Skoskir þingmenn munu hafna Brexit

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, segir atkvæða­greiðslu skoska þings­ins um Brexit í dag vera eina þá mik­il­væg­ustu í sögu skoska þings­ins. Hún hefur þó ekk­ert gildi í útgöngu Bret­lands úr ESB.

Skoska þingið mun í dag hafna útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu í atkvæða­greiðslu í skoska þing­inu. Slík atkvæða­greiðsla hefur ekk­ert vægi þegar kemur að því að virkja 50. grein Lissabon-sátt­mál­ans um að hefja útgöngu­ferlið, en samt segir Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, að atkvæða­greiðslan í dag sé ein sú mik­il­væg­asta í sögu skoska þings­ins.

Ástæðan er sú að ef stjórn­völd í London halda áfram að hunsa stjórn­völd í Skotlandi og heldur áfram Brexit-leið­angrinum án þess að hafa Skota með í ráðum verður þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um sjálf­stæði Skotlands þeim mun lík­legri.

Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn, sem Sturgeon leiðir, mun allur greiða atkvæði gegn því að hefja útgöngu­ferlið. Það munu þing­menn Græn­ingja og frjáls­lyndra demókrata líka gera. Þingmenn Verka­manna­flokks­ins ætla að greiða atkvæði gegn útgöng­unni en hafa sett inn við­auka sem úti­lokar að haldin verði önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um sjálf­stæði Skotlands. Eingöngu þing­menn Íhalds­flokks­ins munu greiða atkvæði með því að hefja útgöngu­ferlið með virkjun 50. grein­ar­innar.

„Almenn­ingur í Skotlandi kaus með afger­andi hætti að vera áfram í Evr­ópu­sam­band­inu – og aðeins einn af 59 þing­mönnum Skotlands í breska þing­inu hefur stutt að virkja 50. grein­ina,“ segir Nicola Sturgeon við Scotsman. „Umræð­urnar eru tæki­færi fyrir þjóð­þingið okkar til að ítreka skoðun skosku þjóð­ar­innar og gera það ljóst að sem þjóð erum við á móti þessu hörmu­lega harða Brexit sem er nú unnið að meðal íhalds­manna í Westminster.“

Sturgeon segir málið vera próf­stein á það hvort hlustað sé á rödd Skotlands og hvort hægt sé að virða óskir Skota. Meiri­hluti Skota, 62%, greiddi atkvæði um að vera áfram innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Evr­ópu­sam­bandið hafði líka veru­leg áhrif á fyrstu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu Skota um sjálf­stæði, þar sem þeim var tjáð að þeir gætu ekki verið áfram sjálf­krafa aðilar að Evr­ópu­sam­band­inu sem sjálf­stætt ríki.

Ráð­herr­ann hefur sagt að önnur atkvæða­greiðsla um sjálf­stæði sé nán­ast óhjá­kvæmi­leg núna, eftir að ljóst varð að Brexit-áætl­anir stjórn­valda í London bera með sér útgöngu af innri mark­aði ESB.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár