Læknar segja fullyrðingar stjórnvalda um aukin framlög til Landspítalans rangar

Læknaráð Land­spít­al­ans segir að full­yrð­ingar stjórn­valda um aukin fram­lög til spít­al­ans stand­ist ekki skoðun þegar búið sé að taka til­lit til vísi­tölu­breyt­inga, og ekk­ert til­lit sé tekið til vax­andi eft­ir­spurnar eftir þjón­ustu á spít­al­anum. Þetta kemur fram í nýrri ályktun frá lækna­ráð­inu.

Læknar lýsa því „enn og aftur yfir von­brigðum með skiln­ings­leyfi fjár­veit­ing­ar­valds­ins á starf­semi Land­spít­al­ans.“ Hlutur spít­al­ans í fjár­laga­frum­varp­inu dugi ekki til að halda í horf­inu miðað við verð­lags- og launa­þróun og van­rækslu síð­ustu ára.

Því er skorað á Alþingi að end­ur­skoða fjár­laga­frum­varpið „með það að leið­ar­ljósi að tryggja Land­spít­al­anum nauð­syn­lega fjár­veit­ingu til að geta hafið upp­bygg­ing­ar­skeið sem stuðlar að fram­þróun starf­sem­innar. Læknaráð leggur áherslu á að batn­andi staða rík­is­sjóðs nýt­ist til upp­bygg­ingar á Land­spít­ala eins og þjóðin hefur ein­huga lýst yfir að vilji hennar standi til.“

Þá segir lækna­ráð að það þurfi að end­ur­reisa þá grunn­stoð íslensks heil­brigð­is­kerfis sem spít­al­inn sé. „Það verður ekki gert nema með veru­lega auknu fjár­magni til rekst­urs spít­al­ans og fyrir nýjum fram­kvæmdum. Nú er komið að skulda­dögum. Ekki er nægi­legt að halda í horf­inu heldur þarf veru­lega inn­spýt­ingu af fjár­magni til að snúa við óheilla­þróun und­an­far­inna ára.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár