Sjúkraþjálfarar bíða fundar með heilbrigðisráðherra

Ramma­samn­ingi um greiðslu­þátt­töku­kerfi við sjúkra­þjálfun verður sagt upp að óbreyttu, sam­kvæmt bréfi sem Sjúkra­trygg­ingar hafa sent sjúkra­þjálf­urum.

„Við erum að bíða eftir að fá fund með heil­brigs­ráð­herra (Svandísi Svav­ars­dóttur) til að ræða um þessa stöðu, sem upp er komin,“ segir Unnur Pét­urs­dóttir, for­maður Félags sjúkra­þjálf­ara, en til stendur að segja upp ramma­samn­ingi, vegna þjón­ustu sjúkra­þjálf­ara, í ljósi þess að kostn­aður hefur farið fram úr því sem áætlað var.

Nýtt greiðslu­þátt­töku­kerfi var tekið í notkun 1. maí í fyrra, og segir Unnur að það hafi gert það að verkum að fleira fólk hafi getað nýtt sér þjón­ustu sjúkra­þjálf­ara, án þess að kostn­að­ur­inn væri óvið­ráð­an­legur fyrir það. Hún seg­ist hugsi yfir stöð­unni, einkum fyrir hönd skjól­stæð­inga sjúkra­þjálf­ara en einnig fyrir hönd stétt­ar­innar.

Í bréfi sem sjúkra­þjálf­urum hefur borist frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands (SÍ), segir að geri heil­brigð­is­ráð­herra ekki athuga­semdir, þá muni SÍ segja upp ramma­samn­ingi við sjúkra­þjálfa, er varðar greiðslu­þátt­töku rík­is­ins, fyrir lok mán­að­ar­ins með sex mán­aða fyr­ir­vara.

Kostn­að­ur­inn hefur farið framúr því sem áætlað var þegar kerfið var tekið upp, og munar þar um 300 millj­ónum, miðað við fram­reiknun fyrir þetta ár, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Unnur segir að sjúkra­þjálf­arar fagni því, að geta veitt sína þjón­ustu gagna­vart fleiri hópum í sam­fé­lag­inu, ekki síst þeim sem lágar tekjur hafa, og hið nýja greiðslu­þátt­töku­kerfi hafi opnað á þann mögu­leika fyrir fjöl­marga. Aukin sókn í sjúkra­þjálfun, miðað við það sem SÍ hafi gert ráð fyrir, sé af hinu góða, að mati Unnar. Hún seg­ist ekki hafa fengið ítar­legar upp­lýs­ingar ennþá, um það „hvað hangi á spýt­unni“ en að hennar mati sé það af hinu góða - og til þess fallið að lækka kostnað fyrir heil­brigð­is­kerfið almennt - ef fólk almennt sé að nýta sér sjúkra­þjálfun.

Unnur seg­ist fagna umræðu um málið, en furðar sig á því ef nýju kerfi og samn­ingi sé ekki gef­inn lengri tími. „Það er ekk­ert sem á að koma neinum á óvart í þessu, og frá okkar bæj­ar­dyrum séð, þá er það mik­il­vægt mál fyrir íslenskt sam­fé­lag, að tryggja aðgengi allra hópa í sam­fé­lag­inu að sjúkra­þjálfun,“ segir Unnur.

Hún seg­ist bjart­sýn á að lausn finn­ist á stöð­unni, sem upp er komin, og bindur vonir við að frek­ari upp­lýs­ingar komi fram eftir fund með heil­brigð­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár