Sýklalyfjanotkun minnkað hjá mönnum en aukist hjá dýrum

Sýkla­lyfja­notkun minnk­aði hjá mönnum hér á landi um 5 pró­sent í fyrra en jókst hins vegar um tæp 7 pró­sent hjá dýrum. Sótt­varn­ar­læknir segir ánægju­legt að sjá sýkla­lyfja­notkun hafi minnkað meðal manna.

Heild­ar­notkun sýkla­lyfja hjá mönnum minnk­aði um 5 pró­sent í fyrra sam­an­borið við 2017 og um tæp 7 pró­sent hjá börnum. Sýkla­lyfja­notkun hjá dýrum jókst hins vegar um tæp 7 pró­sent á árinu 2018 miðað við árið á undan en er áfram ein sú minnsta í allri Evrópu. Þetta kemur fram í árs­skýrslu Sótt­varn­ar­læknis um sýkla­lyfja­notkun á Íslandi.

Helsta heilbrigðisógn mannkynsins

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofnun hefur lýst sýkla­lyfja­ó­næmi sem eina helstu heil­brigðisógn sem steðjar að mann­kyn­inu í dag. Eftirlit með sýkla­lyfja­notkun hjá mönnum og dýrum og bætt notkun lyfj­anna gegnir lyk­il­hlut­verki í bar­áttu gegn sýkla­lyfja­ó­næmi.

Sýkla­lyfja­notkun hefur auk­ist hér á landi á und­an­förnum árum og verið sú hæsta á Norð­ur­lönd­unum en um mið­bik ef miðað er við lönd Evr­ópu­sam­bands­ins. Hins vegar dróst fjöldi sýkla­lyfja­á­vís­ana saman um 5 pró­sent hér á landi fyrra. Þá minnk­aði sýkla­lyfja­notkun hjá börnum enn meira eða um tæp 7 pró­sent en stóð í stað hjá eldri ein­stak­lingum.

Sýklalyfjanotkun dýra eykst

[links]Sýkla­lyfja­notkun hjá dýrum jókst aftur á móti á milli ára. Ekki er hins vegar hægt að greina notk­un­ina niður á ákveðnar dýra­teg­undir en með nýrri raf­rænni skrán­ingu dýra­sjúk­dóma og með­höndlun dýra með lyf­seð­ils­skyldum lyfjum má vænta að á næstu árum verði hægt að fá gögn um notkun sýkla­lyfja greind að ein­hverju leyti niður á dýra­teg­undir.

Í skýrsl­unni segir að heild­ar­sala sýkla­lyfja fyrir dýr minnk­aði nokkuð á tíma­bil­inu 2013 til 2016 hvað magn varðar en jókst svo aftur á árunum 2017 og 2018, eða um 11 pró­sent. Vert er þó taka fram að þetta eru sölu­tölur og eru ekki teknar með í reikn­ing­inn breyt­ingar á stærð búfjár­stofna sem getur haft áhrif á magn­tölur sýkla­lyfja handa dýrum.

Líkt og fyrri ár var notkun sýkla­lyfja í dýrum á árinu 2017 minnst á Íslandi mælt í tonnum. Auk þess skar Ísland sig út ásamt Noregi þegar noktun sýkla­lyfja er mælt í mg/PCU.

Ánægjulegt að árangur hafi náðst

„Á und­an­förnum árum hefur verið rek­inn mik­ill áróður fyrir skyn­sam­legri notkun sýkla­lyfja hjá mönnum hér á landi og hefur verið lögð áhersla á að fækka ávís­unum almennt, sér­stak­lega hjá börnum og minnka notkun breið­virkra sýkla­lyfja. Til­gang­ur­inn er að minnka kostnað og draga úr útbreiðslu sýkla­lyfja­ó­næmra bakt­ería. Það er því ánægju­legt að sjá, að notk­unin hér á landi hjá mönnum hefur minnkað, sér­stak­lega hjá börnum og jafn­framt að nokkur árangur hefur náðst í að minnka notk­un­ina á breið­virkum sýkla­lyfjum,“ segir í skýrsl­unni

Í maí 2019 sendi rík­is­stjórnin frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að Ísland ætl­aði sér að vera í far­ar­broddi í bar­átt­unni gegn útbreiðslu sýkla­lyfja­ó­næmis og myndi sú bar­átta byggja á til­lögum starfs­hóps frá 2017. Sótt­varn­ar­læknir segir gleði­legt að sjá þann áhuga og vilja sem yfir­völd sýna þessum mála­flokki.

„Því sam­hentar aðgerðir yfir­valda, stofn­ana, vís­inda­manna og almenn­ings eru nauð­syn­legar til að ná árangri í bar­átt­unni við útbreiðslu sýkla­lyfja­ó­næmra bakt­ería,“ segir sótt­varn­ar­læknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár