræddu mál­efni fólks á flótta í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Þing­mað­ur­inn byrj­aði á því að vísa í frum­varp Jóns Gunn­ars­sonar inn­an­rík­is­ráð­herra til breyt­inga á lögum um útlend­inga er varðar umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sem birt er í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. „Svo virð­ist sem hæst­virtur ráð­herra sé þar hvort tveggja að leggja til laga­breyt­ingar á sínu mál­efna­sviði sem og á mál­efna­sviði hæst­virts félags­mála­ráð­herra, sem hlýtur þá að vera sam­þykkur frum­varp­inu,“ sagði hún.

Vildi hún í fyr­ir­spurn sinni spyrja Guðmund Inga út í þær breyt­ingar sem lagðar eru til að verði á þjón­ustu við fólk á flótta þess efnis að 30 dögum eftir synjun umsóknar falli öll þjón­usta niður – þar með talið húsa­skjól, fram­færsla og heil­brigð­is­þjón­usta. Helga Vala sagði að þar væri ekki und­an­skil­inn hópur sem vegna veik­inda sem komin væru til vegna flótt­ans, en hann væri í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu.

„Þá er vert að vekja athygli á að þessi 30 daga frestur er ein­göngu fyrir þau sem koma beint frá ríki utan EES og þau sem koma ekki frá svoköll­uðum öruggum ríkjum. 30 daga frest­ur­inn á ekki við hina, alla hina sem ein­hvern veg­inn komu frá öðrum ríkjum og missa rak­leitt rétt­indi sín eftir að stjórn­völd hafa synjað umsókn þeirra. Nú skulum við átta okkur á því að með þessu getur sá sem lendir í slysi eða sá sem á við alvar­legan heil­brigð­is­vanda að etja ekki fengið nokkra ein­ustu þjón­ustu hér á landi, ekki heil­brigð­is­þjón­ustu og við­kom­andi skal búa á göt­unni í boði íslenskra stjórn­valda.“

Spurði hún hvað Guð­mundur Ingi og Jón töldu sig ná fram með slíkum breyt­ingum „að gera fólki að koma sér fyrir út undir vegg um borg og bæ á meðan beðið er brott­flutn­ings og þar með geti stjórn­völd ekki haft neina yfir­sýn yfir hvar fólkið er eða hvernig því vegnar né veitt því lífs­nauð­syn­lega þjón­ustu á meðan það bíður brott­vís­unar“.

„Verð að viðurkenna að þetta er eitthvað sem ég þarf að setjast betur yfir“

Guð­mundur Ingi kom í pontu og byrj­aði á því að þakka þing­manni fyrir fyr­ir­spurn­ina. „Umrætt frum­varp sem hátt­virtur þing­maður nefnir hefur að geyma ákveðna þætti sem varða – ef ég er að horfa á sama frum­varp og hátt­virtur þing­maður, þ.e. sem hefur að geyma ákveðna þætti er varða atvinnu­leyfi,“ sagði ráð­herr­ann en þegar hann var í miðri setn­ingu var hrópað úr salnum að málið sner­ist ekki um það.

„Það er ekki svo. Það er þá hitt. Ókei, hátt­virtur þing­maður er þá að tala um þjón­ust­una. Ég er búinn að ná því núna. Þakka þér fyrir, hátt­virtur þing­maður. Ég verð að við­ur­kenna að þetta er eitt­hvað sem ég þarf að setj­ast betur yfir. Ég tel að þetta sé eitt­hvað sem við þurfum að skoða. Það hefur verið í umræð­unni með hvaða móti eigi að reyna að takast á við þá þætti eða þann hóp af fólki sem orðið hefur eftir vegna COVID og hefur fengið frá­vísun frá land­inu, með hvaða hætti megi auð­velda og hjálpa því fólki að kom­ast heim til sín sem hefur neitað að fara heim. Verk­efnið í mínum huga er með hvaða móti við getum leyst það. Síðan eru hér lagðar fram ákveðnar til­lögur í þessu frum­varpi ráð­herr­ans. En ég vil fá að kynna mér þetta betur, ég ætla að vera alger­lega hrein­skil­inn með það, og mun gera það,“ sagði hann.

Óheppilegt að uppskipting Stjórnarráðsins bitnaði svona harkalega á fólki í neyð

Helga Vala sagði að það væri óheppi­legt að upp­skipt­ing Stjórn­ar­ráðs­ins bitn­aði svona harka­lega á fólki í neyð þegar sá sem fer með þjón­ustu fólks í leit að vernd hér á landi væri ókunn­ugt um að í sam­ráðs­gátt lægi frum­varp frá inn­an­rík­is­ráð­herra er varðar mál­efna­svið félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra.

„Þetta er eitt dæmi um þann rugl­ing sem þessi upp­skipt­ing hefur valdið inni í stjórn­kerf­inu, eitt­hvað sem við hér í stjórn­ar­and­stöð­unni höfum mót­mælt harð­lega, enda er yfir­sýnin greini­lega engin og ráð­herrar þekkja illa sín mál­efna­svið. Auðvitað hefur maður fullan skiln­ing á því að það taki tíma að setja sig inn í emb­ætti, en það er óheppi­legt þegar ráð­herrar eru bein­línis að leggja fram frum­vörp sem ekki eru á þeirra mál­efna­sviði,“ sagði hún.

Spurði hún að end­ingu út í upp­sögn á þjón­ustu­samn­ingi við Rauða kross Íslands, hvort Guðmundi Inga væri kunn­ugt um upp­sögn á þeim samn­ingi en starfs­fólk Rauða kross­ins fékk upp­sagn­ar­bréfið afhent í dag, sam­kvæmt Helgu Völu.

Þurfa ráðrúm til að haga málum með samræmdum og góðum hætti

Guð­mundur Ingi svar­aði aftur og sagði að þær ákvarð­anir sem þau hefðu tekið í félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­inu væru ein­fald­lega þær að gera samn­ing við Útlend­inga­stofnun núna í nokkra mán­uði til þess að ekki kæmi rof í þjón­ust­una sem þau væru að taka við í ráðu­neyt­inu og yrði á þeirra ábyrgð.

„Í þeim samn­ingi sem ekki er búið að ganga frá er ekki fjallað um aðkomu Rauða kross­ins og ég er þeirrar skoð­unar að á meðan við erum að reyna að sam­hæfa þjón­ustu hæl­is­leit­enda og þeirra sem hér hafa fengið alþjóð­lega vernd þá þurfum við þetta ráð­rúm sem ég vil gefa okkur, nokkra mán­uði.

Meðan á þeim tíma stendur hef ég ekki hugsað mér að segja upp samn­ingi við Rauða kross­inn og hef ekki hugsað mér annað en að gera samn­ing við Útlend­inga­stofnun um að sinna þessum málum þar til við höfum fengið ráð­rúm til að haga þessum málum með sam­ræmdum og góðum hætti,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár