Hygge

Hvað þýðir danska hug­takið hygge? Er það stig sem nær hærra en bara að hafa það kósí? Nær eitt­hvað íslenskt orð yfir það? Eða er um að ræða sér­staka danska heim­speki?

Kjarn­inn end­ur­birtir nú valda pistla Borg­þórs Arn­gríms­sonar sem sam­hliða eru gefnir út sem hlað­varps­þætt­ir. Frétta­skýr­ingar Borg­þórs njóta mik­illa vin­sælda og sú sem er end­ur­birt hér að neðan var upp­haf­lega birt þann 8. októ­ber 2017.

Það lætur ekki mikið yfir sér þetta fimm stafa danska orð: hygge. Þegar kemur að því að útskýra nákvæm­lega hvað í því felst vand­ast mál­ið. Þótt við Íslend­ingar segjum stund­um, með til­vitnun í Einar Bene­dikts­son, að til sé á Íslandi orð yfir allt sem er hugsað á jörðu gengur okkur ekki sér­lega vel að lýsa merk­ingu þessa ein­falda orðs. Reyndar er þessi vandi ekki bund­inn við íslensk­una, Danir eiga sjálfir í mesta basli með það.

Við eigum nokkur orð sem byrja á hugg, lík­lega komin úr dönsku en ekk­ert þeirra nær merk­ingu danska orðs­ins. Hugga (ég reyni að hugga barn­ið) huggun (mér er nú ekki mikil huggun í því) þetta þekkja all­ir. Hugg­ari er ekki mikið notað nú til dags þótt margir þekki merk­ing­una. huggu­legt (hér er aldeilis huggu­legt) huggu­legur eða huggu­leg (það var þarna mjög huggu­leg stúlka) var algengt mál en þó á und­an­haldi eins og huggu­leg­heit (þarna voru nú aldeilis huggu­leg­heitin maður minn). Næs, kúl og kósí hafa að ein­hverju leyti komið í stað­inn.

Hvað er hygge?

Í einu dönsku dag­blað­anna mátti fyrir skömmu lesa að „Frakkar eigi l´amour, Bretar hafi unnið slag­inn um heims­tungu­málið og Kín­verjar séu góðir í stærð­fræði. En við eig­um hygge“ sagði blaða­mað­ur­inn sem hafði sjálfur verið að lesa umfjöll­um Le Monde, The Guar­dian, New York Times og kín­verska net­mið­ils­ins Jing Daily um þetta danska fyr­ir­bæri (eða hvað sem á að kalla það). Skoðun erlendu blaða­mann­anna væri sú að hygge sé einmitt það sem nútíma­mað­ur­inn þyrfti mest á að halda nú um stund­ir.

The little book of Hygge

Árið 2016 sendi Dan­inn Meik Wik­ing frá sér „The little book of Hygge“. Meik Wik­ing er fram­kvæmda­stjóri rann­sókna­set­urs­ins „Institut for Lykk­e­for­skning sem kannski mætti kalla „Stofnun ham­ingju­rann­sókna“. Stofn­un­in, sem er sjálfs­eign­ar­stofn­un, var sett á lagg­irnar árið 2013 og hefur aðsetur á Frið­riks­bergi við Kaup­manna­höfn.

[adspot]„The little book of Hygge“ hefur selst í meira en einni milljón ein­taka og verið þýdd á 33 tungu­mál. Hún hefur náð inn á met­sölu­lista í Evr­ópu og Banda­ríkj­un­um. Breska bóka­for­lag­ið Penguin hafði sam­band við Meik Wik­ing og spurði hvort hann gæti kannski skrifað bók um „þetta þarna hygge“.

Meik Wik­ing segir að síðan bókin kom út hafi hann nán­ast ekki sinnt öðru en við­töl­um, um bók­ina og inni­hald henn­ar, og sér ber­ist fjöl­margar beiðnir í hverri viku um að flytja erindi. „Sumir halda að ég sé með ein­hverja alls­herjar upp­skrift að hygge. Það kemur mörgum á óvart, sér­stak­lega Banda­ríkja­mönnum og fólki frá Suð­ur­-Kóreu, þegar ég segi að maður geti ekki keypt sér upp­skrift af hygge en hún sé hins­vegar nokkuð sem allir geti öðl­ast.“

„Sú stað­reynd að fólk víða um heim hefur svona mik­inn áhuga á hygge sýnir ákveð­inn hörgul á nota­leg­heitum og ró í sál­inni og lík­am­an­um“ sagði danski mann­fræð­ing­ur­inn Jeppe Trolle Linn­et, sem hefur skrifað dokt­ors­rit­gerð um hygge, í við­tali við danskt dag­blað.

Hygge í þekktri breskri orða­bók

Hrifn­ingin yfir hygge byrj­aði í Bret­landi fyrir um það bil tveimur árum. Þá birt­ist á vef­síðu BBC, breska rík­is­út­varps­ins grein um hygge og orðið hefur nú verið tekið upp í hina þekktu orða­bók Oxford Eng­lish Dict­ion­ary. Orða­bókin segir þetta orð lýsandi fyrir danska menn­ingu, það merki nota­lega sam­veru, sem auki vellíðan og ánægju.

Áhugi á Dönum og öllu því sem danskt er hefur auk­ist mikið í Bret­landi á allra síð­ustu árum, danskir sjón­varps­mynda­flokk­ar, til dæm­is Borgen og For­brydel­sen hafa notið mik­illa vin­sælda meðal Breta. Auk „The little book of Hygge“ komu á síð­asta ári út í Bret­landi að minnsta kosti níu bækur um sama efni. Kjöt­boll­ur, glögg, snúð­ar, sæl­gæti, rauð­vín­stár, kaldur bjór og kerta­ljós er meðal þess sem höf­undar þess­ara bóka telja að skapi hina eft­ir­sókn­ar­verðu hygge. Breska dag­blað­ið Even­ing Stand­ard sagði í umfjöllun um hygge að Danir hafi þekkt þetta fyr­ir­bæri árum saman og það sé ein ástæða þess að þeir séu meðal ham­ingju­söm­ustu þjóða heims „þótt þar sé dimmt, kalt og úrkomu­sam­t.“ Breska dag­blað­ið Guar­dian sendi einn blaða­manna sinna til Kaup­manna­hafnar til að leita að hygge. Blaða­mað­ur­inn sagð­ist vissu­lega hafa skynjað þessa hygge þótt hann gæti ekki lýst henni með orðum og enn síður útskýrt hvernig hún yrði til. Til­tók sér­stak­lega að hann hefði borð­að tebirkes vín­ar­brauð með remonce (smjör og syk­ur­krem), það hefði bragð­ast prýði­lega en blaða­mað­ur­inn treysti sér ekki til að full­yrða að vín­ar­brauðið væri eitt og sér hygge auk­and­i.

Hygge Hygge Hygge

Hygge er ekki komið í franskar orða­bækur en þar í landi selj­ast bækur um þetta óskil­grein­an­lega fyr­ir­bæri, hygge, í stórum stíl. Í Banda­ríkj­unum má finna Hygge- bak­arí, kín­verskir ferða­menn sem streyma til Dan­merkur segj­ast koma til að upp­lifa hygge. Í Þýska­landi er víða að finna veit­inga- og kaffi­staði sem kenna sig við hygge, í Berlín er til dæmis að finna Café Hygge. Í Ham­borg er fyrir skömmu farið að gefa út tíma­rit sem heit­ir Hygge.

Í fyrsta tölu­blað­inu not­aði rit­stjórnin 162 blað­síður til að skil­greina „þessa dönsku heim­speki“ eins og það er orð­að. Ein­kunn­ar­orð blaðs­ins eru „gerðu líf þitt huggu­legra“ og með fyrsta tölu­blað­inu fylgdu fram­burð­ar­leið­bein­ingar þannig að eng­inn þurfi að fara flatt á fram­burð­in­um. Í þessu fyrsta tölu­blaði er líka „topp tíu hygge listi“ eins­konar leið­bein­ingar um það hvernig hægt sé að upp­lifa hygge. Maður á til dæmis að njóta mat­ar­ins í stað þess að telja hita­ein­ing­arn­ar, rækta sam­bandið við vin­ina, vera þakk­látur fyrir það sem maður hefur og ganga í ull­ar­fatn­aði! Þetta fyrsta tölu­blað er ríku­lega mynd­skreytt en það vekur athygli að margar mynd­anna eru frá Sví­þjóð.

Skil­grein­gar­vandi

Í nýjasta tölu­blaði Sam­virke, félags­manna­blaði Coop sam­tak­anna, er löng umfjöllun um hygge. Eng­inn þeirra fjöl­mörgu sem þar var rætt við treysti sér til að skil­greina orð­ið. „Njóta þess sem maður hef­ur, frekar að eiga nota­lega stund með fjöl­skyldu og vinum en að vinna fyrir örfáum við­bót­ar­krón­um“ nefndu margir sem eins­konar skil­grein­ingu. Það er kannski ekki skrýtið að útlend­ingar eigi erfitt með að átta sig á og skil­greina þetta fyr­ir­bæri, hygge, fyrst heima­menn geta það ekki sjálf­ir.

Frétta­­skýr­ingin birt­ist fyrst 8. októ­ber 2017. Hún er nú end­­ur­birt í tengslum við hlað­varpsum­­­fjöllun um hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár