Fjórir nýir virkjanakostir samþykktir úr atvinnuveganefnd

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar afgreiddi breyt­ing­ar­til­lögu um ramma­á­ætlun úr nefnd­inni á fundi sínum í morgun. Með breyt­ing­ar­til­lög­unni er lagt til að fjórir virkj­ana­kostir til við­bótar við Hvamms­virkjun verði færðir úr bið­flokki áætl­un­ar­innar í nýt­ing­ar­flokk. Umhverf­is­ráð­herra lagði fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í haust um að Hvamms­virkjun yrði færð úr bið­flokki í nýt­ing­ar­flokk.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar vöktu máls á þess­ari afgreiðslu í upp­hafi þing­fundar nú eftir hádegi og gagn­rýndu vinn­una mjög. Stein­grímur J. Sig­fús­son þing­maður VG sagði alla vinnu meiri­hlut­ans í mál­inu vera til skammar. „Öll fag­leg ferli og vinnu­brögð eru þver­brotin, farið er gegn anda og inn­taki lag­anna um ramma­á­ætlun,“ sagði hann.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar sögðu meiri­hlut­ann fara gegn lögum um ramma­á­ætlun með afgreiðslu sinni á mál­inu, ekki síst vegna þess að einn virkj­ana­kost­ur­inn, Haga­vatns­virkjun, hefur ekki verið full­kann­aður af verk­efn­is­stjórn um ramma­á­ætlun. Svandís Svav­ars­dóttir þing­maður VG sagð­ist telja breyt­ing­ar­til­lög­una óþing­tæka og að ef málið ætti að ná fram að ganga þyrfti stjórnin að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögu um lög um ramma­á­ætlun. Undir þetta tóku bæði Stein­grímur J. Sig­fús­son og Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Jón Gunn­ars­son, for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþingis, sagði í sam­tali við RÚV í hádeg­inu að hann gerði ráð fyrir ágrein­ingi við minni­hlut­ann á þing­inu vegna máls­ins. „Það hafa kannski alltaf verið ákveðin átök um það að fara í þessar fram­kvæmdir en við teljum mjög brýnt, og það sýnir sig auð­vitað í stöðu mála sem er alvar­leg í raf­orku­fram­leiðslu okkar, að það sé höggið á þennan hnút og menn geti látið þessi hjól snú­ast að nýju.“ Hann sagði jafn­framt að verið væri að fylgja máls­með­ferð sem gert sé ráð fyrir í lögum. Alþing­is­menn hafi fulla heim­ild til þess sam­kvæmt lögum að leggja fram breyt­ing­ar­til­lögur um mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár