Vinstri græn stærsti flokkurinn með 30 prósent fylgi

Ný könnun Félags­vís­inda­stofn­unar fyrir Morg­un­blaðið sýnir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Vinstri græn lang­sam­lega stærst.

Katrín Jakobsdóttir er formaður Vinstri grænna.
Katrín Jak­obs­dóttir er for­maður Vinstri grænna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vinstri­ græn eru orðin stærsti stjórn­mála­flokk­ur lands­ins sam­kvæmt skoð­ana­könn­un Fé­lags­vís­inda­stofn­un­ar sem gerð var fyr­ir Morg­un­blaðið dag­ana 19. til 21. sept­em­ber.

Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag, en sam­kvæmt könn­un­inni mælist fylgið við VG um 30 pró­sent. Flokk­ur­inn fengi 22 þing­menn af 63 miðað við það, en í dag er þing­flokkur VG upp á 10 þing­menn.

Samkvæmt könn­un­inni munar mikið um fylgi kvenna við VG en um 40 pró­sent kvenna segj­ast ætla að kjósa flokk­inn.

Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn tap­ar veru­legu fylgi frá þing­kosn­ing­un­um í fyrra, sam­kvæmt könn­un­inni. Stuðning­ur við hann mæl­ist 23 pró­sent og fengi hann 15 þing­menn í stað 21 sem hann hef­ur nú. Píratar myndu fá 10 pró­sent atkvæða og sex þing­menn ef kosið væri í dag. Flokk­ur fólks­ins fengi 5 þing­menn kjörna, en hef­ur eng­an þing­mann núna. Björt fram­tíð næði ekki manni á þing.

Viðreisn mælist með 6 pró­sent og fengi þrjá þing­menn, Framsókn 11 pró­sent og 7 þing­menn og Sam­fylk­ingin 8 pró­sent og 5 þing­menn, og Píratar 10 pró­sent og sex þing­menn.

Könnunin var bæði síma- og net­könnun. Tvö þús­und manns voru í úrtak­inu og fjöldi svar­enda 908. Þátt­töku­hlut­fall var 46%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár