Ráðamenn í norskum smábæ vilja ekki fleiri ferðamenn

Lofoten eyj­arnar í Noregi hafa notið auk­inna vin­sælda ferða­manna og íbúar og ráða­menn ótt­ast að það verði of mikið af hinu góða eftir að Hollywood-kvik­mynd verður tekin upp þar. Vanda­málin eru keim­lík þeim íslensku þegar kemur að ferða­þjón­ustu.

Lofoten-eyjarnar þykja fagrar og njóta sívaxandi vinsælda ferðamanna.
Lofoten-eyj­arnar þykja fagrar og njóta sívax­andi vin­sælda ferða­manna. Mynd: EPA

Mikil hætta er á því að Lofoten-eyj­arnar í Noregi verði fyrir skemmdum vegna ágangs ferða­manna þar, segja ráða­menn á staðnum. Þeir biðj­ast undan því að fá fleiri ferða­menn á þennan afskekkta stað. Yfir ein milljón ferða­manna heim­sótti eyj­arnar síð­asta sumar og bæj­ar­stjór­inn í Flakstad, Hans Fredrik Sørdal, hefur áhyggjur af ástand­inu og tjáði sig við norska rík­is­út­varpið NRK.

Stór­stjarnan Matt Damon er nú við tökur á nýrri mynd. Downsizing, á eyj­unum og það er talið geta ýtt undir að enn fleiri ferða­menn komi þangað. Þá hefur fjölgun ferða­manna einnig verið tengd við teikni­mynd­ina Frozen, sem er vin­sælasta teikni­mynd allra tíma, en norsk ferða­mála­yf­ir­völd studdu gerð mynd­ar­innar, sem var teiknuð eftir norsku lands­lagi. Í kjöl­farið jókst ferða­manna­straum­ur­inn til Noregs um 20%.

Gunnar Skjeseth, sem á ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki í Troll­firði, segir jákvætt að millj­ónir manna muni sjá eyj­arnar í mynd­inni. Engu að síður gæti það valdið of miklum straumi ferða­manna, þar sem ferða­þjón­ustu­að­ilar hafi „meira en nóg að gera nú þegar.“

Sørdal segir jafn­framt að þrátt fyrir að jákvætt sé að stað­ur­inn fái athygli vegna mynd­ar­innar verði að hafa í huga að inn­viðir á staðnum væru nú þegar undir gríð­ar­legu álagi.

Íbúarnir á eyj­unum eru 24.500 tals­ins og þeir hafa meðal ann­ars kvartað undan umferð­ar­þunga og miklum skorti á almenn­ings­kló­settum. Norska rík­is­út­varpið hefur fjallað um ferða­menn sem geri þarfir sínar á víða­vangi.

Þá segir Sørdal að ein­breiðar brýr og vegir geti ekki annað umferð­inni sem fylgir auknum fjölda bíla­leigu­bíla. Auk þess séu fjalla­stígar og slóðar víða í slæmu ásig­komu­lagi.

Bæj­ar­stjór­inn ótt­ast slys vegna þessa. „Náttúran er við­kvæm, og krefst þess að við séum miklu betur und­ir­búin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár