Ágúst Ólafur líkir stefnu Trump við Handmaid's Tale

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar for­dæma inn­flytj­enda­stefnu Banda­ríkja­stjórnar sem leitt hefur til aðskiln­aðar flótta­manna­barna frá for­eldrum sínum.

Elisabeth Moss í hlutverki Hjáfreð í Handmaid's Tale
Elisa­beth Moss í hlut­verki Hjáfreð í Handmaid's Tale Mynd: HULU

Fjórir þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar og einn þing­maður Við­reisnar hvöttu íslensk stjórn­völd til að for­dæma stefnu Banda­ríkja­stjórnar í inn­flytj­enda­málum á Facebook í dag. Þá líkir Ágúst Ólafur Ágústs­son þró­un­ina í Banda­ríkj­unum minna á sjón­varps­þátta­röð­ina Handmaid‘s Tale, þar sem ofbeldi er rétt­lætt með vísun í Biblíuna.[adspot]

Banda­ríkja­stjórn hefur sætt mik­illi gagn­rýni und­an­farna daga vegna harka­legrar stefnu þeirra í inn­flytj­enda­málum, en þar hafa yfir 2.000 börn efna­hags­legra flótta­manna við landa­mæri Mexíkó og Banda­ríkj­anna verið aðskilin frá for­eldrum sínum og sum þeirra geymd í búrum. Spáð er því að rík­is­stjórnin muni geyma upp að 30.000 börn undir lok sum­ars­ins. Mbl.isfjall­aði einnig um málið fyrr í dag.

Hljóð­upp­taka af aðstæðum barna við landa­mæri Banda­ríkj­anna og Mexíkó

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, kall­aði aðgerð Banda­ríkja­stjórnar ógeðs­lega í stöðu­upp­færslu á Facebooksíðu sinni í gær. Hann kallar stefnu stjórn­valda þar í landi ómennska og segir að það þýði ekki fyrir Banda­ríkja­menn að skýla sér bak við van­stilltan og óút­reikn­an­legan for­seta. „Íslensk stjórn­völd eiga að for­dæma þennan við­bjóð gam­allar vina­þjóðar okkar,“ bætir for­mað­ur­inn við að lokum.

Þing­menn­irnir Oddný G. Harð­ar­dóttir, Helga Vala Helga­dóttir og Ágúst Ólafur Ágústs­son taka í sama streng og Logi, en allir þeirra hvetja íslensk stjórn­völd til for­dæm­ingar á stefn­unni. Vara­for­maður Við­reisnar, Þor­steinn Víglunds­son, gagn­rýndi einnig stefn­una í stöðu­upp­færslu á facebook eftir hádegi í dag og sagði Banda­ríki Donalds Trump vera komin langt frá þeim hug­sjónum sem rit­aðar voru í sjálf­stæð­is­yf­ir­lýs­ingu sinni.

[links]Ágúst Ólafur bætir í og segir þró­un­ina sem á sér stað í Banda­ríkj­unum minna um margt á sjón­varps­þátta­röð­ina Handmaid‘s Tale, þar sem vísun í ofbeldi er rétt­lætt með vísun í Biblíuna. Íslenskir ráða­menn yrðu að vakna til lífs­ins og „í raun öskra“ gegn þessum aðgerðum.

Kjarninn hefur áður fjallað um Handmaid‘s Tale, sem er þátta­röð byggð á dystópískri sögu Marg­ar­etar Atwood. Í þátt­unum er sagt frá ríki sem stjórnað er af bók­stafstrú­uðum kristum karl­mönnum og borg­ara­legt frelsi ekk­ert. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár