Mynd: Birgir Þór Harðarson

Engin sýnileg ríkisstjórn í kortunum

Klofn­ings­fram­boð úr Fram­sókn­ar­flokknum virð­ist helst taka fylgi frá honum og Sjálf­stæð­is­flokki. Sam­an­lagt fylgi Fram­sókn­ar­blokk­ar­innar yrði þriðja versta kosn­ing­ar­nið­ur­staða flokks­ins frá upp­hafi.

Staðan í íslenskum stjórn­málum virð­ist ákaf­lega snúin. Mjög erfitt, ef ekki ómögu­legt, verður að mynda tveggja flokka rík­is­stjórn að loknum næstu kosn­ingum og klofn­ingur í Fram­sókn­ar­flokknum, sem er ekki lengur geisla­virkur í hugum ann­arra flokka, veikir stöðu hans sem hins aug­ljósa milli­stykkis í þriggja flokka stjórn.

Mestar líkur eru á því að Vinstri græn verði í næstu rík­is­stjórn. Þá ályktun má draga út frá ýmsum þáttum. Flokk­ur­inn mælist stærstur í skoð­ana­könn­unum, flestir lands­menn vilja Katrínu Jak­obs­dóttur sem næsta for­sæt­is­ráð­herra og eng­inn flokkur úti­lokar sam­starf við Vinstri græna.

Það er þó vert að benda á að mjög margt getur gerst á síð­ustu vikum kosn­inga­bar­átt­unnar, sem er í raun ekki hafin af neinni alvöru. Stór hluti kjós­enda virð­ist ekki hafa gert upp hug sinn.

Ef lands­lagið er brotið niður í þrennt lítur staðan þannig út, sam­kvæmt nýj­ustu könnun MMR: Flokk­arnir sem hafa að mestu stýrt Íslandi á lýð­veld­is­tím­anum, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, mæl­ast með 29,9 pró­sent fylgi. Flokkar sem stofn­aðir voru eftir árið 2012, Píratar, Flokkur fólks­ins, Viðreisn, Björt Framtíð, Mið­flokk­ur­inn, Íslenska þjóð­fylk­ingin og Dögun mæl­ast svo með sam­an­lagt 34,1 pró­sent fylgi. Vinstri græn og Sam­fylk­ingin, sem mynda vinstri- og jafn­að­ar­manna­væng stjórn­mála, mæl­ast með sam­an­lagt fylgi upp á 35,1 pró­sent.

Eins og er blasir ekk­ert stjórn­ar­mynstur við. Og klofn­ing­ur­inn í Fram­sókn­ar­flokknum fækkar þeim mögu­leikum sem lík­leg­astir voru enn frekar.

Yrði þriðja versta niðurstaða Framsóknarblokkar frá upphafi

Könnun MMR, sem birt var í gær, var sú fyrsta sem gerð var eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ákváð að kljúfa sig frá flokknum og stofna Mið­flokk­inn. Hún hefur án efa verið for­ystu­fólki í Framsókn mikið áfall, enda fylgi flokks­ins ein­ungis 6,4 pró­sent á meðan að fylgi klofn­ings­fram­boðs­ins, flokks Sig­mundar Davíðs, mæld­ist 7,3 pró­sent.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur klofið sig úr Framsóknarflokknum og stofnað Miðflokkinn. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur klofið sig úr Fram­sókn­ar­flokknum og stofnað Mið­flokk­inn. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur þó mælst með lægra fylgi í könn­unum MMR. Það er meira að segja ekk­ert svo langt síðan. Síðast mæld­ist fylgi flokks­ins 6,4 pró­sent í júlí í fyrra, þegar Sig­mundur Davíð var enn for­maður hans. Lægst mæld­ist fylgið þó 4,9 pró­sent í des­em­ber 2008, um mán­uði áður en Sig­mundur Davíð tók við sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Sam­an­lagt fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins og Mið­flokks­ins mælist 13,7 pró­sent. Það er meira en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum þegar 11,5 pró­sent kjós­enda studdu hann. Sú nið­ur­staða var hins vegar versta nið­ur­staða Fram­sóknar frá upp­hafi. Sam­an­lagt fylgi hins vænt­an­lega mið­flokks og Fram­sókn­ar­flokks­ins er aðeins minna en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum í kosn­ing­unum 2009, þegar Sig­mundur Davíð leiddi flokk­inn í fyrsta sinn. Þá fékk hann 14,8 pró­sent atkvæða.

Sam­an­lagt fylgi Fram­sóknar og Mið­flokks­ins eins og það mælist nú yrði því þriðja versta kosn­ing­ar­nið­ur­staða Fram­sókn­ar­flokks­ins frá upp­hafi ef kosið yrði í dag.

Ómögulegt að mynda kerfisvarnarstjórnina

En hvað þýðir þessi klofn­ingur fyrir aðra stjórn­mála­flokka? Það er fyr­ir­liggj­andi að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill helst starfa með Fram­sókn­ar­flokknum í rík­is­stjórn. Flokk­arnir sátu saman í slíkri frá 1995 til 2007 og svo aftur frá 2013 og fram á haust 2016. Og hafa, meira og minna, stýrt Íslandi frá lýð­veld­is­stofnun, oft­ast saman. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tekið þátt í tveimur öðrum rík­is­stjórn­ar­sam­störfum á þess­ari öld sem bæði hafa sprungið. Það fyrra, með Sam­fylk­ing­unni, end­aði eftir 615 daga. Sú síð­ari, sem mynduð var með Bjartri fram­tíð og Viðreisn, ent­ist ein­ungis í átta mán­uði.

Það virð­ist hins vegar ólík­legt að tveggja flokka stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks verði ger­leg í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð. Síðast þegar flokk­arnir tveir fengu nægan meiri­hluta til þess gerð­ist það eftir kosn­inga­sigur Fram­sókn­ar­flokks­ins 2013, sem átti sér stað þegar Ísland stóð á efna­hags­legum tíma­mótum, sam­fé­lagið var í miklu ójafn­vægi og landið var ekki enn komið almenni­lega út úr stormi hruns­ins. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn náði þá að eigna sér Icesave nið­ur­stöð­una og sigldi í mark á baki lof­orði um að gefa hluta Íslend­inga tugi millj­arða króna úr rík­is­sjóði ef þeir myndu kjósa flokk­inn. Það er for­dæma­laust í íslenskri stjórn­mála­sögu að flokkur bjóði fólki bein­línis reiðufé úr rík­is­sjóði fyrir að kjósa sig.


Þótt við­búið sé að stór lof­orð verði notuð til að lokka fólk til fylgis við flokka í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga verður að telj­ast mjög ólík­legt að ein­hver þeirra nái nálægt um fjórð­ungs fylgi líkt og Framsókn gerði þá.

Minna samanlagt fylgi en í kosningunum í fyrra

Rík­is­stjórn kerf­is­varn­ar­flokk­anna tveggja, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar, kol­féll í kosn­ing­unum í fyrra­haust. Þeir fengu ein­ungis 40,5 pró­sent fylgi. Samkvæmt nýj­ustu könnun MMR mælist sam­an­lagt fylgi þeirra 29,9 pró­sent. Ef klofn­ings­fram­boðið Mið­flokk­ur­inn er lagt saman við þá tölu er fylgið samt ein­ungis 37,2 pró­sent.

Þessi staða flækir mögu­leika Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að kom­ast í rík­is­stjórn umtals­vert. Ljóst má vera að Mið­flokk­ur­inn er að taka mest fylgi frá Fram­sókn­ar­flokknum, en hann tekur líka fylgi frá Sjálf­stæð­is­flokknum. Og í ljósi þess að Sam­fylk­ingin, Píratar, Viðreisn og Björt fram­tíð, kom­ist allir þeir flokkar að á þingi, eru veru­lega ólík­legir til að starfa með Sjálf­stæð­is­flokknum í rík­is­stjórn, og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með þeim, þá er ljóst að flokk­ur­inn bindur vonir sínar við að geta annað hvort myndað tveggja flokka rík­is­stjórn með Vinstri grænum eða þriggja flokka rík­is­stjórn þar sem Framsókn kæmi inn sem þriðja hjólið. Miðað við könnun MMR þá er tveggja flokka stjórn með Vinstri grænum í besta falli mögu­leg með minnsta mögu­lega þing­meiri­hluta en minni­hluta atkvæða á bak­við sig. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var að koma úr slíkri rík­is­stjórn sem sprakk eftir átta mán­uði og leggur vart aftur út í slíkt ævin­týri, sér­stak­lega þegar við blasir að rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum yrði mjög óvin­sæl á meðal kjós­enda Vinstri grænna, sem vilja flestir félags­hyggju­stjórn.

Í nýlegri könnun Gallup, sem fram­kvæmd var eftir stjórn­ar­slit, kom fram að ein­ungis 18 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna vilja sjá Sjálf­stæð­is­flokk­inn í rík­is­stjórn með sínum flokki. Til sam­an­burðar sögð­ust 80 pró­sent þeirra vilja mynda rík­is­stjórn með Sam­fylk­ing­unni.

Líklegast er, í ljósi þeirrar stöðu sem er uppi í dag, að Katrín Jakobsdóttir verði næsti forsætisráðherra þjóðarinnar. Það á þó margt eftir að gerast fram að kosningum.
Lík­leg­ast er, í ljósi þeirrar stöðu sem er uppi í dag, að Katrín Jak­obs­dóttir verði næsti for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar. Það á þó margt eftir að ger­ast fram að kosn­ingum.

Ef Mið­flokk­ur­inn heldur áfram að reyta af Fram­sókn­ar­flokknum, og aðeins af Sjálf­stæð­is­flokknum í leið­inni, þá veikir það mjög mögu­leika þess­ara tveggja flokka að mynda bak­bein í rík­is­stjórn.

Sjálfstæðisflokkur varla að fara að samþykkja hátekjuskatt

Til við­bótar verður að öllum lík­indum flókið fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn að selja rík­is­stjórn­ar­sam­starf við Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokk til hluta síns bak­lands við þær aðstæður sem nú eru uppi. Við­mæl­endur Kjarnans innan Vinstri grænna segja nefni­lega að það sé ófrá­víkj­an­leg for­senda þess að flokk­ur­inn taki þátt í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi að fall­ist verði á skatt­kerf­is­breyt­ingar sem auki jöfnuð. Þar á flokk­ur­inn við t.d. hátekju­skatt og auð­legð­ar­skatt.

Í vik­unni varð ber­sýni­lega ljóst að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ætlar að aðlaga sig að þessum kröfum í aðdrag­anda kosn­inga. Í bréfi Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns flokks­ins, til flokks­manna kom fram að áherslur flokks­ins yrðu m.a. end­ur­bætur á skatt­kerf­inu „til að létta skatt­byrði hjá fólki með milli- og lægri tekjur en hækka á hátekjur.“ Ljóst er að margir innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins ættu erfitt með að kyngja slíkum skatta­hækk­unum.

Telja verður nær ómögulegt að Framsóknarflokkurinn myndi setjast í ríkisstjórn með Miðflokknum. Það sama má reyndar segja um nær alla flokka sem í framboði eru.
Telja verður nær ómögu­legt að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi setj­ast í rík­is­stjórn með Mið­flokknum. Það sama má reyndar segja um nær alla flokka sem í fram­boði eru.

Telja verður nær ómögu­legt að Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Mið­flokkur myndi rík­is­stjórn, jafn­vel þótt að þeir nái fylgi til þess. Í ljósi þess að það andar, væg­ast sagt, köldu milli Sig­mundar Davíðs og Bjarna Bene­dikts­sonar eftir rík­is­stjórn­ar­slitin vorið 2016 og að Sig­mundur Davíð hefur bein­línis ásakað áhrifa­fólk innan Fram­sókn­ar­flokks­ins um að vilja drepa sig, þá yrði slík rík­is­stjórn vart starf­hæf.

Þegar við bæt­ist hvernig lyk­il­fólk innan Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar talar um Sigmund Davíð er ljóst að það telur hann ekki sam­starfs­hæfan með nokkru móti. Sama gildir reyndar um lyk­il­fólk innan allra ann­arra flokka og því við­búið, sama hver árangur Mið­flokks­ins verður í kom­andi kosn­ingum, að ein­angrun Sig­mundar Davíðs í íslenskum stjórn­málum haldi áfram.

Margt eftir að breytast og engin fær óskastjórnina sína

Segja má að íslensk stjórn­mál skipt­ist í þrennt eins og staðan er í dag. Kerf­is­varn­ar­flokk­arnir tveir, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, mæl­ast sam­an­lagt með 29,9 pró­sent fylgi.

Flokkar sem stofn­aðir voru eftir árið 2012, Píratar, Flokkur fólks­ins, Viðreisn, Björt Framtíð, Mið­flokk­ur­inn, Íslenska þjóð­fylk­ingin og Dögun mæl­ast svo með sam­an­lagt 34,1 pró­sent fylgi. Að end­ingu mynda Vinstri græn og Sam­fylk­ingin vinstri- og jafn­að­ar­manna­væng stjórn­mála með sam­an­lagt fylgi upp á 35,1 pró­sent.

Í áður­nefndri könnun Gallup kom fram Stuðn­ings­menn Vinstri grænna vilja helst vinna með Sam­fylk­ing­unni en síst með Sjálf­stæð­is­flokknum. Þar kom líka áfram að 51 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks vilji Fram­sókn­ar­flokk­inn í rík­is­stjórn en ein­ungis þrjú pró­sent sjá Vinstri græna þar. Alls nefndu 71 pró­sent stuðn­ings­manna Fram­sóknar Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem flokk sem þeir vildu í rík­is­stjórn en ein­ungis 12 pró­sent Vinstri græna. Stuðn­ings­menn Sam­fylk­ingar og Pírata virð­ast vera með nokkuð sam­bæri­lega skoðun á því með hverjum þeir vilji helst starfa. Það eru með hvorum öðrum og svo Vinstri grænum, Bjartri fram­tíð eða Viðreisn. Einungis eitt pró­sent kjós­enda Pírata vilja sjá Sjálf­stæð­is­flokk­inn í rík­is­stjórn og þrjú pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ingar.

Miðað við stöð­una eins og hún er í dag er ólík­legt að nokkur fái ósk­a­rík­is­stjórn­ina sína. Þó er vert að benda á að enn eru rúmar fjórar vikur til kosn­inga, listar flestra fram­boða eru ekki til­búnir og þorri kjós­enda virð­ist óákveð­inn. Kosn­inga­þátt­taka mun skipta miklu máli og ef hún verður lítil mun það vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­blokk­inni, sem höfða til elstu kjós­end­anna, þeirra sem skila sér helst á kjör­stað. Auk þess er það gömul saga og ný að Sjálf­stæð­is­flokknum tekst venju­lega að hífa fylgi sitt upp á síð­ustu dögum kosn­inga­bar­átt­unnar þegar for­skot hans sem fjölda­hreyf­ingar nýt­ist best.

Það á því án efa margt eftir að breyt­ast fram að kjör­degi, sem verður 28. októ­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár