Neyðarlínan milli NATO og Moskvu tengd á ný

Norður-Atl­ants­hafs­banda­lagið (NATO) hefur vísað fjöl­mörgum rúss­neskum starfs­mönnum á brott úr höf­uð­stöðvum sínum í Brussel vegna þess að þeir gætu verið njósn­arar fyrir stjórn­völd í Rúss­landi. Um leið hefur NATO lagt grunnin að því að neyð­ar­lína á milli Kremlar og helstu leik­enda innan NATO verði tengd á ný, eftir að hafa verið aflögð á síð­ustu árum Kalda stríðs­ins.

Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, var í við­tali við breska blaðið The Guardian um helg­ina. Hann sagði þessar ráð­staf­anir vera afleið­ing auk­innar hörku og óvissu í sam­skiptum vest­ur­veld­anna við Rússa. Meðal ann­ars hefur und­an­farið orðið vart við fleiri rúss­neskar orustuflug­vélar í loft­helgi banda­lags­þjóða NATO.

„Það er mik­il­vægt að hafa eðli­leg hern­að­ar­leg sam­skipti svo ef að eitt­hvað óeðli­legt ger­ist, þá er auð­velt að kom­ast að raun um mis­skiln­ing og afstýra stjórn­lausum afleið­ingum,“ sagði Stol­ten­berg í við­tal­inu.

Þær aðgerðir ráð­ist er til í Brussel miða að því að gera sam­skiptin form­legri á hern­að­ar­lega stig­inu, en fækka diplómat­ískum sam­skipta­leiðum. Þannig hefur rúss­neskum diplómötum og emb­ætt­is­mönnum verið gert að yfir­gefa skrif­stofur sínar í höf­uð­stöðvum NATO. Ákvörðun um þetta var tekin í síð­asta mán­uði en hún fækkar full­trúum sendi­nefnda ann­ara ríkja en banda­lags­þjóða í 30. Rússar voru eina þjóðin sem hafði fleiri en 30 full­trúa í sinni sendi­nefnd.

Samkvæmt heim­ildum The Guardian hafa starfs­menn NATO sagt í einka­sam­tölum að talið sé að um það bil helm­ingur rúss­nesku sendi­nefnd­ar­innar séu í raun á launa­skrá leyni­þjón­ust­unnar í Rúss­landi. Fjöldi rúss­neskra starfs­manna er auk þess nokkuð á reiki; Stjórn­völd í Moskvu segja 37 starfs­menn á þeirra vegum í Brussel, einn full­trúi banda­lags­þjóð­anna telur 61 Rússa og aðrir heim­ilda­menn innan NATO segja þá vera 90.

Stol­ten­berg neitar því þó að aðgerð­irnar séu mið­aðar að Rússum einum. „Hvað varðar Rússa þá höfum við ákveðið að hætta eig­in­legri sam­vinnu en halda póli­tískum og hern­að­ar­legum sam­skiptum,“ sagði Stol­ten­berg. Hátt settir emb­ætt­is­menn innan NATO segja þó aðgerð­irnar skref í þá átt að útrýma rúss­nesku njósn­a­starfi innan höf­uð­stöðv­anna í Brussel.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Jens Stol­ten­berg tók við emb­ætti fram­kvæmda­stjóra NATO í fyrra af Anders Fogh Rasmus­sen. Myndir: EPA[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár