Efling fordæmir ákvörðun Icelandair hotels og hótar að kæra

Stétt­ar­fé­lagið Efling for­dæmir þá ákvörðun Icelandair hot­els að draga laun af starfs­mönnum vegna verk­falla sem þeir tóku ekki þátt í. Efling krefst þes að hót­el­keðj­una greiði starfs­mönn­unum laun og ef ekki þá verði farið með málið fyrir dóm.

Samstöðufundur 8. mars 2019 - Verkfall hótelstarfsmanna
Sam­stöðu­fundur 8. mars 2019 - Verkfall hót­el­starfs­manna Mynd: Bára Huld Beck

Stéttarfélagið Efl­ing for­dæm­ir harðlega þá ákvörðun Icelandair hotels að draga laun af starfs­mönn­um vegna verk­falla sem þeir tóku ekki þátt í. Í tilkynningu frá stéttarfélaginu er skorað á hótelkeðjuna að leiðrétta mistökin tafarlaust. Efling gerir þá kröfu að Icelandair hotels bæti starfsmönnunum upp launamissinn ásamt dráttarvöxtum og veita þeim jafnframt afsökunarbeiðni. Verði hótelkeðjan ekki við þeirri kröfu þá fari stéttarfélagið með málið fyrir dóm. 

Drógu laun af starfsfólki óháð því hvort að starfsmaður hafi verið á vakt

Icelandair hotels drógu tveggja daga laun af öllum starfsmönnum hótelanna sem vinna störf sem féllu undir verkfallsaðgerðir stéttarfélaganna VR og Eflingar dagana 8. mars og 22. mars, óháð því hvort þeir voru á vakt þá daga eða ekki.

Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair hotels, sagði í skriflegu svari til Fréttastofu RÚV að stéttarfélögin hefðu staðfest að félagsmenn þeirra sem voru í verkfalli gætu sótt launagreiðslur fyrir sömu daga í verkfallssjóð félaganna. Hún sagði að dregið hafi verið af launum í samræmi við kjör hvers og eins og að fyrirtækið telji þennan frádráttinn lögum samkvæmt. 

Skýringar hótelsins standast enga skoðun

Í tilkynningunni frá Eflingu segir að stéttarfélagið hafni alfarið tilraunum hótelkeðjunnar til að skjóta sér undan ábyrgð á málinu. „Fulltrúi keðjunnar hefur hermt upp á starfsmenn að þeir hafi sagst eiga rétt á greiðslum úr vinnudeilusjóði þótt þeir hafi ekki verið við störf. Slíkt á sér enga stoð í veruleikanum. Efling gaf út ítarlegar skriflegar leiðbeiningar um rétt á greiðslum úr vinnudeilusjóðum og þar kemur slíkt hvergi fram. Skýringar hótelsins standast því enga skoðun og eru yfirklór,“ segir í tilkynningunni.

Efling mun því gera kröfu á Icelandair Hotels að greiða starfsmönnunum sem ekki voru á vakt laun og ef ekki verður orðið við henni þá verði farið með málið fyrir dóm.

„Það er verið að hafa laun upp á 12 til 25 þús­und krónur af fólki sem er á lægstu laun­unum. Það er hreint með ólík­indum að hót­el­keðjan skuli grípa til þess­ara ráð­staf­ana og við munum bregð­ast við af fullri hörku, “ er haft eftir Viðari Þor­steins­syni, fram­kvæmda­stjóra Eflingar í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár