Mynd: Bára Huld Beck

Nýr meirihluti veltur á að Dagur gefi eftir stólinn

Hægt verður að ganga frá myndun nýs meiri­hluta Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna hratt ef Sam­fylk­ingin felst á þá kröfu að ráð­inn verði borg­ar­stjóri.

Krafa Við­reisnar um að ráð­inn verði borg­ar­stjóri ef af meiri­hluta­sam­starfi flokks­ins við Sam­fylk­ingu, Pírata og Vinstri græn verður er ófrá­víkj­an­leg. Við­mæl­endur Kjarnans innan Við­reisnar segja að þótt flokk­ur­inn nái fram þeim mál­efna­á­herslum sem hann vill þá þurfi áferð nýs meiri­hluta að vera sú að ekki sé um sama vagn að ræða og á síð­asta kjör­tíma­bili, en bara með nýju dekki undir í stað Bjartrar fram­tíðar. Þess vegna sé úti­lokað að Dagur B. Egg­erts­son geti verið áfram borg­ar­stjóri náist saman.

Takist það er ekki margt sem út af ber til að hægt sé að ná þessum meiri­hluta saman. Stefnur flokk­anna fjög­urra liggja saman í skipu­lags- og sam­göngu­málum og allir eru þeir til­búnir í miklar aðgerðir til að auka enn í upp­bygg­ingu hús­næðis í borg­inni til að tryggja fleiri borg­ar­búum hús­næði á kjörum sem þeir ráða við. Í því sam­hengi má benda á að Viðreisn var með það í stefnu­skrá sinni að byggja 350 félags­legar íbúðir á kjör­tíma­bil­inu.

Viðreisn mun fara fram á að stefna flokks­ins í atvinnu­málum, meðal ann­ars lækkun á fast­eigna­sköttum á fyr­ir­tæki, og í mennta­málum fái gott pláss í sátt­mála meiri­hlut­ans. Auk þess er mikil áhersla á að ein­falda kerfið þannig að þeir sem þurfi t.d. að fá ýmis athafna­leyfi geti gert það með minna flækju­stigi. Viðreisn mun líka leggja áherslu á að fastar verði haldið um rekstur borg­ar­innar, en mörgum þar þykir hann ekki í nægi­lega góðum far­vegi með auk­inni skulda­söfnun í miðri upp­sveiflu.

Enginn vafi er, sam­kvæmt nið­ur­stöðu kann­ana, að kjós­endur Við­reisnar vilja helst sjá flokk­inn fara þessa leið í myndun meiri­hluta. Í könnun Gallup sem birt var rétt fyrir kosn­ingar kom fram að 63 pró­sent af fylgi Við­reisnar kom frá þeim sem kusu frá­far­andi meiri­hluta árið 2014. Einungis 17 pró­sent þess kom frá Sjálf­stæð­is­flokki. Ólafur Þ. Harð­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, benti á það í gær í stöðu­upp­færslu á Facebook að kjós­enda­prófílar Við­reisnar í Reykja­vík, til dæmis ald­ur, skóla­ganga og búseta í hverf­um, sé miklu lík­ari prófílum Sam­fylk­ingar og Pírata en Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins.

Samfylkingin rak slaka kosningabaráttu

Sætti Dagur, og Sam­fylk­ingin, sig við það að leiða ekki meiri­hluta­sam­starfið segja við­mæl­endur Kjarnans að hægt verði að koma honum saman jafn­vel fyrir viku­lok. Raunar ætti að draga til ein­hverra tíð­inda þegar líður á dag­inn í dag, ef ekk­ert óvænt kemur upp á.

Innan Sam­fylk­ing­ar­innar er að eiga sér stað ákveðin nafla­skoðun. Flokk­ur­inn rak ekki góða kosn­inga­bar­áttu og hún lítur enn verr út í bak­sýn­is­spegl­inum í ljósi nið­ur­stöðu kosn­ing­anna. Þótt sú nið­ur­staða hafi ekki verið afleit, og skilað sjö borg­ar­full­trúum, þá missti Sam­fylk­ingin stöðu sína sem stærsti flokkur borg­ar­innar. Samkvæmt skoð­ana­könn­unum gerð­ist það alveg við loka­markið, þegar kosn­inga­vél Sjálf­stæð­is­flokks var komin á fullt. Þar var stór hópur þaul­skipu­lags og dug­legs hóps fólks að hringja í þús­undir síð­ustu dag­anna fyrir kosn­ingar og flokk­ur­inn aug­lýsti meira en nokkur annar á þeim tíma. Þær aug­lýs­ingar mið­uðu á að herja á veika bletti Sam­fylk­ingar, meðal ann­ars leik­skóla­mál, og þar skipti fram­ganga Hildar Björns­dóttur, sem sat í öðru sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks, miklu máli. Hún var sá fram­bjóð­andi á þeim lista, ásamt Katrínu Atla­dóttur, sem gat höfðað til ungs fjöl­skyldu­fólks og kvenna, sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var ekki að mæl­ast sterkur hjá. Þær voru báðar áber­andi í aug­lýs­ingum flokks­ins síð­ustu daga fyrir kosn­ingar.

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokks.
Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks.

Við­mæl­endur Kjarnans úr efstu lögum Sam­fylk­ingar segja að það hafi verið mis­tök hjá flokknum að leggja ein­ungis áherslu á Dag í kosn­inga­bar­átt­unni en fela hina fram­bjóð­end­urna . Þar hafi verið sterkar konur eins og Heiða Björg Hilm­is­dóttir, vara­for­maður flokks­ins, Kristín Soffía Jóns­dóttir, Sabine Leskopf og Guðrún Ögmunds­dóttir. Allt konur sem höfða til mis­mun­andi hópa vegna mis­mun­andi styrk­leika. Þá hafi kosn­inga­bar­áttan snú­ist allt of mikið um verk síð­asta kjör­tíma­bils en ekki það sem flokk­ur­inn ætl­aði sér að gera í borg­inni í fram­tíð­inni.

Von­brigða­nið­ur­staða Sam­fylk­ing­ar­innar í kosn­ing­unum styrkir þá kröfu ann­arra í vænt­an­legu meiri­hluta­sam­starfi að nýr borg­ar­stjóri verði feng­inn til að setj­ast í ráð­húsið.

Hver á að verða borgarstjóri?

Stóra spurn­ingin er hver það eigi að vera? Gísli Marteinn Bald­urs­son, sem hefði verið nokkuð aug­ljóst val sem lík­lega flestir innan meiri­hlut­ans hefðu sætt sig vel við, hefur ekki áhuga á starf­inu. Honum hefur raunar heldur ekki verið boðið það með neinum form­legum hætti. Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, er sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans heldur ekki jákvæð. Sögu­sagnir um að Halla Tóm­as­dóttir, fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, komi til greina eiga sér ekki fót­festu.

Vinstri meirihlutinn út af borðinu

Gangi þessi meiri­hluta­myndun ekki eftir er komin upp flókin staða. Ókjörnir aðals­menn í Vinstri grænum hafa bak­við tjöldin reynt mikið að tala fyrir myndum meiri­hluta þeirra þriggja flokka sem sitja nú í meiri­hluta með Sós­í­alista­flokki og Flokki flokks­ins, þó ekki væri nema til að geta haldið þeim mögu­leika yfir höfð­inu á Viðreisn. Sá mögu­leiki hvarf end­an­lega í gær þegar Sós­í­alista­flokk­ur­inn til­kynnti að hann muni ekki taka þátt í meiri­hluta­sam­starfi vegna þess að hann telji að ekk­ert „muni ávinn­ast í samn­inga­við­ræðum eins borg­ar­full­trúa við ríkj­andi öfl.“

Vinstri græn eru raunar í mjög erf­iðri stöðu. Borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar, þar sem flokk­ur­inn beið afhroð og rétt skreið inn með einn borg­ar­full­trúa, sýndu að klofn­ing­ur­inn innan flokks­ins er mun dýpri og alvar­legri en af er látið. Flokkur til vinstri við Vinstri græn, Sós­í­alista­flokk­ur­inn, fékk miklu betri kosn­ingu og sér­stök Kvenna­hreyf­ing, sem í voru margar fyrr­ver­andi flokks­konur í Vinstri grænum, bauð fram vegna þess að henni fannst að áhersla á jafn­rétt­is­mál væri ekki nægi­lega mikil í kosn­ing­unum.

Það er stað­reynd sem erfitt er að flýja frá að ein­ungis 2.700 manns kusu Vinstri græn í Reykja­vík. Til sam­an­burðar kusu 14.477 ein­stak­lingar Vinstri græn í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur í þing­kosn­ingum fyrir sjö mán­uðum síðan.

Viðreisn mun ekki vinna með Miðflokki

Annar mögu­leiki sem rætt hefur verið um er meiri­hluti Við­reisnar með Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins. Sá meiri­hluti er ekki raun­hæfur af þeirri ein­földu ástæðu að innan Við­reisnar er ekki neinn vilji til að vinna með Mið­flokki. Flokk­ur­inn lítur raunar á Mið­flokk­inn sem and­stæðu sína. Þjóð­ern­is­legan ein­angr­un­ar­hyggju­flokk sem þrífst á stórum en illa útfærðum lof­orðum. Innan Mið­flokks­ins er til að mynda hægt að finna helstu and­stæð­inga Evr­ópu­sam­bands­ins sem starfa í stjórn­málum. Á meðal þeirra er for­maður Heim­sýnar, Vigdís Hauks­dóttir. Hún er líka eini kjörni borg­ar­full­trúi Mið­flokks. Viðreisn er á hinn bóg­inn sá flokkur sem leggur mest allra áherslu á Evr­ópu­sam­bands­að­ild og alþjóða­sam­sam­starf. Flokk­ur­inn var bein­línis stofn­aður í kringum klofn­ing Evr­ópu­sinna út úr Sjálf­stæð­is­flokknum á sínum tíma. Þá á eftir að taka til­lit til þess að stefna Við­reisnar og Mið­flokks í borg­ar­málum er eins og svart og hvítt. Flokk­arnir eru nán­ast ekki sam­mála um neitt. Ekki frekar en í lands­mál­unum.

Ekki liggur enn fyrir hver mun setjast í borgarstjórastólinn í ráðhúsinu.
Ekki liggur enn fyrir hver mun setj­ast í borg­ar­stjóra­stól­inn í ráð­hús­inu.

Viðreisn gæti hins vegar alveg unnið með Sjálf­stæð­is­flokknum í meiri­hluta borg­ar­stjórnar. Viðræður hafa átt sér stað milli áhrifa­fólks innan flokk­anna og þar hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sýnt „Hildar Björns­dóttur-hlið­ina“ á sér, sem fellur betur að sýn Við­reisnar en sú sýn full­trúar flokks­ins úr úthverfum borg­ar­innar standa fyrir. Þótt fyr­ir­ferða­miklir menn innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins þreyt­ist ekki á að setja fram þá sögu­skýr­ingu að það sé nán­ast „póli­tískur ómögu­leiki“ að flokk­ur­inn leiði ekki næsta meiri­hluta í ljósi kosn­inga­úr­slita þá er veru­leik­inn allt annar.

Mun Samfylking vinna með Sjálfstæðisflokki?

Fyrir liggur að Sam­fylk­ing, Píratar og Vinstri græn hafa öll úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn opin­ber­lega. Augljóst er með yfir­lýs­ingu Sós­í­alista­flokks­ins í gær, að fimm flokka meiri­hluti til Vinstri verður ekki að veru­leika. Viðreisn ætlar ekki að vinna með Mið­flokki.

Ef núver­andi meiri­hluti nær ekki saman við Viðreisn í vik­unni verður því uppi staða þar sem ein­hver þarf að éta ofan í sig stór orð. Þá verður vænt­an­lega ekki hægt að mynda starf­hæfan meiri­hluta nema ein­hver þeirra þriggja flokka sem hafa úti­lokað Sjálf­stæð­is­flokk­inn gangi á bak þeirra orða. Vinstri græn gera það varla í ljósi þess afhroðs sem flokk­ur­inn beið í borg­inni, og miklar líkur eru á að teng­ist setu hans í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki, þvert á vilja kjós­enda flokks­ins.

Píratar telja Sjálf­stæð­is­flokk standa fyrir mis­notkun á valdi sem grafi undan trausti á stjórn­málum og stofn­unum sam­fé­lags­ins. Flokk­ur­inn skil­greinir það sem eitt sitt aðal­mark­mið að vinna gegn slíku. Og þar af leið­andi nær óhugs­andi að hann kúvend­ist í afstöðu sinni.

Þá stendur eftir Sam­fylk­ing og hvort hún sé til­búin að höggva á hnút sem skap­ast hefur vegna þess að hún vildi ekki gefa eftir borg­ar­stjóra­stól­inn, og fara þess í stað í meiri­hluta með t.d. Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn þar sem flokk­ur­inn gæti aldrei gert þá kröfu hvort eð er.

Stjórn­mála­menn á Íslandi hafa verið klókir við að teikna upp stöður þar sem þeir telja sig þurfa að taka ákvarð­anir um sam­starf út frá heima­til­búnum ómögu­leika. Það gerð­ist til að mynda við myndum rík­is­stjórnar 2016 og aftur eftir síð­ustu þing­kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár