Björgólfur Thor og félagar hagnast um 20 milljarða á CCP-sölunni

Novator og tengd félög áttu 43,42% hlut í CCP sem selt hefur verið til suður-kóresks leikja­fram­leið­anda á 46 millj­arða króna. Hilmar Veigar Pét­urs­son, for­stjóri CCP, hagn­ast um allt að 3 millj­arða.

Björgólfur Thor
Björgólfur Thor Forbes metur auð Björg­ólfs á 200 millj­arða króna. Mynd:

Novator, félag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, hagn­ast um allt að 20 millj­arða króna við söl­una á tölvu­leikja­fram­leið­and­anum CCP til suður-kóreska fyr­ir­tæk­is­ins Pearl Abyss. For­stjóri CCP, Hilmar Veigar Pét­urs­son, hagn­ast sjálfur um allt að 3 millj­arða króna.

Hilmar Veigar Pét­urs­son

Salan var til­kynnt á fimmtu­dag og hljóðar kaup­verðið upp á 425 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða 46 millj­arða íslenskra króna. Annar hluti kaup­verðs­ins greið­ist innan tveggja ára og er árang­urstengdur. Mikið veltur því fyrir selj­endur á að áætl­anir fyr­ir­tæk­is­ins til næstu ára stand­ist vænt­ingar. Hilmar Veigar átti 6,5% hlut í CCP og mun áfram stýra fyr­ir­tæk­inu eftir kaupin.

Pearl Abyss gefur út leik­inn Black Desert Online, en flagg­skip CCP er fjöl­spil­un­ar­leik­ur­inn EVE Online. Fyr­ir­tækið var stofnað árið 1997 og fjár­magn­aði upp­haf­lega þróun leiks­ins með útgáfu borð­spils­ins Hættu­spil. Samkvæmt samn­ingnum sem fyr­ir­tækin hafa und­ir­ritað mun CCP starfa áfram sem sjálf­stæð heild og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár