Eygló segir gagnrýni á húsnæðisbætur koma frá þeim sem vilji engan opinberan stuðning

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, gagn­rýnir þá sem hafa gagn­rýnt frum­varp hennar um hús­næð­is­bætur í nýjum pistli á heima­síðu sinni.

Hún segir að þær fregnir að fleiri eigi von á hús­næð­is­stuðn­ingi, með til­komu hús­næð­is­bóta­kerf­is­ins, hafi orðið til­efni leiðs mis­skiln­ings. „Spurt hefur verið hvort hygla eigi tekju­háum sér­stak­lega með þessum breyt­ingum. Vissu­lega mun jafn­ari réttur til hús­næð­is­bóta styrkja öll heim­ili, ekki síst milli­tekju­fólk á leigu­mark­aði. Tekju­teng­ingar munu hins vegar, líkt og ávallt þegar við tölum um slík jöfn­un­ar­tæki, tryggja að þeir sem hafa minnst fá hlut­falls­lega mestan stuðn­ing,“ skrifar Eygló.

Í kjöl­farið biður hún þá sem hafi gripið þennan „mis­skiln­ing á lofti“ að velta því fyrir sér hvaðan sú gagn­rýni kunni að vera komin. „Kann að vera að hún eigi heim­il­is­festi hjá þeim sem vilja helst engan opin­beran stuðn­ing til hús­næð­is­mála? Hjá þeim sem vilja að einka­að­ilar geti einir gert út á erf­iða stöðu heim­il­anna að þessu leyti? Er hún að koma frá þeim sem vilja alls ekki sjá hækkun hús­næð­is­bóta verða að veru­leika?“

Fjármálaráðuneytið helsti gagnrýnandinn


Helsta gagn­rýnin sem fram hefur komið á frum­varp Eyglóar er sú gagn­rýni sem skrif­stofa opin­berra fjár­mála í fjár­mála­ráðu­neyt­inu setti fram í umsögn sinni um frum­varpið.

Í umsögn sinni sagði fjár­mála­ráðu­neytið meðal ann­ars að sam­kvæmt grein­ingum þess myndi nið­ur­greiðsla húsa­leigu verða hlut­falls­lega meiri eftir því sem tekjur heim­il­is­ins eru hærri í nýja kerf­inu. Það sé í and­stöðu við yfir­lýst mark­mið frum­varps­ins, sem er auk ann­ars að auka stuðn­ing við efna­minni ein­stak­linga og fjöl­skyldur.

Þá segir ráðu­neytið að auk­inn rík­is­stuðn­ingur við leigj­endur muni að öllum lík­indum leiða til hækk­unar á leigu­verði, sem kynni að skila meiri ábata fyrir leigu­sala en fyrir leigj­endur, auk þess sem sveit­ar­fé­lög kunni að draga úr sínum sér­stöku húsa­leigu­bótum. Útgjöld rík­is­ins muni mögu­lega aukast um allt að tvo millj­arða á ári og ekki hafi verið gert ráð fyrir auknum útgjöldum í fjár­lögum eða rík­is­fjár­mála­á­ætlun. Auk þess mun fyr­ir­komu­lagið sam­kvæmt breyttu kerfi, að hús­næð­is­bætur fari til rík­is­ins en sér­stakar húsa­leigu­bætur verði eftir hjá sveit­ar­fé­lögum, flækja ferlið og auka rekstr­ar­kostnað. Þá muni breyt­ing­arnar ekki koma öryrkjum og öldruðum eins vel og þeim sem eru í námi eða vinnu.

Var hluti af sátt á vinnumarkaði


Í Morg­un­blað­inu í morgun kom fram að ekki sé víð­tækur stuðn­ingur við frum­varpið innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og raunar ekki heldur við annað boðað frum­varp Eyglóar um félags­legt hús­næð­is­kerfi. Frum­vörpin þurfi að taka veru­legum breyt­ingum svo að sjálf­stæð­is­menn styðji þau.

Eygló bendir á í sam­tali við blaðið að þessi frum­vörp hafi verið hluti af aðgerðum sem rík­is­stjórnin lof­aði í tengslum við gerð kjara­samn­inga. „Aðilar vinnu­mark­að­ar­ins líta svo á að þessar breyt­ingar á hús­næð­is­kerf­inu séu hluti af sam­komu­lagi þeirra og for­senda fyrir gerð kjara­samn­inga. Ég hef ekki heyrt neitt annað frá for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en að menn hafi í hyggju að standa við það, enda stóð öll rík­is­stjórnin að þess­ari yfir­lýs­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár