Tesla fer í hundrað á 2,8 sekúndum - hraðari en Ferrari

Banda­ríski raf­bíla­fram­leið­and­inn Tesla Motors kynnti á dög­unum upp­færslu fyrir Tesla S-bið­freið­arnar. Öflugri raf­geymir og nýjar still­ingar gera bíl­stjórum nú kleift að kom­ast í hund­rað kíló­metra hraða á aðeins 2,8 sek­úndum. Still­ing­unni var gefið nafn við hæfi og heitir hún „fárán­leika­still­ingin“ eða „ludicrous mode“ á ensku.

Erlendir fjöl­miðlar hafa fjallað um end­ur­bæt­urnar. Hrifning bíla­blaða­manns breska rík­is­út­varps­ins, BBC, leynir sér ekki í umfjöllun fjöl­mið­ils­ins. „Jú, við erum sam­mála um að raf­bílar hafa ákveðin tak­mörk hvað varðar upp­lifun far­þeg­anna og bygg­ingu bíls­ins, en það varla hægt að segja að fárán­leika­still­ingin sé ekki veru­lega til­komu­mikil,“ skrifar Ollie Kew.

Blaða­maður Bloomberg-frétta­stof­unnar fjallar um upp­færsl­una á bílnum á svip­uðum nótum og spáir því hrein­lega að bílar drifnir með jarð­efna­elds­neyti verði útdauðir á allra næstu ára­tugum. „Ég giska á að árið 2035, ef ekki fyrr, verði mik­ill meiri­hluti bif­reiða sem seldar eru í Banda­ríkj­unum og Evrópu ekki knúnir jarð­efna­elds­neyti,“ skrifar Barry Ritholtz.

Tesla-raf­bíl­arnir hafa verið vin­sælir meðal þeirra sem kjósa raf­magn sem aflgjafa enda eru bíl­arnir sport­legir á að líta og eru búnir raf­hlöðum sem end­ast lengur en flestir aðrir raf­bílar á mark­að­inum. Tesla er því í fremstu víg­línu raf­bíla­væð­ingar heims­ins, ásamt Toyota sem hefur lagt mikla fjár­muni í þróun og fram­leiðslu slíkra bif­reiða.

Nýjasta útspil Tesla er hins vegar mik­il­vægt fyrir frek­ari þróun þess­ara tækja fram­tíð­ar­innar. Tesla hefur tek­ist að beita öllu afli raf­knúnu vél­ar­innar í einu og dreifa því á öll fjögur hjólin án þess að vél­bún­aður bíls­ins bræði hrein­lega úr sér. Þar er nýtt „snjall­ör­yggi“ að verki sem bíla­fram­leið­and­inn hefur hannað. „Fárán­leika­still­ingin“ er mik­il­vægur liður í því að gera hefð­bundna bíla óþarfa.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Ofur­bíll­inn Bugatti Veyron er gríð­ar­lega öfl­ugur og sér­stak­lega hann­aður til að ná miklum hámarks­hraða.[/caption]

Til að setja hröðun Tesla S-bíls­ins í fárán­leika­still­ingu í sam­hengi má telja til ofur­bíla á borð við Bugatti Veyron sem er 2,6 sek­úndur í hundraðið og sænska ofur­bíl­inn Königs­egg One sem kemst á 100 kíló­metra hraða á 2,5 sek­úndum. Ferrari 458 Italia og McLaren 570s eru til dæmis báðir lengur en Teslan að kom­ast í 100 kíló­metra hraða.

Ritholtz leggur til á vef Bloomberg að Elon Musk, stofn­andi og eig­andi Tesla, setji flott­ari yfir­bygg­ingu á bíl­inn eða hreini­lega selji tækn­ina til þess­ara sport­bíla­fram­leið­enda svo þeir geti gert raf­magns­út­gáfur af bíl­unum sínum. Þannig yrði mann­kynið fljót­ara að til­einka sér raf­bíla­bylt­ing­una.

„Enn á ný er Musk skrefi á undan,“ skrifar Kew enn­fremur á BBC og veltir fyrir sér hvað sé næst - brjál­æð­is­still­ing? Musk hefur nefni­lega þegar sagt í yfir­lýs­ingu að næsta skref birt­ist í næstu kyn­slóð götu­bíl­anna frá Teslu eftir fjögur ár.


Uppfært 23. júlí kl. 9:18 - Ranglega var sagt að enska hug­takið „fuse“ merki „kveiki­þráður“ í raf­magns­bílum. Það er ekki rétt og hefur verið leið­rétt. Í raf­magns­bílum er átt við bræðslu­varið, sem í dag­legu tali kall­ast öryggi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár