Aðgangur að almenningssamgöngum í heilan mánuð fyrir níu evrur

Níu evru mið­inn gildir í allar svæð­is­bundnar sam­göngur í Þýska­landi til loka ágúst­mán­aðar. Þetta sam­göngu­á­tak er hluti af aðgerða­pakka stjórn­valda vegna vax­andi verð­bólgu og hækk­andi orku­verðs en er einnig ætlað að stuðla að umhverf­is­vænni ferða­venjum.

Frá brautarpalli við aðallestarstöðina í þýsku borginni Speyer. Ef til vill hafa einhverjir þessara farþega nýtt sér níu evru miðann.
Frá braut­ar­palli við aðal­lest­ar­stöð­ina í þýsku borg­inni Speyer. Ef til vill hafa ein­hverjir þess­ara far­þega nýtt sér níu evru mið­ann. Mynd: EPA

Íbúar Þýska­lands sem og ferða­menn sem sækja landið heim gefst nú kostur á að kaupa hinn svo­kall­aða níu evru miða sem gildir í nán­ast allar teg­undir svæð­is­bund­inna almenn­ings­sam­gangna þar í landi, og það í heilan mánuð. Níu evrur jafn­gilda tæpum 1300 krónum. Miðinn í almenn­ings­sam­göngur innan þýskra borga, svo sem í neð­an­jarð­ar­lestir, spor­vagna og stræt­is­vagna sem og í lestum sem ganga á milli borga innan sama sam­bands­ríkis. Níu evru mið­inn hefur staðið fólki til boða frá upp­hafi júní­mán­aðar og gildir út ágúst. Þannig gefst fólki kostur á að ferð­ast með almenn­ings­sam­göngum innan Þýska­lands í alls þrjá mán­uði fyrir ekki nema 27 evrur, eða tæpar 3800 krónur.

Stjórn­völd hafa eyrna­merkt þessu sam­göngu­átaki 2,5 millj­arða evra, upp­hæð sem sam­svarar 350 millj­örðum króna en níu evru mið­inn var sam­þykktur á þýska sam­bands­þing­inu í síð­ari hluta maí. Níu evru mið­inn er hluti af aðgerða­pakka stjórn­valda sem ætlað er að styðja við bakið á þýskum almenn­ingi á tímum hækk­andi verð­bólgu. Með þessu vilja stjórn­völd stuðla að umhverf­is­vænni sam­göngu­venjum og draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis en verð þess hefur hækkað umtals­vert frá því inn­rás Rússa inn í Úkraínu.

Vitnað er til orða sam­göngu­ráð­herra Þýska­lands, Volker Wissing, í umfjöllun Deutsche Welle um sam­göngu­átakið, en í maí­mán­uði sagði hann: „Allir sem nota almenn­ings­sam­göngur hjálpa til við að venja okkur af orku sem keypt er frá Rúss­landi sem og færa okkur nær kolefn­is­hlut­leysi.“

Gildir ekki í hraðlestir

Líkt og áður segir, gildir mið­inn aðeins í svæð­is­bundnar almenn­ings­sam­göngur. Tölu­verða útsjón­ar­semi þarf því ef fólk ætlar að leggja af stað í lang­ferð með svæð­is­bundnu lest­unum en mið­inn gildir ekki í hrað­lestum Þýska­lands. Þrátt fyrir það geta hand­hafar skot­ist til nokk­urra borga sem ekki eru í Þýska­landi. Þannig má ferð­ast með svæð­is­lest Bæj­ara­lands til Salzburg og Kufstein í Aust­ur­ríki. Sömu­leiðis geta hand­hafar mið­ans tekið lest frá Aachen, vest­ustu borgar Þýska­lands, til nokk­urra áfanga­staða í Hollandi og Belgíu.

Miðinn gildir frá fyrsta degi hvers mán­aðar til loka hans, þar af leið­andi gildir níu evru miði sem keyptur er í dag ein­ungis fram á fimmtu­dag, 30. júní. Það eru samt sem áður kosta­kjör, stök ferð frá Brand­en­borg­ar­flug­velli á aðal­lest­ar­stöð­ina í Berlín kostar 3 evrur og 80 sent, um 530 krónur, og stök ferð í neð­an­jarð­ar­lest Berlínar, U-Bahn, kostar þrjár evrur eða um 420 krónur.

Betri samgöngur frekar en ódýrari

Skiptar skoð­anir eru uppi í Þýska­landi um þetta útspil stjórn­valda. Talskona sam­taka ferða­þjón­ust­unnar í Þýska­landi, Huberta Sasse, segir í sam­tali við Deutsche Welle að ódýr far­gjöld muni ekki hafa langvar­andi áhrif á notkun almenn­ings­sam­gangna í Þýska­landi. Betra væri að styrkja inn­viði almenn­ings­sam­gangna, koma á betri teng­ingum á milli borga og fjölga ferðum. Nú nota um þrettán millj­ónir Þjóð­verja svæð­is­bundnar lestir á leið sinni í og úr vinnu eða skóla á degi hverjum. Þessir not­endur hafa reglu­lega kvartað yfir troð­fullum lestum, lélegri þjón­ustu, sein­k­unum og nið­ur­fell­ingu ferða.

Þá er útlit fyrir að níu evru mið­inn muni helst nýt­ast íbúum borga en ekki þeim íbúum strjál­býlli svæða sem hafa litla mögu­leika á að nota almenn­ings­sam­göngur.

Gengið vonum framar

Að sögn sam­göngu­ráð­herr­ans Wissing hefur níu evru mið­inn gengið vonum framar. Í sam­tali við Der Spiegel í vik­unni sagði hann stjórn­völd í mörgum sam­bands­ríkjum hafa verið hik­andi í upp­hafi og jafn­vel ekki viljað taka mið­ann í gagnið en nú sé komið annað hljóð í strokk­inn og flestir vilja halda verð­inu í sama horfi.

Þrátt fyrir stuðn­ing Græn­ingja og Jafn­að­ar­manna við fram­leng­ingu níu evru mið­ans verða þessi kosta­kjör ekki fram­lengd. Það er fyrst og fremst vegna mik­ils kostn­aðar sem fylgir sam­göngu­átak­inu en hann nemur yfir millj­arði evra á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár