Ekki trúverðugt að umhverfisáhrif vindorkuvers verði óveruleg

Vind­orku­ver EM Orku í Garpsdal mun hafa nei­kvæð umhverf­is­á­hrif að mati sveit­ar­stjórnar Reyk­hóla­hrepps. Að halda öðru fram sé ekki trú­verð­ugt.

Vindorka
Vindorka Vind­orku­ver EM Orku í Garpsdal er eitt fjöl­margra slíkra sem eru á teikni­borð­inu um allt land. Mynd: AFP

Það er ekki mjög trú­verðug nið­ur­staða að flest umhverf­is­á­hrif séu metin óveru­leg fyrir jafn umfangs­mikla fram­kvæmd og hér ræðir. Slíkt á m.a. við um ásýnd, lands­lag og gróð­ur­far.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Reyk­hóla­hrepps við umhverf­is­mats­skýrslu vegna áform­aðs vind­orku­vers EM Orku í Garpsdal. Verið myndi telja 21 vind­myllu og yrði hver þeirra um 160 metrar á hæð.

Reyk­hóla­hreppur telur að ágæt­lega sé gerð grein fyrir fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum og helstu umhverf­is­á­hrifum þeirra í umhverf­is­mats­skýrslu um verk­efnið sem kynnt var í sumar. Fram­kvæmda­lýs­ing falli að stærstum hluta að Aðal­skipu­lagi sveit­ar­fé­lags­ins. Jafn­framt telur sveit­ar­fé­lagið að fram­kvæmdin kæmi almennt til með að hafa jákvæð áhrif á sam­fé­lagið vegna atvinnu og atvinnu­tæki­færa. „Þó er ljóst að jafn umfangs­miklar fram­kvæmdir munu hafa nei­kvæð umhverf­is­á­hrif í för með sér og er þar helst til­tekið áhrif á ásýnd, lands­lag og gróð­ur­far.“

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár