Eggert Skúlason hættir sem ritstjóri DV

Eggert Skúlason hættir sem ritstjóri DV á morgun.
Eggert Skúlason hættir sem rit­stjóri DV á morgun. Mynd: RÚV

Eggert Skúlason hættir sem rit­stjóri DV eftir útgáfu blaðs­ins á morgun. Þetta stað­festir hann við mbl.is.

Eggert segir þar að það sé sam­eig­in­leg ákvörðun hans og eig­enda Vef­press­unar, útgáfu­fé­lags DV, að hann hætti sem rit­stjóri. Eftir sum­ar­frí muni hann koma til með að vinna að verk­efnum fyrir útgáf­una, en það sé ekki alveg ljóst hvaða verk­efni það verði.

Þegar Kjarninn náði tali af Eggerti vildi hann ekki tjá sig. „Veistu, ég nenni ekki að tala við þig. Mér finnst þú ekki vera alvöru blaða­maður,“ sagði hann.

Eggert var ráð­inn rit­stjóri DV ásamt Kolbrúnu Berg­þórs­dóttur í lok árs 2014. Það gerð­ist í kjöl­far þess að Vef­pressan eign­að­ist blaðið. Egg­ert Skúla­son starf­aði á árum áður við fjöl­miðl­un, meðal ann­ars á Stöð 2. Áður en hann varð rit­stjóri DV hafði hann rekið eigið almanna­tengsla­fyr­ir­tæki og meðal ann­ars starfað fyrir kröfu­hafa föllnu bank­ana. Fyr­ir­tæki Egg­erts. Franca ehf., var líka ráðið til að gera úttekt á DV eftir að nýir eig­endur tóku við fjöl­miðl­inum haustið 2014. Starfs­menn DV sendu í kjöl­farið frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þeir sögðu úttekt­ina illa unna og að hún virt­ist að mestu byggja á skoð­unum úttekt­ar­höf­unda sjálfra.

Björn Ingi Hrafns­son er útgef­andi DV. Félag í eigu Björns Inga tók nýverið yfir­ ­eign­ar­hluti Sig­urðar G. Guð­jóns­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns og félags­ins Tryggva ­Geirs ehf., í eigu Þor­steins Guðna­son­ar, í Press­unni ehf., aðal­eig­anda DV og fleiri miðla. Félag­ið, sem heitir Kringu­eignir ehf., er nú skráð fyrir 31,85 ­pró­sent hlut í Press­unni. Önnur félög sem eru í eigu Björns Inga og Arn­ar­s Æg­is­son­ar, fram­kvæmda­stjóra Pressunn­ar, eiga 39,15 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu. Því eiga félög í eigu Björns Inga nú 71 pró­sent hlut í Press­unni, sem á 84,23 ­pró­sent hlut í DV.

Kröfum var breytt í hlutafé

Haustið 2014 áttu sér­ ­stað mikil átök um yfir­­ráð yfir DV. ­Feðgarnir Reynir Trausta­­son og Jón ­Trausti Reyn­is­­son, ásamt sam­­starfs­­mönn­um sín­um, höfðu þá átt og stýrt DV um nokk­­urt skeið en fengið fjár­­hags­­lega ­fyr­ir­greiðslu víða til að standa undir þeim rekstri, meðal ann­­ars hjá Gísla Guð­­munds­­syni, fyrrum eig­anda B&L. Þeim kröfum var síðan breytt í hluta­fé ­sem dugði til að taka yfir­ DV. Í átök­unum kom maður að nafni Þor­­steinn Guðn­a­­son fram fyrir hönd þeirra krafna.

DV var skömmu síð­ar­ ­selt til hóps undir for­yst­u ­Björns Inga Hrafns­­son­­ar. Kaupin voru gerð í nafni félags sem heitir Pressan ehf. Kaup­verðið hefur ekki verið gert opin­bert en Kjarn­inn greindi frá því fyrr á þessu ári að skuldir félags­ins hefðu hækk­að um­tals­vert á árinu 2014. Lang­­tíma­skuldir sem voru engar í árs­­lok 2013 vor­u orðnar 148 millj­­ónir króna í lok árs 2014. Auk þess tvö­­­föld­uð­ust skamm­­tíma­skuld­ir ­Pressunnar og voru orðn­­ar 124 millj­­ónir króna í lok árs. Því skuld­að­i ­fé­lagið sam­tals 272 millj­­ónir króna í lok árs 2014, sem er fjórum sinn­um ­meira en þær 68 millj­­ónir króna sem félagið skuld­aði í lok árs árið áður.

Engar opin­berar upp­­lýs­ing­ar eru til um hvaðan umrædd lán komu að öðru leyti en það að Björn Ingi Hrafns­­son hefur upp­­lýst um að hluti af ­kaup­verð­inu á DV hafi verið greitt með selj­enda­láni frá þeim sem breytt­u ­kröf­um sínum í hlutafé í mið­l­inum þegar hann var tek­inn yfir haustið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár