Dystópía Margaretar Atwood endurvakin á óvissutímum

Handmaid's tale eða Saga þern­unnar hefur nú verið gerð að þátta­röð en hún þykir ekki síður eiga erindi nú en þegar bókin kom út. Kjarninn kann­aði hvað gerir sög­una svo sér­staka og höf­und­inn áhuga­verðan.

Elisabeth Moss í hlutverki Hjáfreð.
Elisa­beth Moss í hlut­verki Hjáfreð. Mynd: HULU

Þætt­irnir Handmaid's tale hafa slegið ræki­lega í gegn und­an­farið en í þeim er óhugn­an­leg fram­tíð­ar­sýn sett fram og telja sumir að hún sé ekki svo fjar­læg miðað við ástandið í heims­mál­unum. Þætt­irnir eru gerðir upp úr sögu Marg­ar­etar Atwood, kanadísks ljóð­skálds og höf­undar. Margir biðu með óþreyju eftir þátt­unum þar sem bókin er víð­lesin og hefur unnið til margra verð­launa. Sagan er ekki síður sögð eiga erindi til fólks nú á tímum eins og þegar hún kom út fyrir þrjá­tíu og tveimur árum. Fasismi, alræð­is­ríki, eign­ar­hald á lík­ama kvenna og hin myrka mynd sem dregin er upp í bók­inni er und­ir­liggj­andi martröð ótta­sleg­ins sam­fé­lags nútím­ans.

Byrjaði ung að skrifa

Margaret Atwood fædd­ist í Ottawa í Kanada árið 1939. Ung las hún mikið og byrj­aði að skrifa ljóð og leik­rit við sex ára aldur. Hún útskrif­að­ist með B.A.-próf í ensku með frönsku og heim­speki að auka­greinum frá Háskól­anum í Toronto og M.A. frá Radcliffeháskólanum í Cambridge í Banda­ríkj­unum. Hún byrj­aði í dokt­ors­námi í Harvard sem hún lauk hins vegar ekki. Hún birti ljóð og greinar í tíma­ritum á þessum tíma og gaf meðal ann­ars sjálf út ljóða­bók. Atwood hefur kennt í hinum ýmsu háskólum, bæði í Kanada og í Banda­ríkj­unum. Hún hefur unnið til margra verð­launa fyrir skrif og er með heið­urs­gráðu frá Oxford, Cambridge, Sorbonne og fleiri háskólum. Hún var valin húman­isti árs­ins 1987 af American Humanist Association.

Höf­unda­verk Atwood er orðið dálag­legt og hefur hún verið iðin við að skrifa. Skáld­sögur og smá­sögu­söfn hlaupa á tugum og hefur hún skrifað fjölda ljóða­bóka, barna­bóka, rit­gerða, sjón­varps­þátta­hand­rita o.s.frv. Síðasta skáldsagan sem hún gaf út nefn­ist Hag-Seed sem kom út á síð­asta ári. Hún er nútíma­leg end­ur­sögn af sögu Shakespe­are Fár­viðr­inu. Atwood býr nú í Toronto með sam­býl­is­manni sínum Graeme Gibson og eiga þau saman eina dóttur.

Konur flokkaðar eftir notagildi

Handmaid's tale eða Saga þern­unnar, eins og hún heitir á íslensku, kom út árið 1985 og er því orðin þrjá­tíu og tveggja ára gömul. Sögusvið bók­ar­innar er Banda­ríkin í náinni fram­tíð en Atwood segir sjálf að sagan fjalli um hvernig alræð­is­ríki í Banda­ríkj­unum yrði lík­legt til að verða.

Höf­und­ur­inn býr til dystópíu þar sem bók­starfstrú­aðir kristnir karl­menn eða ein­hvers konar klerka­veldi stjórnar rík­inu sem nefn­ist the Republic of Gilead eða Gíleað. Konur er flokk­aðar eftir nota­gildi og geta þannig nýst sem eig­in­konur, þernur, vinnu­konur eða stétt­lausar konur. Sagan er sett fram sem dag­bók þernu einnar sem býr hjá svoköll­uðum Liðs­for­ingja og konu hans. Hlutverk hennar er að bera barn Liðs­for­ingj­ans undir belti og er hún þannig notuð til undan­eldis. Í gegnum frá­sögn hennar fær les­andi að kynn­ast sam­fé­lag­inu, verka­skipt­ingu og háttum. Nafn hennar er Offred eða Hjáfreð á íslensku sem vísar til Liðs­for­ingj­ans Freðs.

[quote]Rotta í völ­und­ar­húsi er frjáls ferða sinna, svo fram­ar­lega sem hún dvelur innan veggja völ­und­ar­húss­ins[/quote]Árið 1987 þýddi Áslaug Ragnars sög­una yfir á íslensku. Í lýs­ingu á sög­unni í dag­blað­inu Dagur frá þessum tíma segir að dregin sé upp mynd af geggj­uðu sam­fé­lagi en athygli veki að minn­ingar þern­unnar um tíma­bilið fyrir ein­ræð­is­ríkið sýni að ýmis­legt miður geðs­legt henti þá. Fas­ista­ríkið Gíleað sé hræði­legt en það geri árið 1987 ekki sjálf­krafa stór­kost­legt. Í íslensku þýð­ing­unni eru öll stað­ar­heiti og nöfn þýdd, til að mynda heitir kona Liðs­for­ingj­ans Heiðljúf en á enskri tungu heitir hún Serena Joy.

Upplifði stemninguna fyrir hrun múrsins

Atwood byrj­aði að skrifa sög­una í Vestur-Berlín þegar hún bjó þar árið 1984. Í við­tali við The New York Times segir hún frá því hvernig hún fékk hug­mynd­ina að sög­unni. Enn voru fimm ár í að Berlín­ar­múr­inn myndi falla. „Ég upp­lifði var­kárn­ina, til­finn­ing­una að verið sé að njósna um mig, þögn­ina, umræðu­efn­is­skipt­ing­arnar, vill­andi aðferð­irnar sem fólk not­aði til koma frá sér upp­lýs­ingum og allt þetta hafði áhrif á það sem ég skrif­aði,“ segir Atwood.

Hún segir einnig frá því að vegna þess að hún er fædd í seinni heim­styrj­öld­inni þá vissi hún að ástandið eða stjórn­ar­far gæti breyst á svip­stundu. Skáldsagan hefði verið að gerj­ast innra með henni í tvö ár áður en hún byrj­aði að skrifa hana en hún seg­ist hafa forð­ast hug­mynd­ina vegna þess að hún væri hugs­an­lega vafasöm. „Ég hafði lesið vís­inda­skáld­skap í miklu mæli sem og útóp­íur og dystóp­íur frá því ég var ung­lingur á sjötta ára­tugnum en ég hafði aldrei skrifað slíka bók,“ greinir Atwood frá. Hún segir að hún hafi viljað gera það vel ef hún treysti sér á annað borð til þess. Ef hún ætl­aði að búa til ímynd­aðan heim þá þyrfti hann einnig að vera raun­sær. Hún hafi viljað að allt sem ger­ist í sög­unni væri eitt­hvað sem gerst hafði í raun og veru og að tæknin sem greint væri frá væri til nú þegar. „Guð er í smá­at­rið­unum, segja þeir. Það er djöf­ull­inn einnig,“ bætir Atwood við. Þannig myndi hún skapa heim sem raun­hæft væri að yrði ein­hvern tím­ann að veru­leika.

[quote]Nú hegðar holdið sér öðru­vísi, af sjálfu sér. Ég er ský, hjúpur utan um kjarna, í lag­inu eins og pera, sem er hörð og raun­veru­legri en ég og rauð­gló­andi innan í glærum umbúðum sínum. Innan í henni er geimur, gíf­ur­legur eins og him­inn­inn á kvöldin og nál­ar­oddar tútna út, gneista, springa og skreppa saman innan í honum, ótelj­andi eins og stjörnur[/quote]Vinnu­tit­ill Handmaid's tale var Offred eftir aðal­sögu­hetj­unni. Í skáld­sög­unni kemur raun­veru­legt nafn hennar aldrei fram en les­endur sög­unnar hafa komið með sínar eigin álykt­anir þar sem eina nafnið sem ekki fær til­vísun í per­sónu í sög­unni er June eða Jóna á íslensku. Atwood segir að þetta hafi upp­haf­lega ekki verið hug­myndin en hún bætir við að les­endur megi draga þær álykt­anir sem þeir vilja.

Allt gerst sem kemur fram í sögunni

Atwood segir að sagan sé femínísk á þá vegu að hún fjalli um mennskar konur; alls kyns konur. Hún telur að konur séu áhuga­verðar og mik­il­vægar. Að þær séu ekki ann­ars flokks og að án kvenna muni sam­fé­lagið ekki við­halda sér. „Þess vegna hafa fjölda­nauðg­anir og morð á konum, stúlkum og börnum verið hluti af stríðum þar sem þjóð­ar­morð eiga sér stað eða hvers konar kúgun eða mis­notkun á fólki,“ segir hún. Þannig sé vald yfir konum og börnum notað af stjórn­völdum sem vilja alræð­is­vald yfir þegnum sínum.

[quote]Ég þarf yfir­sýn. Hugmynd um dýpt sem markast af ramma, röðun mynda á sléttan flöt. Yfirsýn er nauð­syn­leg. Annars eru ekki nema tvær víddir. Annars lifir maður líf­inu eins og and­lit manns sé klesst upp við vegg, allt er einn gíf­ur­legur for­grunnur, sam­an­settur af smá­at­riðum, nær­myndum, hárum, uppi­stöðu og ívafi í lak­inu, sam­eindum í and­lit­inu. Þá er húðin á manni eins og landa­bréf, upp­dráttur til­gangs­leysis, alsettur litlum öng­strætum. Annars lifir maður á líð­andi stund. Þar sem ég vil ekki vera[/quote]Atwood seg­ist oft fá þá spurn­ingu hvort sagan sé spá­dómur um fram­tíð­ina. Svarið við þeirri spurn­ingu er nei, að hennar mati. Hún telur að ekki sé hægt að koma með slíkan spá­dóm, of margar breytur séu í dæm­inu til þess að það sé mögu­legt. Hún segir að margir þræðir séu vafnir til að búa til þessa fram­tíð­ar­sýn og að allir séu þeir hluti að mann­kyns­sög­unni.

Sjónvarpsþættirnir komu sögunni aftur á kortið

Sagan hefur verið sögð á marga vegu í gegnum árin. Hún var kvik­mynduð árið 1990 þar sem Natasha Richardson fór með aðal­hlut­verkið og Faye Dunaway og Robert Duvall léku Liðs­for­ingj­ann og konu hans. Bókin hefur verið þýdd á yfir fjör­tíu tungu­mál og hefur hún verið sett upp í óperu og sem ball­ett­sýn­ing.

Nýju sjón­varps­þætt­irnir hafa fengið mjög góðar við­tökur og eru þeir meðal ann­ars til­nefndir til þrettán verð­launa á Emmy-verð­launa­há­tíð­inni sem haldin verður í sept­em­ber næst­kom­andi. Leik­konan Elisa­beth Moss hefur vakið sér­staka athygli fyrir túlkun sína á Offred eða Hjáfreð. Meðal ann­arra leik­ara eru Samira Wiley, Alexis Bledel og Joseph Fiennes. Atwood birt­ist sjálf á skjánum í fyrsta þætt­inum en hún leikur konu sem tekur þátt í að þjálfa til­von­andi þernur til hlýðni. Til stendur að fram­leiða aðra þátta­röð á næsta ári.

Vantar kynþáttasjónarhorn

Þætt­irnir eru trúir sög­unni í bók­inni enda var Atwood höfð með í ráðum. Þó eru nokkur atriði sem eru eilítið öðru­vísi að með­töldu nafn­gift aðal­per­són­unnar eins og fram hefur komið. Liðs­for­ing­inn og konan hans eru höfð mun yngri í þátt­unum og er eft­ir­nafn þeirra meira á reiki í bók­inni. Baksögu Frú­ar­innar eru gerð meiri skil í þátt­unum sem og bak­sögu eig­in­manns Hjá­freðar. Fleiri per­sónur fá stærra hlut­verk í þátt­unum eins og sumar af hinum þern­unum.

Einnig má benda á að í þátt­unum eru sumar per­són­urnar hör­unds­dökkar en í bók­inni er tekið fram að sá kyn­þáttur hafi verið fluttur með valdi til mið­ríkja Banda­ríkj­anna. Þannig tekst bókin á við kyn­þátta­mál­efni á meðan þætt­irnir skauta fram hjá þeim. Aðal­per­sónan er enn­fremur mun upp­reisn­ar­gjarn­ari í þátt­unum en í bók­inni en þar er hún mun leiði­ta­mari. Svo virð­ist sem móðir Hjá­freðar og hún sjálf séu túlk­aðar sem ein og sama per­sónan.

[quote]Ég trúi á and­spyrnu­hreyf­ing­una eins og ég trúi því að ekk­ert ljós sé án skugga; eða öllu heldur eng­inn skuggi án þess að líka sé ljós[/quote]Íslend­ingar sem horft hafa á þætt­ina hafa eflaust tekið eftir því að í tveimur þáttum heyr­ist lagið Heyr himna­smiður. Hildur Guðna­dóttir flutti lagið en í sam­tali við mbl.is seg­ist hún enn ekki hafa séð þætt­ina. Einnig heyr­ist annað lag eftir Hildi, Erupting Light, í þátt­unum. Í við­tal­inu kemur fram að hún hafi fengið mikil við­brögð við lögum sínum í Handmaid's tale og að fólki finn­ist áhuga­vert að heyra íslensku í þessum vin­sælu þáttum.

Samhljómur við nútímann

Saga Atwood snertir á ýmsum mál­efnum sem eiga ekki síður erindi árið 2017 en 1985. Þar ber að nefna yfir­ráð yfir lík­ömum kvenna, þjóð­ernis- og alræð­is­hyggju og umhverf­isvá. Í fyrr­nefndu við­tali við New York Times veltir Atwood því fyrir sér hvort fólk nú til dags muni skrá niður til­finn­ingar sínar í sam­bandi við það ástand sem nú ríkir.

Í kjöl­far for­seta­kosn­inga í Banda­ríkj­unum, þar sem hræðsla og kvíði vex ört, borg­ara­legt frelsi er í útrým­ing­ar­hættu og í ljósi þess að rétt­indi sem konur hafa unnið sér inn í gegnum tíð­ina geta verið aft­ur­kræf, þá hljóti ein­hver og jafn­vel margir að vera að skrifa niður reynslu sína af þessum atburðum.

„Munu skila­boð þeirra vera þögguð niður eða falin? Munu þau finn­ast öldum seinna inn í vegg í gömlu húsi? Við skulum vona að það komi ekki til þess. Ég treysti því að svo muni ekki verða,“ segir Atwood að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár