Stuðningur hins opinbera við ferðaþjónustuna nam 35 milljörðum árið 2020

Ferða­þjón­ustan tók til sín um helm­ing af fjár­út­látum hins opin­bera vegna efna­hags­legra mót­væg­is­að­gerða fyrir ein­stak­linga og fyr­ir­tæki í fyrra. Áætlað er að tap­aður virð­is­auki í ferða­þjón­ustu árið 2020 hafi verið 149 millj­arðar króna.

Um 70 prósent þeirra erlendu ferðamanna sem sóttu Ísland heim í fyrra komu á fyrstu þremur mánuðum ársins.
Um 70 pró­sent þeirra erlendu ferða­manna sem sóttu Ísland heim í fyrra komu á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Heild­ar­stuðn­ingur hins opin­bera til ein­kenn­andi greina ferða­þjón­ustu nam 34,8 millj­örðum króna árið 2020. Rekstur gisti­staða var sá flokkur sem naut mests opin­bers stuðn­ings, alls 11,7 millj­örðum króna og þar á eftir kom far­þega­flug með 7,5 millj­arða króna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri áfanga­skýrslu Rann­sókna­mið­stöðvar ferða­mála.

Í fyrra námu heild­ar­fjár­út­lát hins opin­bera vegna mót­væg­is­að­gerða fyrir ein­stak­linga og fyr­ir­tæki um 70 millj­örðum króna. Hlutur ferða­þjón­ust­unnar í þess­ari fjár­hæð er því um helm­ingur.

Gerður er grein­ar­munur á aðgerðum sem ætl­aðar voru rekstr­ar­að­ilum og aðgerðum sem ætl­aðar voru ein­stak­lingum í skýrsl­unni. Þær aðgerðir sem ætl­aðar voru ein­stak­lingum voru hluta­bóta­leið og greiðsla launa í sótt­kví. Hluta­bóta­leiðin er engu að síður sögð hafa komið til móts við rekstr­ar­að­ila og laun­þega, því hún leiddi til þess að fyr­ir­tæki gátu haldið ráðn­ing­ar­sam­bandi við starfs­fólk. Hluta­bóta­leiðin var sú aðgerð sem flestir innan ferða­þjón­ust­unnar nýttu sér árið 2020.

Alls námu greiðslur hluta­bóta til starfs­fólks í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu 10,8 millj­örðum árið 2020. Mest fór til starfs­fólks í veit­inga­sölu og þjón­ustu, rúm­lega 3,5 millj­arðar, en næst mest til starfs­fólks gisti­staða, 3,1 millj­arður. Um 44 pró­sent greiddra hluta­bóta rann til starfs­fólks í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ust­unnar en heild­ar­upp­hæð greiddra hluta­bóta á árinu 2020 nam tæpum 24,5 millj­örðum króna.

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki fengu úthlutað um 65 pró­sent af þeim stuðn­ingi sem ein­ungis var ætl­aður rekstr­ar­að­ilum, utan sjálf­krafa frest­unar á skatt­greiðslum á árinu 2020. Það er um 22,7 millj­arðar króna. Sé horft til heild­ar­stuðn­ings, með sjálf­krafa skatt­frest­unum, nam stuðn­ing­ur­inn 23,9 millj­örðum króna sem er um 53 pró­sent af heild­ar­fjár­magn­inu í mála­flokknum.

Tapaður virðisauki greinarinnar 149 milljarðar í fyrra

Ferða­þjón­ustan varð fyrir miklum búsifjum árið 2020. Sam­dráttur í komum erlendra ferða­manna mæld­ist 76 pró­sent en á árinu kom tæp­lega hálf milljón ferða­manna til lands­ins. Þar af komu 70 pró­sent þeirra á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Fjöldi þeirra sem starf­aði í ferða­þjón­ustu dróst saman um 48 pró­sent og velta grein­ar­innar dróst saman um 59.

Í skýrsl­unni er spáð fyrir um hvað hefði gerst ef ekki hefði skollið á heims­far­aldur. Spár höfðu gert ráð fyrir um tveimur millj­ónum ferða­manna til lands­ins og því er áætlað að tap­aður virð­is­auki í ferða­þjón­ustu vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru hafi verið um 149 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár