Oxford Street verði göngugata árið 2020

Borg­ar­stjór­inn í London vill gera Oxford Street að göngu­götu. Fleiri borgir í Evrópu og í Ameríku hyggj­ast loka fjöl­förnum götum fyrir umferð bíla.

Oxford Street verður göngugata frá og með 2020.
Oxford Street verður göngu­gata frá og með 2020. Mynd: EPA

Sadiq Khan, borg­ar­stjóri í London, hefur kynnt áform borg­ar­yf­ir­valda í London um að gera Oxford Street alfarið að göngu­götu. Umferð vél­knú­inna öku­tækja er þegar tak­mörkuð á þess­ari vin­sælu versl­un­ar­götu í höf­uð­borg Bret­lands á milli sjö á morgn­anna og sjö á kvöldin.

Lokunin á Oxford Street mun ná yfir tæpa tvo kíló­metra þegar allt er til talið. Gatna­skipu­lag­inu verður breytt í nokkrum skrefum en þegar breyt­ing­unum lýkur árið 2020 verður Oxford Street aðeins fyrir gang­andi veg­far­endur frá Totten­ham Court Road og að Marble Arch og Hyde Park. BBC greinir meðal ann­ars frá þessu. Khan er ekki fyrsti borg­ar­stjór­inn í London til að leggja þetta til, eins og The Guardian hefur bent á.

Tak­mörkun á bíla­um­ferð við vin­sæl­ustu versl­unar- og þjón­ustu­götur er að verða algeng­ari bæði í Evrópu og vest­an­hafs. Rann­sóknir hafa sýnt að lok­anir fyrir umferð vél­knú­inna far­ar­tækja glæða verslun og þjón­ustu við göt­una og í næsta nágrenni.

Lokun Oxford Street er hluti af áætlun borg­ar­stjór­ans til að minnka loft­mengun í borg­inni. Auk þess er öryggi veg­far­enda og næði þeirra nefnt sem ástæður. Meira en fjórar millj­ónir sækja Oxford Street á degi hverjum.

Í Reykja­vík hefur helstu umferð­ar­götum gang­andi veg­far­enda verið lokað fyrir umferð vél­knú­inna öku­tækja á sumrin með verk­efn­inu Sumar götur. Gangandi veg­far­endur þurfa þá ekki að gæta sín á umferð bíla frá Vatns­stíg í austri og að Lækj­ar­götu. Í Kvosinni hefur Aust­ur­stræti verið lokað fyrir vél­knúna umferð frá Lækj­ar­götu og á sumrin er Póst­hús­strætið einnig lokað. Slíkt er einnig gert á Þor­láks­messu að vetri þegar fjöl­margir sækja mið­bæ­inn til að ganga frá síð­ustu jólainn­kaup­unum og óska vinum gleði­legra jóla.

Í aðal­skipu­lagi Reykja­víkur sem sam­þykkt var árið 2010 er stefnt að því að gera umferð gang­andi og hjólandi veg­far­enda mun greið­ari í borg­inni. Borg­ar­búar hafa þegar tekið eftir fram­kvæmdum við umferð­ar­götur vegna þessa. Um þessar mundir standa til dæmis yfir breyt­ingar á Grens­ás­vegi þar sem þrengt verður að umferð bíla til að gera gang­andi og hjólandi veg­far­endum auð­veld­ara um vik að kom­ast leiðar sinnar.

Þessar áherslur borg­ar­yf­ir­valda í Reykja­vík hafa hins vegar mætt nokk­urri and­stöðu. Fáeinir versl­un­ar­eig­endur við Laugaveg og Skóla­vörðu­stíg hafa til dæmis lýst áhyggjum sínum um að aðsókn í versl­an­irnar sé tengd umferð bíla. Þess vegna drag­ist verslun saman þegar gatan er opnuð fyrir gang­andi veg­far­endur. Rann­sóknir sem gerðar hafa verið á sam­bæri­legum lok­unum og breyt­ingum á versl­un­ar­götum í mið­borgum benda hins vegar til þess að lok­anir fyrir bíla­um­ferð glæði sam­fé­lagið, verslun og þjón­ustu.

Breyting skipu­lags í mið­borgum eins og áætluð er í London og hefur verið reynd í Reykja­vík hefur óhjá­kvæmi­lega í för með sér breyt­ingar á hegðun veg­far­enda og þar af leið­andi á versl­anir við göt­urnar. Við lok­an­irnar virð­ast svæðin í kringum versl­un­ar­göt­un­arnar glæð­ast enn frekar með auk­inni umferð fólks, hvort sem það eru gang­andi eða akandi veg­far­endur.

Íslend­ingar þekkja flestir Strikið, göngu­göt­una í Kaup­manna­höfn. Gatan var fyrst lokuð fyrir umferð vél­knú­inna öku­tækja árið 1962 um leið og aukin áhersla var lögð á umferð gang­andi og hjólandi veg­far­enda í kjarna borg­ar­innar. Síðan hefur Strikið orðið að helsta aðdrátt­ar­afli mið­borg­ar­innar og er áfanga­staður bæði ferða­manna og íbúa borg­ar­innar á degi hverjum. Skipulag Kaup­manna­hafnar hefur einnig orðið að fyr­ir­mynd ann­arra borga þegar kemur að auk­inni áherslu á umferð gang­andi veg­far­enda. Árið 2015 var Kaup­manna­höfn svo Græna höf­uð­borg Evrópu.

Slóvenska fyrirmyndin

Fyrir árið 2016 var Ljúblí­ana, höf­uð­borg Slóveníu, valin Græna höf­uð­borg Evrópu. Þær leiðir sem farnar hafa verið þar eru ekki síður áhug­verðar því allur gamli bær­inn er bíl­laus. Þar heyr­ist hvergi í bíl­vél í lausa­gangi, föst í traffík. Aðeins gang­andi veg­far­endur, hjól­reiða­menn og almenn­ings­vagnar fá að fara um gamla bæinn. Og þeir leigu­bílar sem fá að sækja far­þega í gamla bæinn verða að vera raf­knúnir.

Þegar borg­ar­stjór­inn Zoran Jankó­víts tók við taumunum árið 2006 var það með fyrstu ákvörð­unum hans að loka fyrir bíla­um­ferð­ina. Hann hefur síðan verið end­ur­kjör­inn þrisvar sinnum. „Þegar ég tók við vissi ég ekk­ert um skipu­lag borg­ar­innar,“ er haft eftir Jankó­víts á vef Citiscope.org. „Við unnum áætl­an­irnar okkar eins og við værum að reka fyr­ir­tæki, með skipu­lag og mark­mið.“

„Til að byrja með voru þetta erf­iðar ákvarð­anir,“ segir hann um lok­an­irnar og segir það hafa verið vegna þess að hann hafði aldrei fullan stuðn­ing til þess. „Átta árum síðar, ef ég þyrfti að spyrja íbú­ana hvað þeim finnd­ist í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, er ég viss um að 90 pró­sent þeirra myndu vilja hafa göt­urnar lok­aðar áfram.“

Nú er svo komið að fleiri höf­uð­borgir í Evrópu hyggj­ast loka mið­borgum sínum fyrir umferð vél­knú­inna öku­tækja. Þeirra á meðal eru Osló, Brussel og Madríd sem hyggj­ast fara að for­dæmi Ljúblí­ana. Sló­venska höf­uð­borgin hefur reynst góð „rann­sókn­ar­stofa“ fyrir þessar skipu­lags­breyt­ingar enda er gamli bær­inn lít­ill. Aðeins tekur um 15 mín­útur að ganga í gegnum hann miðjan, ekki ósvipað því sem það tekur að ganga frá Lækj­ar­götu að Hlemmi í Reykja­vík.

Að fyr­ir­mynd Ljúblí­ana ætla þær borgir sem hyggj­ast loka byggja fleiri bíla­stæði neð­an­jarðar í jaðri lok­aða svæð­is­ins. Því fylgir inn­viða­upp­bygg­ing í almenn­ings­sam­göngum einnig til að auð­velda ferðir fólks um lok­aða svæðið, hvort sem það er með spor­vögnum, stræt­is­vögnum eða hjólum til leigu.

Í Osló verður bannað að aka bílum í mið­borg­inni frá og með 2019. Er þetta gert til að draga úr mengun. Stjórn­völd í Osló hafa stært sig af því að verða sú borg sem hygg­ist ganga hvað lengst í þessum efnum. Til að auð­velda breyt­ing­arnar ætlar borgin að leggja meira en 60 kíló­metra af hjóla­stígum og fjár­festa meira í almenn­ings­sam­göngum. „Við viljum gera borg­ina betri fyrir gang­andi veg­far­endur og hjól­reiða­fólk. Það verður betra fyrir versl­anir og alla,“ var haft eftir Lan Marie Nguyen Berg, aðal­samn­inga­manns Græn­ingja í Osló.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár