Minnihlutinn í borginni gagnrýnir tillögu sem hann styður - „Þið getið þetta ekki“

Borg­ar­full­trúar minni­hlut­ans í Reykja­vík hafa gagn­rýnt meiri­hlut­ann harð­lega og sumir lýst yfir efa­semdum um til­lögu um við­ræður við rík­is­valdið um mót­töku flótta­fólks á fundi borg­ar­stjórnar, sem nú fer fram.

Eins og Kjarninn greindi frá í morgun var ákveðið að taka til­lög­una á dag­skrá fund­ar­ins með afbrigðum og öll fram­boð með full­trúa í borg­ar­stjórn stóðu á bak við það. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sagði þá að til­lagan væri ítrekun á því sem vel­ferð­ar­ráð hefði þegar sagt, „að borgin sé til­búin að taka á móti fleiri flótta­mönnum og að hún sé til­búin í við­ræður við ríkið um það.“

Tillagan var rétt fyrir klukkan fjögur sam­þykkt með fjórtán greiddum atkvæðum. Kjartan Magn­ús­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sat hjá. Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins settu þó fram mikla gagn­rýni á meiri­hlut­ann og á til­lög­una sjálfa á fund­inum.

Ýtum undir ólöglega komu til Evrópu


Kjartan Magn­ús­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hélt ræðu þar sem hann sagði meðal ann­ars til­lög­una til þess fallna að meiri­hlut­inn fái „sinn skerf af athygl­inni“ sem mál­efnið hefur fengið und­an­farna daga.

Kjartan sagði einnig að þegar tekið væri á móti fólki sem hefði komið ólög­lega til Evrópu ýtti það undir komu fleira fólks. „Í hvert sinn, þá erum við að örva, ýta undir þessa leið vegna þess að hún heppn­að­ist vel.“ Hann sagði jafn­framt að það hefði átt að kanna raun­veru­legt svig­rúm borg­ar­innar til þess að taka á móti flótta­mönnum.

Hann tal­aði einnig um drauma flótta­manna, sem væru þeir að kom­ast til Vest­ur­landa og fá rík­is­borg­ara­rétt. Það væri ekki skylda Vest­ur­landa að láta þessa drauma ræt­ast, þótt það væri skylda þeirra að bjarga lífum þeirra sem lentu í hættu á leið til Evrópu. „Ég held að draumur allra flótta­manna sé að vera ekki flótta­menn,“ sagði Kristín Soffía Jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, í and­svari við ræðu Kjartans.

„Ógeðslega illa“ staðið að málinu


Fleiri borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins settu fram gagn­rýni. Áslaug Frið­riks­dóttir gerði biðlista hjá borg­inni að umtals­efni og sagði mörg dæmi um að fólk fái ekki þjón­ustu hjá borg­inni vegna fjár­skorts. Hún tal­aði um for­gangs­röðun í fjár­málum borg­ar­innar, sagði „ógeðs­lega illa“ að staðið, og sagði meiri­hlut­ann þurfa að „gera grein fyrir því hvernig í ósköp­unum þið ætlið að fara að þessu.“ Hún sagði verk meiri­hlut­ans sýna að hann gæti ekki ráðið við að for­gangs­raða verk­efnum. „Verkin ykkar sýna að þið getið þetta ekki, þið getið ekki staðið við þetta.“

Oddviti flokks­ins, Halldór Hall­dórs­son, sagði hins vegar auð­velt að styðja til­lög­una „því það er sam­hug­ur­inn sem fær okkur til að gera það.“ Hann sagði verk­efnið mik­il­vægt, en það væri ekki ókeypis.

Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, odd­viti Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, sagði mikla póli­tíska vinnu í gangi um alla Evrópu við að koma til móts við „þá alþjóð­legu sam­fé­lags­legu ábyrgð sem við berum.“ Hún sagði ekk­ert óeðli­legt við það, Íslend­ingar vildu hjálpa því „við erum alin upp við sið­ferði kristi­legra gilda“ og „virðum þá grunn­reglu að elska skaltu náung­ann eins og sjálfan þig“. Þrátt fyrir þetta þyrfti að horfast í augu við að fjár­hags­staða borg­ar­innar væri slæm og hús­næð­is­skortur fyrir hendi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár